Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

G L E Ð I L E G T * N Ý T T * Á R

Áramót í Brekkuskógi

Gleðilegt ár kæru vinir.

Farið gætilega með flugeldana um áramótin.

Og gangið hægt um gleðinnar dyr.

SKÁL!


Komnar inn jólamyndir

Við hér í sveitinni erum búin að hafa það rosalega gott um jólahátíðina.  Við Sigrún vorum nú í náttfötunum langt framyfir hádegi Undecided  og lágum uppi í rúmi og hofðum á Mr. Bean´s Holiday.  Ótrúlega fyndin mynd og mikið hlegið LoL 

Svo er ég búin að liggja í kaffinu því við fengum Senseo kaffivél í jólagjöf Joyful  Það er sterkt morgunkaffi hér alla morgna núna og svo fleiri og fleiri bollar yfir daginn.  Ég er komin með útstæð augu og stjörf af kaffidrykkju Shocking  hehehe.  Nei nei ekki alveg svo slæmt en GOTT er kaffið, mmmmm.  Maður kann sér nú hóf í kaffinu sem á öðrum sviðum Whistling

Sigrún fékk náttúrlega alveg fuuuullt af pökkum, nokkrar litlar dúkkur og fylgihluti og bíl fyrir herlegheitin (Polly Pocket), ferðatösku og Bratz dúkku með, allskonar liti, vettlinga, Stellu í framboði, Ég get lesið (bók með stafaböngsum), teppi, náttföt, peysu og ýmislegt fleira.  Hún er búin að vera í miklu stuði um jólin og leikur sér mikið með dúkkurnar.  Hún sofnaði nú ekkert mjög seint á aðfangadag en hún sofnaði yfir Stellumyndinni sem hún fékk Gasp 

Það eru komnar inn jólamyndir á síðuna hennar Sigrúnar og þar getið þið séð herlegheitin öll. 

Munið svo að styrkja Björgunarsveitirnar í flugeldunum Wink  Margt smátt gerir eitt stórt.  Ég sé náttúrulega karlinn minn ekkert þessa dagana þar sem hann er á fullu í undirbúningi fyrir söluna.  Hann kom t.d. heim kl. 03 í nótt og var farinn kl. 09 í morgun Errm


Gleðileg jól allir saman

   

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla kæru ættingjar og vinir og vona að þið munið eiga heillaríkt komandi ár.  Kærar þakkir fyrir góðan vinskap og bloggskap á árinu sem nú er senn á enda.

Hafið það ævinlega gott!!

Bestu kveðjur Rannveig

  


Verslum í heimabyggð... NOT!

Já mín er pirruð núna Crying  Angry  því ég er að leita að ákveðinni jólagjöf hér á svæðinu (þ.e. Selfossi) og ég finn hana ekki.  Það vantar alveg svona sérverslanir eins og með gott kaffi, súkkulaðihúðaðar kaffibaunir, kandís-stangir og fleira + ýmisleg krydd og olíur.  Það er bara ekkert um þetta á Selfossi.  Og DVD úrvalið.  OMG.  Þvílíkt ruslúrval að annað eins hefur ekki sést í háa herrans tíð.  Og svo segja þeir manni að versla í heimabyggð!!!  Hvernig á það að vera hægt ef maður fær ekki það sem manni langar að gefa???  Eiga kannski allir að gefa ostakörfur og rauðvín þessi jólin?  Eða konfektkassa ég bara spyr.  Ekki misskilja mig.  Það er alveg fínt að fá konfekt og rauðvín í jólagjöf en maður vill nú ekki endilega gefa það ár eftir ár.  Þetta er nú meira pleisið.  Það er ekki nóg með að öll pöbbamenning sé dauð heldur er ekki einu sinni hægt að velja almennilegar gjafir til jóla GetLost  *Hneyksl*

Og ekki er úrvalið meira af leikföngum.  Ég átti leið í leikfangaverslunina einu á Selfossi í dag og ætlaði að kaupa afmælisgjöf handa einni sem er að verða eins árs Wizard  Nei nei.  Ekkert sem vit og varið er í var hægt að finna þar.  Þannig að ég fór í Nóatún.  Og ekki tók nú betra við þar.  Ég hreinlega nenni ekki til Reykjavíkur eftir einni jólagjöf og einni afmælisgjöf þannig að maður verður bara að sætta sig við það næstbesta eða þaðan af verra.  Nei ok ég fann eitt alveg ágætt en mig langaði að gefa annað sem ég var búin að sjá í blaði úr annarri leikfangaverslun og hélt kannski að væri til hér Halo  eða eitthvað sambærilegt. 

Ég er leið og pirruð yfir því að geta ekki gefið það sem mig langar til án þess að þurfa að keyra eftir því yfir fjallið í þessu annars skemmtilega veðri sem er búið að vera þessa dagana og vikurnar!

Já ég er hneyksluð á þessu.  Þvílík annars uppbygging á svæðinu og hvað!  Á ekki að vera nein þjónusta fyrir fólkið sem hér býr.  Mér er ofboðið.  Og hana nú.  Þið megið alveg skjóta mig niður.  Ég verð búin að jafna mig fyrir jól (VONANDI)


Aðfangadagur jóla árið 1998

24 ára gömul stúlka bjó í heimahúsum og var að undirbúa jólin með foreldrum sínum.  Hún var ástfangin af 26 ára gömlum sveitapilti og honum skaut oft upp í kollinn á henni þennan daginn sem fyrr.  Það var búið að skreyta jólatréð, verið var að útbúa árlega hamborgarhrygginn og verið að laga sósuna með... rauðkálið sett í skál, maískornin á sínum stað... þá var bankað.  Ástfangna stúlkan fór til dyra og þar stóð hann prinsinn á hvíta "hestinum" (sem var jeppi í þessu tilfelli) og hann stóð þarna í kuldanum með pakka í hendi.  Stóran og flottan pakka.  Stúlkan bauð prinsinum inn en hann var á hraðferð heim í sveitina til þess að geta mjólkað kýrnar með föður sínum.  Jæja stúlkan tók við pakkanum og prinsinn hélt sína leið.  Hún hélt áfram að undirbúa jólin.  Fór og fann til fötin sín... og fattaði þá allt í einu.  Hún hafði gleymt að láta prinsinn hafa sinn pakka Frown  Blush  Og klukkan var að verða 6.  Hún var vön að borða kl. 6 með sínu fólki.  En það ræddi ekki um annað en að skutlast með pakkann í sveitina til prinsins.  Hún hentist af stað upp í bíl foreldra sinna, með pakkann í framsætinu, og af stað.  Bankaði uppá í sveitinni en þar kom móðir hans til dyra.  Prinsinn var í fjósinu.  Móðirin tók við pakkanum.  Stúlkan hélt sína leið.

Hún ók nú á löglegum hraða (eins og áður) en klukkan sló 6 á leiðinni til baka.  Og það snjóaði.  Ekta hvítum, stórum flygsum.  Þetta var sko alvöru jólasnjór.  Það var ekki um villst að það voru að koma jól.  Stúlkan var ánægð með að hafa komið pakkanum til skila fyrir jól LoL 

Fjölskyldan settist að borðum í seinna lagi þessi jólin en allt fór vel.  Ekki man stúlkan lengur hvað var í þessum fínu pökkum Joyful  Grin


Fimleikasýning og afmæli

Fór á svakalega flotta og skemmtilega fimleikasýningu í gær í íþróttahúsi Vallaskóla (heitir það ekki það annars?) og þemað í ár var Konungur ljónanna.  Guðfinna Gunnars las af sinni alkunnu snilld söguna og svo komu hver hópurinn á fætur öðrum með rosalega flott atriði.  Sigrún var í ljónahópnum (þau voru öll í brúnu) og hennar hópur gerði m.a. dans og ýmsar æfingar á gólfi.  Gekk voða vel og var auðvitað mjög flott Wink  Eldri hóparnir eru orðin svo flink að maður gapti bara af undrun.  Þvílíku flikk flökkin og heljarstökkin voru ótrúleg.  Og meira að segja 8 ára krakkarnir með frábæra takta.  Vona að mín verði svona áhugasöm áfram eins og hún hefur verið og muni æfa fimleika um aldur og ævi LoL

Svo var hún Linda okkar heiðruð fyrir frábæran árangur í fimleikum í gegnum árin.  Hún er snillingur stelpan og hún vinnur hjá okkur í Krakkaborg og sér um alla leikfimina þar og krakkarnir ekkert smá áhugasöm og ánægð.  Þau hlakka alltaf jafn mikið til að fara í salinn með Lindu Smile  hún tekur þau í allskyns leiki og æfingar og þrautabrautir og hvað þetta heitir allt.  Við starfsfólkið erum náttúrlega búin að læra fullt af henni Grin

Nú svo eftir sýninguna fórum við í afmæliskaffi til mömmu.  Hún átti afmæli í gær og bauð upp á kræsingar að vanda.  Takk fyrir það mamma mín.  Og pabbi líka því hann hjálpaði nú til við ýmislegt Grin 

Jólakortaskrifin ganga vel og nú skal haldið áfram...  á jólunum er gleði og gaman fúmm fúmm fúmm... Whistling


Hér blikka ljós og sjónvarpið dottið út

Já það er snarvitlaust veður hér í sveitinni í þessum "töluðu" orðum.  Sjónvarpið datt út áðan í miðjum CSI Miami þætti.  Arrrrggghh.  Ég get ekki sofið í þessu brjálaða roki.  Húsið hristist svo að það liggur við að það fjúki um koll.  Skyldi úlfurinn vera mættur? Gasp 

Bóndinn á bænum farinn í útkall á Stokkseyri.  Þakplötur að fjúka en ekki hvað?!

Prinsessan á bænum steinsefur.  Það tók nú dálítinn tíma að sofna í kvöld fyrir spenningi rauðklæddra sveina sem sveima um þessa dagana.  Hún bara gat ekki beðið með að vakna og kíkja í skóinn í fyrramálið sagði hún þegar hún kom niður í annað sinn í kvöld GetLost  Nú skilur hún eftir smákökur í skónum handa öllum jólasveinunum sem eiga að koma hér við á hverju kvöldi til jóla.  Stekkjastaur þakkaði fyrir sig með bréfi síðustu nótt og fannst kakan afar ljúffeng Smile  Hún segist ætla að skilja eftir bjúga handa Bjúgnakræki þegar hann kemur Undecided  Veit ekki hvernig lyktin af því verður þegar hann mætir á svæðið. 


Var að enda við...

... að baka súkkulaðibitakökur.  Nammi namm þær eru ógisslega góðar þótt ég segi sjálf frá W00t  Hver ætlar að verða fyrstur í kaffi og smákökur?  Ja eða alvöru heitt súkkulaði.  Pabbi var að kenna mér einfalda aðferð við að útbúa ALVÖRU súkkulaði í bolla Wink  Jaaahá hann pabbi lumar á ýmsum góðum ráðum get ég sagt ykkur.   Þegar ég eldaði hamborgarhrygg í fyrsta sinn fyrir bráðum 10 árum síðan þá var ég í beinni útsendingu við pabba þegar ég lagaði sósuna.  Og hún varð bara helvíti góð og næstum alveg eins og hjá honum sko Happy

En nú líður að því að fyrsti jólasveinninn komi til byggða.  Þeir tóku nú forskot á sæluna blessaðir á laugardaginn og fórum við og hittum þá litla fjölskyldan.  Við löbbuðum í kuldanum með Svövu og Reyni frá Suðurenginu og börnin voru alveg hreint vitlaus í að tala við sveinana.  Sigrún leitaði að Þvörusleiki út um allt og spurði hvern sveininn á fætur öðrum hvort hann væri Þvörusleikir eða hvort hann vissi um hann Undecided  Síðasti sveinninn sem hún hitti var svo loksins Þvörusleikir hehe.  Eitthvað annað en mamma hennar hér um árið.  Say no more!!!


Með næturgest

Vorum með næturgest í nótt Smile  Við Sigrún náðum í Reyni Örn í leikskólann í gær eftir fimleikana og það var mikil spenna í gangi.  Reynir Örn ætlaði nefninlega að gista hjá okkur í nótt.  Sem hann gerði og gekk það glimrandi vel.  Þau fengu hér súrmjólk á 2 tíma fresti í gær og pylsu í kvöldmatinn.  Svo léku þau sér eins og bestu vinum sæmir og kom bara ekkert upp á Grin  Hann kom með Hulk og Spiderman með sér og svo var hún  með Polly Pocket dúkkurnar sínar og þetta passaði allt mjög vel saman Wink  Svo var farið í Playmo í sjóræningjaleik og litaðar jólamyndir inn á milli.  Þau voru svo bæði sofnuð um 10 leytið í gærkvöld orðin úrvinda af þreytu og þá búin að horfa á Dalalíf og hlusta á Karíus og Baktus Smile

Nú svo var rice and shine rétt fyrir 7 í morgun Sleeping  og það er nú nokkuð fyrr en ég er vön.  Náði nú að henda mér aðeins upp í rúm aftur eftir að hafa græjað morgunmat í krakkana og kveikja á barnaefninu.  Og finna til smá nammi í poka auðvitað Joyful

Svo ætlum við að kíkja á jólasveinana sem eru að koma úr Ingólfsfjalli um 4 leytið í dag.  SpennandiHappy

 


Glerlist, gallerí og Bláa lónið

Þá er búið að redda nokkrum jólagjöfum fyrir þetta árið Wink  bara um 15 eftir eða svo Errm

En Menningarferð Kvenfélags Gaulverjabæjarhrepps (hins forna) tókst með eindæmum vel Grin  Alltaf gaman að fara í svona ferðir í svona líka skemmtilegum félagsskap.  Kellurnar eru alveg frábærar og bara spurning um hvenær ég geng formlega í kvenfélagið Whistling

En við fórum sem sagt Krýsuvíkurleiðina suður til Keflavíkur, með stoppi í Strandakirkju sem er voða lítil og sæt sveitakirkja og það átti m.a. að vera gifting þar í gær, svo stoppuðum við við brúna á milli evrópu og ameríku (gengum á hana) og fengum ekta amerískt góðgæti á eftir, kleinuhring og litla kók Tounge  Nú svo fórum við til Keflavíkur og byrjuðum á því að fara í glervinnustofu sem mæðgin eiga og eru nýflutt með til Íslands.  Þau ráku þetta í 13 ár í Danmörku og búa til mjög krúttlega hluti.  Sáum m.a. fugl búinn til sem var mjög gaman.  Glerið er unnið við 1500° hita W00t  Svo kíktum við í hin og þessi gallerý og kertaverksmiðju á staðnum og í nokkrar aðrar búðir líka.  Mikið af flottum búðum í Keflavík og fólkið voða indælt og tók vel á móti okkur.  Enda gróðvænlegt að fá 18 kerlingar inn í búðirnar í einu haha.  Svo áttum við leið hjá Ránni (sem er pub og veitingastaður við Hafnargötu) og vertinn þar tók svona vel á móti okkur og leiddi okkur um staðinn og sagði okkur frá sögulegum staðreyndum ásamt ýmsu öðru skemmtilegu LoL  Held hann hafi verið í sveit í Geirakoti á sínum yngri árum.  Hann á ættir sínar að rekja þangað. 

Svo var haldið í Bláa Lónið og flestar fóru ofan í það og svo borðuðum við á jólahlaðborði í nýjum sal þar.  Hann er mjög flottur og var hátíðlega skreyttur og sátum við öll við hringborð sem mér finnst mun skemmtilegra heldur en að sitja við langborð.  Þannig geta allir tekið þátt í samræðunum Smile  Rosalega góður matur og alveg ágætlega merkt allt saman.  Svo hljómaði yndisleg dinnermúsík undir sem 2 ágætir menn stóðu fyrir með hljómborði og söng.  Bara frábært í alla staði og ég hlakka strax til næstu ferðar Grin

Takk fyrir mig!


Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband