Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Elskulegi Eyrarbakki...


...aftur kem ég heim til þín.
Ég er eins og annar krakki
alltaf þegar sólin skín.

Heljarinnar fjör á jónsmessuhátíðinni í gær.  Alltaf gaman að kíkja á æskuslóðirnar og Íris hélt þessar snilldarræðu á brennunni.  Bjúgnaveislan var alveg frábær líka og vil ég nota hér tækifærið og þakka fyrir mig Wink

Ég veit þið eruð að lesa bakkamenn og þið munið hverju þið lofuðuð er þakki?  Grin 

Ég læt fylgja með hér eina mynd sem ég tók í síðustu viku þegar Daníel Þór vinur okkar kom í heimsókn með pabba sínum.  Sigrún er að gefa honum radísur... hvernig var þetta annars með þessar radísur???  HA HA HA.... Tounge 

Vinir

En hafiði séð Fréttablaðið í dag?  N.t.t. bls 13    I love it maður!


Íþróttaæfing á Jónsmessu

Já skvísan á bænum fór á sína fyrstu íþróttaæfingu á þriðjudaginn síðasta.  Æfingin tókst vel og ég skildi hana bara eftir hjá krökkunum og var hún hin ánægðasta Grin  Þau fóru í alls kyns leiki skilst mér en pabbi hennar sótti hana þar sem ég var nú komin á fullt í garðvinnu, úff púff!  Þvílík endemis vinna sem þessi garður er en mér er farið að finnast þetta bara gaman og er alltaf að sjá afrakstur erfiðisins smátt og smátt.  Garðurinn verður orðinn helvíti fínn í ágúst ef fer sem horfir Cool  Whistling

Kerfillinn hefur þó heldur verið að taka yfirhöndina í fína garðinum og skv. Plöntuhandbókinni getur verið erfitt að uppræta hann nái hann fótfestu.  Ég læt hann nú ekki ráða sko og ætla að vera þrjóskari en hann og hana nú!!!  En djö sem hann er fljótur að dreifa úr sér blessaður.  Og ræturnar eru ekkert smásmíði.  Stebbi tók traktorsgröfuna á hann og svo ég á eftir með garðverkfærin til að ná restinni.  En lakkrísbragðið er ágætt samt Undecided

Sumarbústaðarferð framundan hjá mér og svo Jónsmessugleði á Bakkanum með bjúgnaveislu og tilheyrandi LoL  Sigrún á leið í útilegu með ömmu sinni og er orðin voða spennt.  Og bóndinn á bænum er á leið norður í land.  Ja hérna hér Gasp

Sumarfríið mitt er að hefjaaaaaaast og síðasti dagur Sigrúnar í leikskólanum er á morgun.

Heyrumst kæru vinir og njótið nú hvers dags í botn í sumar því það verður búið áður en maður nær að snúa sér við Shocking


Björninn sást...

EKKI (ennþá amk) Crying ... spurning hvort maður eigi að fara að vera hræddur og fá sér riffil Whistling

Ætli við mætum honum með lyng í annarri og blóm í hinni í Þjórsárdalnum um helgina?  Shocking

 

Er annars góð bara.  Cool  Sumarið allt framundan og sumarfríið fer að hefjast.  Útilegur ofan á útilegur og Sigrún getur ekki beðið eftir einni sem fer að hefjast.  Annars er hún á sundnámskeiði skvísan þessa dagana og gengur svona brilljant vel.  Hef sjaldan séð hana eins spennta og ánægða með nokkurn skapaðann hlut svei mér þá Grin 

Hafið það annars gott í sumar   


mbl.is Hálendisbjörn er hugsanlegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

G L E Ð I L E G A Þ J Ó Ð H Á T Í Ð

Blómin springa út og þau svelgja í sig sól - sumarið í algleymi og hálft ár enn í jól.  Í hjarta sínu fólkið gleðst og syngur lítið lag.  Því Lýðveldið Í S L A N D  á afmæli í dag.......

Hæ hó jibbí jei og jibbí jei!  Það er kominn 17. júní. 

 


Tóm gleði í blíðunni

Já það er aldeilis búin að vera bongóblíða hjá okkur í leikskólanum síðustu daga.  Maður sér brúnkuna spretta fram á börnunum og erum duglegar með sólvörnina í annarri og After sun-ið í hinni LoL  Já já það held ég núh!  Á maður ekki að tala um veðrið þegar maður hefur ekkert annað til að tala um?  W00t  Dásamlegt alveg.

En við fórum í blómaferð til Hveragerðis í dag 4 ættliðir.  Sem sagt Bogga amma, mamma, ég og Sigrún og keyptum sumarblómin hjá henni Ingibjörgu.  Alltaf gaman að kaupa falleg blóm og keypti ég 2 leirker líka og Pelakóníu í þau sem ég ætla að hafa á tröppunum með von um að fæla burtu flugurnar FootinMouth  Verður gaman að sjá hvort það virkar.  Keypti svo Morgunfrúr og Ljónsmunna (hvítan) og ætla að setja þau blóm í steinabeðin mín í suðurgarðinum.  Morgunfrú var uppáhaldsblóm Guðfinnu heitinnar sem bjó hér (amma hans Stebba) og mér finnst því upplagt að planta þeim í garðinn hennar.  Ég hef gert það nokkur undanfarin ár.  Svo keyptum við nokkrar Stjúpur sem Sigrún valdi sér til að setja framan við kofann hennar í lítið beð sem ég útbjó í fyrrasumar.  Setti nú reyndar haustlauka í það s.l. haust en það komu bara nokkrir upp.  Spurning hvort ég hafi snúið þeim vitlaust eins og pabbi Whistling  Koma þeir þá bara ekki upp í Kína? 

Garðvinna hjá Boggu ömmu á morgun og ætlum við nokkrir ættingjar að mæta í það.  Einnig þurfum við að klára smá tiltekt uppi hjá henni sem er nauðsynleg eftir skjálftann.  Hún ætlar að elda kjötsúpu í liðið sem verður eflaust meistaraverk eins og allt sem hún tekur sér fyrir hendur Grin


Framfarir

Það er gaman að sjá framfarir Sigrúnar á trampolíninu síðan í fyrrasumar.  Hún er búin að æfa fimleika í vetur og núna fer hún í nokkurs konar heljarstökk og er óhrædd við að snúa sér á hvolf án þess að nota hendurnar.  Alls kyns kúnstir eiga sér stað þessa dagana.  Einn daginn var hún búin að vaska allt upp eftir kvöldmatinn  þegar ég kom inn í eldhús LoL  En hún nennir ekki að læra að setja inn í uppþvottavél, demn!!  Frekar vill hún vaska allt upp í höndunum - og sulla dálítið í leiðinni auðvitað Whistling

Í loftinu    Á höndum    Í uppvaskinu  Hún þarf alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni stúlkan Woundering

Set stutt myndbandsbrot með að gamni 


Ein missir tönn - önnur fær rör

Jæja þá er búið að setja í mig Lester Jones rörið so I´m a double Mr. Jones LoL  Aðgerðin gekk vel og ég finn að rörið virkar sem skildi.  Mér sýnist hann hafa sett eins rör og er hinumegin.  Ég vaknaði bara vel eftir svæfinguna og fann bara aðeins til.  Ákvað að biðja ekkert um frekari verkjalyf því síðast spöruðu þær sko ekki morfínið  og mér leið vægast sagt illa þegar leið á daginn en núna harkaði ég bara af mér og er fín í dag.  Tók 2 panódíl í gærkvöldi en annars ekkert meir.  Enda þetta aðeins minni aðgerð en sú sem var gerð fyrir mánuði.  Verð samt að passa mig á að krjúpa ekki mikið og fara að setja í þvottavél og svona eins og síðast Undecided  þá poppar rörið bara upp úr.  Tek enga sénsa!

Sigrún fékk að gista enn og aftur hjá ömmu og afa á Fossveginum og hvað haldiði.  Hún missti fyrstu tönnina í gærkvöld og setti hana undir koddann.  Svo kom litli Tannálfurinn í nótt og skildi eftir smá pening handa henni.  Hún var víst alsæl með þetta og fór í leikskólann áðan og sýndi öllum tönnina Happy  Fyrsta tönnin farin

Vorhátíð Krakkaborgar er í dag og þá fara allir í salinn og sýna smá leikrit eða söngatriði, kórinn tekur nokkur lög og svo er hún Sigrún mín að útskrifast úr leikskólanum.  Einnig er sýning á verkum barnanna sem þau hafa unnið í vetur og ég ætla að reyna að kíkja á þetta allt saman á eftir.  Er heima í nokkra daga í veikindaleyfi vegna þessarar aðgerðar en vonandi er þetta í síðasta sinn sem ég fer í aðgerð á augunum mínum.  Kannski orðið ágætt þar sem þessi er nr. 5 í röðinni W00t 

Ætla að halda áfram að horfa á BBC FOOD.  Vá maður hvað þeir eru að malla margt girnilegt þar.  Ég sá áðan 2 týpur af tómatsalsa og svo eina góða Spicy soup, mmmmm. 


Sjómannadagurinn

Til hamingju sjómenn með daginn og þá sérstaklega þú pabbi minn Grin

Fór á föstudaginn eftir vinnu að taka til heima hjá ömmu og þá voru nokkrir ættingjar komnir og búnir með heilmikið.  Ótrúlegt hvað þetta getur verið mikil vinna að taka til og þrífa eftir svona hamfarir.  Allt fína rykið og litlu glerbrotin og flísar og svo var bara komið að vorhreingerningu hjá þeirri gömlu svo að nú er allt orðið fínpússað. 

Pabbi og mamma eru líka búin að þrífa allt upp sem brotnaði og fór út um allt en það brotnuðu nú færri hlutir en maður hélt í fyrstu eftir að líta yfir íbúðina strax eftir skjálftann.  Gólfið hefur farið öllu verra út úr þessu við að fá alla þessa hluti misþunga á sig.  Errm  Þetta hefst allt saman. 

Annars var ég að koma úr bústaðarferð með Sexunum mínum (hópurinn úr Kennó) og vorum við 5 af 6 sem gátum mætt.  Frábær ferð og þessar elskur færðu mér verndarengil að gjöf og óskuðu mér til hamingju með 3 ára "cancer survivor" afmælið.  Yndislegar alveg og við höfðum það voða gott saman í sólarhring í bústað foreldra minna.  Höfðum mexíkanskan mat, dýrindis eftirrétt að hætti Svövu, fórum í pottinn, drukkum kokteila og fleira skemmtilegt.  Næsta haust getum við væntanlega allar mætt þar sem Danasexan okkar flytur heim í sumar Grin  Þá verður nú mikið húllumhæ!  LoL  Takk fyrir helgina snúllur!

Ég er svo að fara í aðgerðina aftur á hægra auga á þriðjudaginn.  Nú ætlar læknirinn að reyna að setja rörið í og setur hann væntanlega alveg eins rör og er komið hinumegin.  Svo VONANDI fer nú þessum leka að ljúka.  7-9-13

Og hér með lýk ég þessari færslu og hana nú!  Wink


Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 123775

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband