Færsluflokkur: Dægurmál
19.11.2007 | 20:16
Aðgerðin tókst vel
Jæja þá er Sigrún búin í aðgerðinni sem gekk mjög vel. Hún er nú eiginlega handlama greyið eftir þetta og engar smá umbúðir sem hún er með. Það var verið að fjarlægja hnút eða "æxli" úr hendinni á henni sem hafði vaxið þar í ansi langan tíma. Þetta var kallað æxli á greiðslukvittuninni sem ég fékk en úff ég fæ mikla ónotatilfinningu við það orð Hnúturinn var sendur í ræktun og fáum við að vita niðurstöðurnar úr því á næsta mánudag þegar umbúðir verða fjarlægðar.
Ég er nú bara mjög stolt af skvísunni þar sem hún þurfti að vera fastandi og mátti því hvorki fá vott né þurrt fram yfir aðgerð. Hún fékk fyrst svona deyfikrem sem var sett á höndina á henni þar sem nálin fór svo inn og hún fann ekkert fyrir því að nálin fór inn en spurði mikið hvað verið væri að gera. Fann greinilega að eitthvað var verið að krukka þarna í en svo var nálin allt í einu komin í æðina. Svo var hún svæfð og var sofnuð á augabragði og mér bent á að fara út og svo 45 mínútum síðar var mér sagt að koma inn þar sem hún lá á vöknun og hún svaf ansi vært með súrefni og klemmu á puttanum til að fylgjast með súrefnismettun í blóðinu. Hún svaf þarna mjög vært í um klukkutíma eða þar til svæfingarlæknirinn kom og hnippti í hana og spurði hvernig henni liði ég sem hélt hún fengi nú að sofa þetta úr sér eins lengi og hún þyrfti. En jú henni leið svona la la og var pínu aum og ringluð. En það fyrsta sem hún spurði um var hvenær vagninn kæmi til hennar því hún var orðin svöng . En það var vagn með djúsi og kexi á sem við gengum framhjá þegar við komum inn. Já henni kippir í kynið sko En svo sofnaði hún aftur og svaf aftur í um klukkutíma og þá fórum við nú að tía okkur heim.
Hún var svo dugleg að hún fékk verðlaun sem var læknadót, 2 sprautur, 2 grímur og 2 hárnet. Nú vantar bara læknasloppinn og þá er hún klár í læknisleikinn
Henni líður bara vel og hefur ekki þurft nein verkjalyf ennþá a.m.k. Við förum í leikskólann á morgun
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.11.2007 | 15:15
Dagur Íslenskrar nautatungu
Höfðum allskemmtilega söngstund í leikskólanum í gær vegna dags íslenskrar tungu. Við hittumst öll og sungum saman afar þjóðleg lög og svo sungu nokkur börn einsöng við góðar undirtektir. Dóttir mín reið á vaðið með því að syngja sitt eigið lag við textann "Buxur, vesti, brók og skó" og stóð sig með prýði
Svo fór elsti árgangurinn (Sigrún þar á meðal) í Flóaskóla í "skólaheimsókn" sem er liður í því að brúa bilið milli leik- og grunnskóla hjá elsta árgangnum í leikskólanum. Þar fór hópurinn einmitt með sama texta fyrir grunnskólabörnin og kennarana. Mér skilst að þau hafi skilað því með sóma
Að því loknu fór Sigrún í fimleika sem henni finnst eitt það skemmtilegasta þessa dagana. Hún hefur nú þvílíka orku stelpan og ég veit varla hvaðan hún fær hana. Ég meina hún er bara yfirleitt aldrei þreytt á kvöldin fyrir utan gærkvöldið. Þá sátu amma Þura og afi Raggi hjá henni því við hjónin fórum að dansa Þá sofnaði skvísan bara í fanginu á ömmu sinni um hálf níuleytið en vaknaði nú stuttu eftir að við komum heim og sofnaði svo ekki aftur fyrr en að ganga 2 og ég sjálf náttúrlega orðin úrvinda af þreytu eftir vinnuvikuna og dans í 2 tíma í gærkvöld.
En já það var sem sagt síðasta kvöldið á dansnámskeiðinu í gær og við hjónin búin að læra m.a. tjútt, djæf, ræl, skotthís, vals og ég veit ekki hvað. Ótrúlega gaman og maður svoleiðis bullsvitnar við þessa skemmtilegu líkamsrækt. Mæli með svona skemmtun fyrir alla því ég held bara að ALLIR geti lært þetta fyrst við gátum það hehe.
En já bóndinn á bænum fékk sér rammíslenska nautatungu í tilefni dagsins Það var hans framlag til þessa annars ágæta þjóðlega dags.
En svo er stefnan tekin á jólahlaðborð í kvöld með vinnunni minni. Svo fer Sigrún í smá aðgerð á mánudaginn. Það á að skera í burtu smá hnút á hendinni á henni, n.k. ofholdgun eða læknirinn sem við töluðum við hélt jafnvel að þetta gæti verið aðskotahlutur en það kemur í ljós þegar hann sker þetta. Hún er búin að vera með þetta í amk eitt og hálft ár. Finnur ekki fyrir þessu en það er samt betra að láta fjarlægja svona "ofvöxt."
Langlokan búin í bili og komin tími á Cappuccino See ya
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.11.2007 | 11:00
Litli grís, litli grís hleyptu mér inn!
Já það kæmi manni ekki á óvart ef eitthvað grunsamlegt fyndist...
Ég held að við neytendur þurfum að fara að standa upp á afturlappirnar og fylgjast betur með því verði sem auglýst er í blöðum og stendur á búðarhillunum og hvort það standi sama verð á strimlinum. Svo segja þeir í afar smáu letri í blöðunum sem þeir gefa út að það geti verið um prentvillur að ræða í bæklingnum. AUÐVITAÐ kenna þeir því þá um ef einhver myndi mótmæla verðinu.
Ég finn skítalykt
Samkeppniseftirlitið gerir húsleit hjá Bónus og Krónunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
11.11.2007 | 13:23
Föröjana
Er að spá í að skella mér til Færeyja við tækifæri. Held það væri gott fyrir sálartetrið að detta í hláturskast Kemur einhver með?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.11.2007 | 23:34
Ég labbaði í bæinn...
... nei reyndar ekki alveg en ég kíkti í þessa margrómuðu TOYS R US og jaaaa ég veit ekki hvað skal segja. Leikföngin þarna eru EKKI ódýr. Áttu þau kannski ekki að vera það? En það er miiiiiikið úrval af alls kyns leikföngum og það er svo sem ágætt. Keypti auðvitað aðeins... til dæmis mjög sniðugt jóladagatal (JÁ ÉG SAGÐI JÓLADAGATAL) sem er "Pollypocket" og er svona dótadagatal. Pollypocket er svona agalega litlar dúkkur fyrir svona prinsessur eins og Sigrúnu til að leika með og í dagatalinu fylgir svona ein lítil dúkka og svo eru föt og aðrir fylgihlutir í hverjum glugga til að opna frá 1.des til 24.des. Hmmmm já það hlýtur að vera því þetta er jú svona JÓLADAGATAL. Finnst ykkur ég segja "svona" nokkuð oft???????
Nú nú nema hvað. Þar sem ég er stödd inni í TOYS R US þá er hringt í mig frá læknastöðinni í Glæsibæ og mér boðinn tími hjá henni Þórdísi skurð- og lýtalækni þann 6. des n.k. Mér fannst bara frábært að fá tíma svona fljótt hjá henni því ég hafði heyrt að það væri löng bið í brjósta-aðgerðirnar. En þetta er svo sem bara viðtal og ég veit ekkert hvað hún mun segja við mig. Vonandi get ég þó farið í uppbyggingu einhvern tímann á næsta ári. En það kemur allt í ljós eftir 6.des so stay tuned
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.11.2007 | 10:22
Æ gleymdi fyrirsögn... tillögur???
Stjörnuspáin mín fyrir daginn:
Ljón: Er tilfinningalíf þitt þjakað af skuggum og þoku? Einfaldar gjörðir geta komið á jafnvægi. Fáðu þér blund, sturtu eða göngutúr. Þá léttir til.
Dálítið skondið þar sem mér hefur liðið frekar undarlega síðustu daga. Verið extra viðkvæm og ákveðin atriði sem ýta á viðkvæma punkta hjá mér Skrítið hvernig sumir dagar geta verið.
En þetta er nú ekkert sem ferð í borgina með góðum vini lagar ekki Ætlum að skreppa í bæinn vinkonurnar og kíkja aaaaaðeins á það sem er í boði. Meira um það síðar.
Það verður líklega skrifuð ný færsla í "Átakinu" í kvöld þar sem við erum að fara að hitta Óla bestaskinn
Yfrogút
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.11.2007 | 20:19
Ég er frjáls eins og fuglinn...
... tralla lallalalalla... ég er frjáls, dum dum dum, ég er frjáls
Fór í lyf og viðtal hjá dr. Krabba í dag og hann samþykkti að ég gæti farið að koma á þriggja mánaðar fresti í kokteilinn í stað þess að koma mánaðarlega Ég er ekkert smá G L Ö Ð með þetta og finnst eins og þungu fargi af mér létt. ÚFF. Ég var nefninlega farin að kvíða fyrir því að fá beinvarnarlyfið í æð því þær þurftu orðið að reyna þrjár tilraunir til þess að finna æð sem virkaði hjá mér. Þær skruppu alltaf undan eða voru uppþornaðar. Þannig að þegar hann tilkynnti mér þetta fannst mér eins og ég svifi burt um stund
Það verður hins vegar að koma í ljós hvernig ég verð eftir u.þ.b. 2 1/2 - 3 mánuði því Zolotex sprautan sem ég er að fá til þess að hindra blæðingar og það allt er dálítið stór þegar hún er gefin í þriggja mán. skammti í stað mánaðar og aukaverkanirnar gætu þ.a.l. orðið eitthvað meiri. En það er seinni tíma vandamál og ég vonandi þoli þetta bara alveg.
Svo þarf ég að fara í beinþéttnimælingu aftur (fór fyrir svona ári síðan) til þess að sjá statusinn á beinunum og hvort það sé ekki örugglega í lagi að ég fái Aredia (beinv.lyfið) á þriggja mán. fresti. Keep my fingers krossed
Ég er sko á nokkurs konar tilraunar-meðferð sem er VONANDI að virka svona vel. Það lítur allavega allt mjög vel út í blóðprufum og ég er hress núna.
31.10.2007 | 23:22
OK. Ég fékk krabbamein...
... aðeins þrítug að aldri. Hef mest alla mína ævi verið yfir kjörþyngd, mismikið þó. Ég er eins og jójó þegar kemur að þeim þætti. Já og ég reykti sem unglingur, hætti, byrjaði aftur, hætti aftur... o.s.frv. Hef drukkið áfengi síðan ég var... ja ætla ekkert að gefa of mikið af upplýsingum hér með það. Borða rautt kjöt. Drekk sjaldan (ef nokkurn tímann) sykraða drykki. Svona gæti ég endalaust talið upp en málið er að ég þekki fuuuuuult af fólki sem hefur lifað svipuðum lífstíl og ég sem ekki hafa greinst með krabbamein. Svo þekki ég líka til fólks sem hefur lifað mjög svo heilbrigðu lífi alla sína ævi en samt fengið krabbamein. Ég meina auðvitað vilja vísindamenn reyna að komast til botns í því hvað það er sem veldur krabbameini.
Hins vegar virðist aldrei vera hægt að sanna eitt né neitt í þessum efnum. Sko ef rautt kjöt VÆRI krabbameinsvaldandi þá væri nú hægt að taka það af markaðnum er þakki?! Auðvitað er hægt að misnota öll efni en það er ekki þar með sagt að þú fáir krabbamein af því. Svo geturðu verið í kjörþyngd alla ævi, aldrei reykt, borðað það sem er kallað hollt fæði o.s.frv. en SAMT fengið krabbamein.
Er eitthvert vit í þessu???
Líkur á krabbameini aukast með þyngd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.10.2007 | 11:33
Jólakortaföndur og leikhús
Jább ekki nema 2 mánuðir til jóla og mín á fullu í undirbúningi jólanna ... nei segi svona það liggur nú ekkert á nema að ég er búin að föndra hátt í 100 jólakort. Við í leikskólanum erum nefninlega að fara í kynnisferð til Jótlands næsta vor og ætlum að halda basar í Europrise á Selfossi í næsta mánuði. Nánar auglýst síðar. En ég er sem sagt að búa til slatta af jólakortum sem ég ætla að reyna að selja þar á MJÖG SVO SANNGJÖRNU VERÐI N.B. Það verður ekkert okurverð hjá okkur sko Svo þeir sem ekki nenna eða hafa tíma til að búa til jólakortin en vilja samt senda öðruvísi jólakort til vina og ættingja ættu að kíkja við á þennan basar eftir tæpan mánuð Ýmislegt fleira verður auðvitað til sölu þar eins og geggjað gúmmulaði, sætir sokkar, vandaðir vettlingar, skemmtilegar seríur og truflaðar tehlífar En sem sagt nánar auglýst síðar.
Ég er búin að skemmta mér ágætlega í morgun við að hlusta á Simma og Jóa á Bylgjunni á meðan jólakortin fæðast. Ótrúlega vitlausir alltaf og FREKAR fyndnir. Maður kemst nú bara í gott skap við að hlusta á svona hæfilega mikla kjána í útvarpinu
Við mæðgur ætlum að fara í Hafnarfjarðarleikhúsið á morgun með Boggu og Agnesi að sjá Abbababb sýninguna. Mér skilst að þetta sé skemmtilegur söngleikur með lögum Dr. Gunna um Systu sjóræningja, Prumpulagið, Hr. rokk og fleira og ég man að við á Sæborg hlustuðum mikið á lögin fyrir 10 árum þegar ég vann þar. Úff. Leikskólastjórinn tók diskinn í gíslingu á endanum því það hljómaði varla annað í spilaranum á tímabili. Við skemmtum okkur auðvitað konunglega með börnunum við að syngja og leika prumpulagið Ég var sko ekki búin að vinna í mörg ár í leikskóla þegar þetta var hehheemm.
OUT!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
23.10.2007 | 10:39
Öll að hressast 7-9-13
Ég talaði við dr.krabba í gær og hann taldi líklegustu skýringuna vera þessi týpíska flensa sem virðist vera að ganga yfir þessa dagana. En ég taldi mig nú nokkuð heppna í gær með að vera BARA með niður en nei nei það var ekki nóg heldur komu svoleiðis spýjurnar út í gærkvöldi. Maður veit stundum ekki hvort maður á að sitja á dollunni eða krjúpa yfir hana
Sem minnir mig á einn góðan. Þegar gömlu hjónin voru að fara að eðla sig spurði karlinn spúsu sína hvort hún vildi krjúpa eða vera á bakinu. "HAAAA? ER RJÚPA Á ÞAKINU?" sagði sú gamla
En ég er sem sagt öll að hressast og stefni nú loksins á að fara að vinna á morgun. Rörið er enn á sínum stað og vonandi mun það haldast þannig. Mig klæjar nú assgoti mikið í augnkrókinn en reyni að klóra mér varlega. Stundum finnst mér eins og sé að leka úr auganu en þá er það líklega bara vindurinn eiginlega frekar fyndið.
Takk fyrir kveðjurnar kæru vinir og gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með. Hvet ykkur ÖLL eindregið til að tjá ykkur í athugasemdunum. Það er ekki flókið mál. Mér finnst skemmtilegra að vita hverjir eru að lesa og ég sé það ekki nema þið kvittið
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar