Ég er frjáls eins og fuglinn...

... tralla lallalalalla...  ég er frjáls, dum dum dum, ég er frjáls Whistling 

Fór í lyf og viðtal hjá dr. Krabba í dag og hann samþykkti að ég gæti farið að koma á þriggja mánaðar fresti í kokteilinn í stað þess að koma mánaðarlega Grin  Ég er ekkert smá G L Ö Ð með þetta og finnst eins og þungu fargi af mér létt.  ÚFF.  Ég var nefninlega farin að kvíða fyrir því að fá beinvarnarlyfið í æð því þær þurftu orðið að reyna þrjár tilraunir til þess að finna æð sem virkaði hjá mér.  Þær skruppu alltaf undan eða voru uppþornaðar.   Þannig að þegar hann tilkynnti mér þetta fannst mér eins og ég svifi burt um stund Halo 

Það verður hins vegar að koma í ljós hvernig ég verð eftir u.þ.b. 2 1/2 - 3 mánuði því Zolotex sprautan sem ég er að fá til þess að hindra blæðingar og það allt er dálítið stór þegar hún er gefin í þriggja mán. skammti í stað mánaðar og aukaverkanirnar gætu þ.a.l. orðið eitthvað meiri.  En það er seinni tíma vandamál og ég vonandi þoli þetta bara alveg. 

Svo þarf ég að fara í beinþéttnimælingu aftur (fór fyrir svona ári síðan) til þess að sjá statusinn á beinunum og hvort það sé ekki örugglega í lagi að ég fái Aredia (beinv.lyfið) á þriggja mán. fresti.  Keep my fingers krossed Smile

Ég er sko á nokkurs konar tilraunar-meðferð sem er VONANDI að virka svona vel.  Það lítur allavega allt mjög vel út í blóðprufum og ég er hress núna. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku frænka . Frábærar fréttir  vonandi gengur þessi tilraun vel . Gangi þér vel í þessu öllu saman , þú ert algör hetja mín kæra . Sjáumst og heyrumst.Þín Ko-Kolla.

Anna Kolla (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 21:22

2 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Fábært að heyra. Gangi þér vel í öllu saman

Sædís Ósk Harðardóttir, 1.11.2007 kl. 21:44

3 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Góð ertu stelpa, gangi þér allt sem allra best. kv.

Helga R. Einarsdóttir, 1.11.2007 kl. 22:20

4 identicon

Þetta eru góðar fréttir. Það er vonandi að tilraunin gangi upp og þú þurfir bara að mæta á 3ja mánaða fresti.

Kristín

Kristín (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 13:42

5 identicon

Gangi þér vel Rannveig mín ég er alveg viss um að þetta mun ganga vel hjá þér.

Emma Guðlaug Eiríksdóttir (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 16:50

6 identicon

Hæ:)  Mikið er gott að heyra þetta kæra vinkona gangi þér vel áfram

Þórlaug (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 17:52

7 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Takk elskurnar.  Ég er sannfærð um það líka.  Ég þoli þetta allt saman  

Ja það sem ekki drepur mann herðir mann bara. 

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 2.11.2007 kl. 19:58

8 identicon

hæ sæta - gaman að kíkja á síðuna þína og sjá svona góðar fréttir! húrra!

var annars að lesa eldri færslur og sá fréttina með aukna þyngd. las ekki fréttina nota bene en ...... yours truly er dæmi um 'what the fu** happened?' krabba. reyki ekki, borða hollt, alltaf í kjörþyngd. krabbamein í familíunni jú en ekki brjósta hjá móður til dæmis.
ég átti það til að fá undarlegustu spurningar þegar ég var að segja fólki að ég hefði greinst eins og: "notar þú svitalyktareyði?" ----- fífl og fáviska. eins og það hafi verið mér að kenna að ég fékk krabbamein. sorrí. verð smá pirruð hehe

gaman að heyra að það er gott í þér hljóðið. þú rokkar ;) knús, maríaerla

María Erla (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 20:32

9 identicon

Þú ert snillingur

hlakka til að sjá þig í vikunni elskan, þín S.

Sandra Dís (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 22:52

10 identicon

Frábærar fréttir, knús í sveitina.

Erla Guðfinnna (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 12:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 123858

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband