Færsluflokkur: Dægurmál
21.2.2007 | 16:02
Bollu- sprengi- öskudagur!
Jæja þá er bolludagurinn afstaðinn og náðum við fjölskyldan að svolgra í okkur eins og nokkrum bollum og hér er nú yngsti fjölskyldumeðlimurinn að háma í sig bollu hjá afa og ömmu. Nú svo fengum við saltkjöt og baunir á sprenigdaginn í leikskólanum við Sigrún. Svo hefur öskudagurinn verið ansi skemmtilegur. Sú stutta var klædd hér í morgun í nornabúning og máluð í framan og hún ætlaði sko að vera góð norn. Svo fórum við í leikskólann og þar var farið í salinn í Þingborg og kötturinn sleginn úr tunnunni. Ógurlegt fjör og mikið gaman. Allir fengu popp og saltstangir en við byrjuðum reyndar á því að syngja fyrir sveitastjórann 2 lög og fengum límmiða að launum. Sigrún nornin í Vorsabæ
Vona að þið hafið átt góðan dag í dag. Kveð að sinni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.2.2007 | 11:50
Önnur afmæliskveðja
Í dag á hún Bogga amma mín afmæli. Já hún er orðin 85 ára gömul konan og lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en sjötug enda er hún við hestaheilsu. Við Anna Kolla hjálpuðumst að í gær að gera brauðtertur fyrir veisluna sem verður í dag og svo ætlaði Lára litla að skreyta þær í morgunsárið. Nú svo henti ég í eina köku áðan sem verður á boðstólum líka. Voða gaman. Til hamingju með daginn gamla mín
Nú á maður eitthvað að tjá sig um Eurovision... hmmmm. Ég hefði nú frekar viljað sjá Friðrik Ómar fara fyrir okkar hönd til Finnlands með lagið ELDUR ... en það er samt spurning hvort hann Eiki meiki það ekki bara í staðinn. Kominn tími til Hann er nú alltaf góður rokkarinn svo sem. Ætli fólkið okkar sem tekur þátt í þessu komi ekki bara fram fyrir Íslands hönd á 20 ára fresti og lifi drauminn aftur. Ja við lifum allavega í voninni með að vinna þessa keppni... og fara þannig á hausinn í eitt skipti fyrir öll. Svei mér þá. Ég held að 16. sætið sé bara ekkert svo slæmt. Að vera bara á miðjunni, það lukkast best fyrir alla. Já já hvað segið þið þarna úti????
TJÁIÐ YKKUR NÚ UM ÞETTA MÁL... NÚ EÐA EINHVER ÖNNUR MÁL See ya.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
12.2.2007 | 16:38
Afmæliskveðja
Jæja góðir gestir. Nú ætla ég að taka eitt lag .... NEI NEI ég ætla ekkert að taka það. Ég ætla að flytja eitt lag ... NEI NEI NEI ég ætla ekkert að flytja það, ég ætla að hafa það á staðnum. Ég ætla að syngja eitt lag. Tileinkað vinkonu minni henni Söndru Dís því hún á afmæli í dag skvísan. Nú hef ég upp raust mína:
Hún á afmæli í dag hún á afmæli í dag hún á afmæli hún Sandraaaaaa. Hún á afmæli í dag TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN KÆRA VINKONA. Þú ert ekki deginum eldri en 25.
En héðan er allt gott bara. Stebbi fór í sína fjallaferð um helgina og hafði gaman af. Við mæðgur fórum í sumarbústaðinn til mömmu og pabba og höfðum það ákaflega gott. Skvísan var þó veik og komst því ekki í pottinn. En við bættum bara um betur og skutluðumst í hann um miðnætti á laugardaginn og stútuðum einni hvítvín þar. Voðalega ljúft í blíðunni og stjörnubjörtum himni.
Blessiykkur
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.2.2007 | 17:25
Bloggleysi
Jæja já ... fólk farið að kvarta um lengd á milli færslna hjá mér ég nenni bara varla að blogga þegar ég hef frá svo agalega litlu að segja. Þannig að það tekur því ekki að blogga um ekki neitt.
Það helsta svona er jú að við skruppum á þorrablót í sveitinni um daginn og það var hin besta skemmtun. Skemmtiatriðin (heimatilbúin að sjálfsögðu) voru alger snilld. Mikið gert grín að sameiningunni (í Flóahreppi), möstrunum sem áttu að koma í landi Galtastaða... jú og kvennaferðinni góðu sem farin var í vetur til Þýskalands Við hjónin vorum samt ekki í okkar besta stuði og vorum komin heim áður en blótinu lauk. Aldrei slíku vant. Samt ágætis blót alveg og ég dansaði alveg fullt. Ekki hægt að segja það sama um bóndann.
Nú talandi um bóndann... þá er hann að fara í fjallaferð um helgina þannig að ég verð grasekkja frá föstudagskvöldi og fram á sunnudag. Þannig að ef einhver vill kíkja í sveitina í kaffi og meððí þá er það guð velkomið. Á líka góðar veigar á barnum, hehe.
Bið að heilsa ykkur í bili kæru vinir.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.2.2007 | 16:04
Jarðarberjadrykkur fyrir helgina
Ég verð að deila með ykkur mínum uppáhalds-drykk þessa dagana og jaaa alveg síðan í haust. Það er Jarðarberjagums og hér kemur uppskriftin:
- Frosin jarðarber
- Sprite eftir smekk
- Fersk mynta (algjörlega nauðsynleg fyrir rétta bragðið)
Öllu er blandað saman í blandara og magnið af Sprite-inu fer eftir smekk. Ég kýs að hafa þetta frekar þykkt. Fyrir þá sem vilja er hægt að bæta slettu af Bacardi rommi útí. Þetta er nefninlega hinn fínasti kokteill.
ÓÓÓÓtrúlega góður og svalandi drykkur. Verði ykkur að góðu og eigið ánægjulega helgi.
Kveðja Rannveig
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
31.1.2007 | 15:48
Brandari
Stuttu seinna kemur veiðivörður siglandi að henni á bát sínum. "Góðan daginn frú, hvað ert þú að gera?" spyr hann. "Ég er að lesa bók" svarar hún (og hugsar með sér hvort það sé ekki augljóst!). "Þú ert á lokuðu veiðisvæði" segir vörðurinn.
"Fyrirgefðu en ég er ekki að veiða, ég er að lesa" segir hún. "Já" svarar hann, "En þú ert með allar græjur, hvað veit ég nema að þú farir að veiða eftir skamma stund. Ég verð að fá þig í land svo ég geti gert skýrslu um þetta". "Ef þú gerir það þá verð ég að kæra þig fyrir nauðgun!" svarar hún þá. "En ég hef ekki snert þig " segir vörðurinn forviða. "Það er rétt en þú hefur allar græjur og hvað veit ég nema að þú byrjir eftir skamma stund. Hafðu það gott í dag frú" sagði vörðurinn og sigldi á brott.
Boðskapur sögunnar: Aldrei rífast við konu sem les. Það er mjög líklegt
að hún geti líka hugsað !!
Kveð að sinni
RDægurmál | Breytt s.d. kl. 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.1.2007 | 20:20
Rauðvín og ostar
Haldiði að karlinn minn yndislegi hafi ekki komið elskunni sinni á óvart í dag þegar hann kom heim úr vinnunni og komið heim með rauðvín og osta handa mér. Alltaf gaman þegar manni er komið svona á óvart. Ég færði honum rauðar rósir og hjartalaga konfekt í hjartalaga öskju í tilefni dagsins. Ekki amalegt það - konfekt, rósir, rauðvín og ostar
Svo er annað... ég vil eindregið hvetja ykkur til að fylgjast með x-factor á föstudaginn því hún frænka mín hún Tinna er að taka þátt. Endilega kjósið skvísuna, hún á það svo sannarlega skilið stúlkan.
Yfir og út
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.1.2007 | 08:28
9 ár
Í dag eru 9 ár síðan við Stebbi byrjuðum að slá okkur upp saman. Vá fljótt að líða. Mér finnst það hafa verið í gær sem Greifaballið var og ég ein heima í Miðtúninu. Partý...??? Neeeeei
Já það eru sem sagt 9 ár síðan spáð var fyrir mömmu á Kanarí... konan sem spáði fyrir henni sá nýjan tengdason. Mömmu fannst það nú svo sem ekkert líklegt en hann er hér enn get ég sagt ykkur
Kveð að sinni
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.1.2007 | 17:45
Ófærð og meiri ófærð
Þetta er nú meira veðurfarið. Það var mikið að það kom almennilegur vetur ja ef við ættum ekki jeppa þá væri ég ekki búin að vera mikið á ferðinni undanfarna daga. Mjólkurbíllinn situr nú fastur hér í brekkunni fyrir neðan og Helgi tengdó er að reyna að moka hann upp. Og ekki hefur sést til póstmannsins síðan síðdegis í gær. Það var líka heldur fátt í leikskólanum í dag. Ekki nema 11 börn og síminn stoppaði varla. Foreldrar að tilkynna að barnið sitt væri veðurteppt heima og kæmi ekki í dag. Enda var skólahaldi í Flóaskóla aflýst í dag vegna ófærðar.
Það munaði engu að ég kæmist ekki í gegnum skaflana á Vorsabæjarveginum í dag á mínum fjallajeppa. Helgi er búinn að moka 3 x í dag í gegnum skaflana á hlaðinu hér en skafrenningurinn er það mikill að það fyllist um leið aftur. Hann mokar bara rétt til að hleypa einhverjum í gegn. Hann hafði mokað í gegn um 1 klst. áður en ég kom heim í dag. Það var eins gott því annars sæti ég föst í einum skafli hér úti. Já það er fjör á fróni þessa dagana.
Yfir og út kæru vinir og farið varlega í snjónum.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.1.2007 | 11:41
Ömmupartý
Jæja er ekki kominn tími á nýja færslu. Það gerist eitthvað svo lítið í mínu lífi þessa dagana að mér finnst varla taka því að blogga um það. Veit varla hvort það er kostur eða galli. Líklega kostur þar sem flestar bloggfærslur mínar hafa verið um veikindin. Þetta sýnir það bara að ég er orðin hressari og þarf ekkert að vera að skýra frá líðan minni. Anyways... mér líður bara vel
Ég er að fara að hitta nokkrar af skemmtilegustu konunum í lífi mínu í kvöld. Það er komið að hinu árlega ömmupartýi og það eru sko ótrúlega skemmtileg partý. Þá mætum við nokkrar kellur saman (amma sem sagt, mamma mín, systur mínar, frænka og 2 mágkonur mömmu). Þetta er hreint meiriháttar skemmtilegur hópur og við komum saman einu sinni á ári heima hjá ömmu og höldum át- og drykkjarveislu. Syngjum svo frá okkur röddina og hlægjum einhver lifandis ósköp svo mann verkjar í magann í 2 daga á eftir. Eða var það af drykkjunum??
Og svo syngjum við.... Þú þú þú fórst mér frá. Siðan þú fórst er tilveran grá...!!!
Og líka... við erum við... á hverjum degi. Við erum smart þú og éééééégggg.... VÚHÚ!!!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar