Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Aldeilis góð jól...

Já við höfum haft það afar ljúft hér á bæ um jólin.  Búin að éta á okkur "gat" eða þannig sko af ýmsum kræsingum í hinum og þessum jólaboðunum.  Jólasteikin hjá pabba og mömmu slær nú öllu við, þvílíkt hnossgæti.  Fórum í hana á jóladag sko en þá voru 2 boð hjá okkur, eitt á annan og svo jólaball með kaffi og kökuhlaðborði í dag í Féló.  Agalega nice allt saman og mikið grín og mikið gaman, hahahahahahaaaa LoL

Hér á eftir gefur að líta á myndasyrpu og smá brot af því sem við höfum verið að bralla síðustu daga.

Sigrún skreytir tréð  Jólasveinar í heimsókn á aðfangadag  Jólabarnið tilbúið  Með kastalann frá okkur  Systurnar Skorrdal  Komin í jólaboð hjá ömmu og afa Selfossi  A.K. og Sibba  Búið að byggja eitt hús á jóladag  Nokkur börn í jólaboði hjá afa Helga 

Gleðilegt nýtt ár


Gleðilega jólahátíð kæru vinir nær og fjær!

Jólin jólin jólin koma brátt,
jólaskapið kemur smátt og smátt.
Snjórinn fellur flygsum í
nú fagna litlu börnin því.

Jólin jólin jólin koma brátt,
jólabörnin þvo sér hátt og lágt.
Klæðast fínu fötin í
og flétta hár og greiða.

Hæ hó og jólabjöllurnar
þær óma alls staðar
svo undur hljómfagrar.

Hæ hó og jólagjafirnar
þær eru undarlega lokkandi
svo óskaplega spennandi.

Hæ hó og jólasveinarnir
svo feikna fjörugir
og flestir gjafmildir.

Hæ hó og jólakökurnar
þær eru blátt áfram það besta sem ég fæ.


Andlát :-(

Bogga amma 

Elsku Bogga amma mín er látin.  Hennar er sárt saknað því hún var sko kjarnakona hún amma.  Hafði mikinn húmor og var léttlynd og afar barngóð.

Hún var mikil handavinnukona og það eru ófá listaverkin sem hanga á veggjum heimila okkar í fjölskyldunni.  Einnig dundaði hún sér við að hekla og prjóna og gaf oftar en ekki í skírnar-  og afmælisgjafir.

Það er okkur sem eftir lifum ómetanlegt að hafa fengið að kynnast slíkri konu því hún var yndisleg.

Guð geymi þig amma mín!  Ég mun aldrei gleyma þér Heart


Jólagjöfin HANS

Búin að finna hina fullkomnu gjöf handa herrunum í ár   

FjarstýringEf þið smellið á fjarstýringuna sjáið þið hana betur    


Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 123735

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband