Færsluflokkur: Dægurmál
22.10.2007 | 11:41
Ég skil þetta ekki ...
... ég virðist taka í mig allar pestar sem ganga þessa dagana. Ég fékk svona líka húrrandi niðurgang um daginn (í byrjun okt.) og það gekk yfir á þremur dögum. Ég gjörsamlega hreinsaðist og gat eiginlega ekkert borðað í þrjá daga og drakk vatn og vatnsbland til skiptis en hélt því eiginlega ekki niðri nema í stutta stund. Var svo líka með hausverk dauðans og flökurt. Já þessi flensa var bara ömurleg og minnti mig hreinlega á þá líðan sem ég gekk í gegnum fyrir 2 árum þegar ég var í krabbameðferðinni. Jakk
Svo vakna ég í morgun með sömu helvítis flensuna Ja ekki sömu náttúrulega. Hin var farin í klósettið en alveg sömu einkenni. Sat á dollunni með blússandi ... you know... og hausverk og öll máttlaus á eftir.
Hvað er eiginlega að gerast í skrokknum á mér? Ég sem hef alltaf verið svo heilsuhraust. Ja fyrir utan helvítis krabbameinið en það er önnur saga. Mér er skapi næst að hafa samband við Óskar krabbalækninn minn og spyrja hann út í hvort þetta geti verið einhver fylgifiskur lyfjameðferðarinnar eða hvað??!!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.10.2007 | 16:25
Meira af kettinum
Ég er með hálfgerðan móral þessa dagana En þannig er að það er köttur hér á næsta bæ sem er læða og alveg afskaplega vingjarnleg. Hún fór að venja komur sínar hingað í fyrrasumar eftir að Þuríður og Hafsteinn voru hér í sinni árlegu sumardvöl. Þau voru að passa Sigrúnu ásamt því að ná í kýrnar út í haga og sinna öðrum skemmtilegum sveitaverkum. En einn daginn fóru þau heim að þessum bæ og fengu að skoða nokkra kettlinga sem þessi sama læða hafði eignast og þau sáu fljótlega að hún var ansi horuð greyið og virtist ekki fá nóg að eta. Það voru fleiri kettir á bænum sem ýttu henni bara út í horn þannig að hún fékk minnst af því sem köttunum var gefið úti í hlöðu. Læðan elti börnin hingað heim og þau spurðu mig hvort ég vildi gefa henni mjólk. Þau vorkenndu henni svakalega og vildu allt fyrir hana gera. Hún hændist að þeim og var hér oft part úr degi allan tímann sem þau voru hér hjá okkur. Þau bjuggu til skýli fyrir hana hér fyrir utan og við gáfum henni mjólk í dall inn í skýlið. Stundum gaf ég henni skinku og fiskafgang.
Börnin fóru svo heim til sín eftir rúma viku en kisa hélt áfram að koma hingað til að fá mjólkina sína. Ég bauð henni litlaputta og fljótlega fór hún að biðja um alla höndina Hún er ansi frek orðin en Sigrún varð auðvitað strax voða hrifin af henni. Ég hætti nú í sumar að gefa henni mjólk eða nokkurn matarbita en hún heldur áfram að koma til okkar. Nú erum við komin með kött sem læðan var nú ekki alveg að sætta sig við í fyrstu. Hún hljóp á harðaspretti í burtu í fyrsta skipti sem hún sá hann. Svo fór hún nú að færa sig nær og nær og sá nú fljótlega að þessi myndi nú ekki gera henni neitt. En ég hef aldrei viljað hleypa læðunni inn því hún á jú heima annars staðar en ég er samt með móral yfir því að hún situr hér á tröppunum og vill koma inn en ég hleypi henni ekki inn. Hún hoppar upp í húninn til þess að láta okkur vita að hún sé komin. Ótrúlegt alveg. Stundum liggur hún hér þegar við komum heim á daginn. En nú má bara Kjarkur koma inn en ekki hún. Mér finnst ég vera vond að hleypa BARA honum inn en ekki henni. Er maður ekki bilaður?
Stjörnuspá fyrir daginn í dag:
Ljón: Þú vilt virkilega geðjast þeim er standa þér næst, en ekki reyna of mikið til þess. Þegar þú fylgir sannfæringu þinni, gerirðu aðra glaða.
Skyldi þetta eiga við kettina líka???
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.10.2007 | 17:28
Aðgerðin tókst vel :)
Já augnaðgerðin sem gerð var í gær tókst bara vel Ég er búin að taka leppinn frá og þar með fór sjóræningjafílingurinn haha. En ég held svei mér þá að þetta hafi tekist betur en síðast. Ég finn ekki eins mikið fyrir rörinu núna og ég er lítið sem ekkert bólgin held ég bara. Haraldur hefur sett sverara rör núna og það er svona að svínvirka og ég þurrka mér bara ekkert á vinstra auga núna. Það er samt dálítið fyndið að sjúga upp í nefið því það kemur bara vindur í augað því þetta er allt saman opið þarna á milli Eiginlega frekar skrítið.
Ég væri nú bara til í að fara á MORGUN í sams konar aðgerð á hægra auga. Hefði náttla helst viljað að hann tæki bæði augun saman en það er víst aldrei í boði.
Ég þarf nú samt að taka því rólega næstu daga og bera í mig sýkladrepandi smyrsl 3x á dag og þegar það er komið í augað sé ég ekkert fyrir móðu og þykku smyrsli sem smyrst um augað og er bara ótrúlega lengi að fara úr þannig að ég get eiginlega ekkert gert... má ekki fara strax að vinna aftur... ætla EKKI að setja í þvottavél alveg strax (eins og síðast)... reyni að liggja eða sitja og hlusta á eitthvað merkilegt í útvarpinu... eða með kveikt á sjónvarpinu og horfi í gegnum móðuna miklu og hlusta... Sigrún er hjá ömmu og afa í bústaðnum... Stebbi í vinnunni og svo í skólanum á eftir (kemur ekki heim á milli)... Svava og börnin komu þó áðan í heimsókn og það var voða gaman Hún Svava mín tók úr vélinni fyrir mig og setti í hana aftur FULLAN vask af leirtaui. TAKK SVAVA MÍN
Ég er rétt farin að sjá með báðum augum aftur þegar kemur að smurningu á ný en eftir þennan dag eru bara 6 eftir
Veriði hlæl að hlinni
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.10.2007 | 08:42
Little trip to Heaven vs. Köld slóð
Prinsessan á bænum er farin í orlof til ömmu og afa upp í sumarbústað. Hún tók fram ferðatöskuna sína í gær og fann ýmislegt nytsamlegt til að taka með sér. Fullt af dúkkufötum og bleyjum á dúkkurnar ef þær skyldu nú kúka og svo auðvitað ferðaDVD spilarann og fuuuuult af myndum og geisladiskum til að hlusta á. Hún var voða spennt og ekki síst fyrir þær sakir að nú átti hún að fá að sofa í efri koju í fyrsta sinn Og það er náttúrulega B A R A gaman.
En við hjónin skelltum okkur á myndbandaleigu í gær því það var algjör letidagur eftir að dóttirin var farin í orlofið sitt. Við tókum 2 íslenskar myndir, Köld slóð með Þresti Leó og Elvu Ósk ofl. og svo Little Trip to Heaven. Og svei mér þá ef mér fannst ekki Köld slóð bara betri. Hún var mjög spennandi og mér fannst söguþráðurinn trúverðugur og skemmtilegur. Ég sá allavega ekki fyrir hvernig hún myndi enda... En Little trip var svo sem líka góð. Bara á annan hátt. við erum örugglega síðustu Íslendingarnir í dalnum til að sjá þessar myndir. A.m.k. Little trip en EF það er einhver þarna úti sem á eftir að sjá þær þá mæli ég 200% með báðum þessum myndum. Þær eru fín afþreying
En nú er komið að augnaðgerð nr. 2 hjá mér á morgun. Ég er að fara í bæinn núna í innskrift (undirbúning fyrir aðg.) og nú er bara að krossa fingur og vona það besta. Mér skilst að Haraldur ætli að setja öðruvísi rör en síðast og það verður með aðeins boga á núna. Þið munið kannski að hitt hét Lester Jones en nú er spurning um að setja sig í Bridget Jones gírinn og skella sér í ömmunærbuxurnar
Best að hleypa kettinum út. Hann mjálmar og mjálmar hér við lappirnar á mér og nuddar sér upp við þær
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
6.10.2007 | 23:22
Að eignast kött...
... er bara gaman. Það er komin vika síðan við tókum köttinn að okkur fyrir systur mína og hennar fylgifiska en þetta er geldur fress, 1 1/2 árs og er hálfur Persi. Algjör eðalköttur, mjög geðgóður og svo loðinn og mikið krútt í bala.
Það er ótrúlega gaman að fylgjast með hegðun hans og hvernig hún breytist smátt og smátt eftir því sem hann verður öruggari hér hjá okkur. Hann var auðvitað mjög rólegur og var um sig fyrstu dagana og vildi svo sem lítið við okkur "tala." Við settum rúmið hans og kassann og matinn í kjallarann og hann borðaði nú ekkert fyrstu klukkutímana. Veit svo sem ekkert hvort það telst eðlilegt eða ekki þar sem ég hef aldrei séð um kött fyrr og veit lítið sem ekkert um þá En við höfðum samt opið upp til okkar þannig að hann gæti komið ef hann vildi.
Fyrsta daginn kom hann nánast ekkert upp. Lá mikið í rúminu sínu og stökk svo í burtu ef við nálguðumst. Daginn eftir kíkti hann aðeins upp. Varlega þó. Þriðja daginn var hann nú til í að vera meira uppi hjá okkur. Hann fór nánast beint upp í herbergi Sigrúnar og lá þar ofan á rúmteppinu hennar hálfan daginn. Var aðeins farinn að liggja kyrr þegar ég nálgaðist hann. Svo fór ég nú að reyna að klóra honum og klappa og þá varð hann ánægður og malaði hátt. Núna stekkur hann í stigann um leið og við opnum kjallaradyrnar og kemur strax upp til okkar og gengur sposkur í kringum okkur, er farinn að nudda sér aðeins upp við lappirnar á okkur og það er dálítið fyndið. Eins og honum sé farið að þykja vænt um okkur. Það hlýtur bara að vera því ég finn að væntumþykjan er allavega til staðar hjá okkur
Mér var ráðlagt að bíða í nokkra daga með að hleypa honum út þannig að ég hleypti honum út á fjórða degi. Það var rok og rigning en hann stökk út og við Sigrún fórum aðeins með honum. Þetta var svona eins og þegar kúnum er hleypt út á vorin, stökk upp í loftið og hann var farinn að kanna umhverfið sitt og við ákváðum að fara bara inn. Svo kom myrkur og við reyndum að kalla í hann en sáum hann hvergi. Ég hélt hann væri týndur greyið og myndi bara ekkert rata á nýja heimilið sitt En ekki aldeilis. Kl. 9 um kvöldið heyrum við mjálm við kjallaradyrnar. Þá er hann kominn heim blessaður. Ég hafði frétt af honum í vettvangskönnun í fjósinu hjá tengdó á mjaltatíma en auðvitað rataði hann aftur heim snillingurinn. Síðan er hann búinn að fara þó nokkuð oft út og kemur alltaf aftur eins og Marteinn Mosdal
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
1.10.2007 | 19:57
Októbermánuður helgaður brjóstakrabbameini
Í októbermánuði verður vakin athygli á brjóstakrabbameini hér á landi, áttunda árið í röð, frætt um sjúkdóminn og konur hvattar til að nýta sér boð Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins um röntgenmyndatöku. Þetta er hluti af alþjóðlegu árveknisátaki, upphaflega að frumkvæði Estée Lauder, en bleik slaufa er tákn átaksins.
Fyrstu dagana í október verða Viðeyjarstofa og Viðeyjarkirkja í Reykjavík lýstar upp í bleikum lit, á vegum Orkuveitu Reykjavíkur. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri mun kveikja á lýsingunni mánudaginn 1. október um kl. 19.30. Hallgrímskirkja var lýst upp í október 2001, Perlan 2002, Stjórnarráðshúsið 2003, Ráðhúsið í Reykjavík 2004, Bessastaðir 2005 og Höfði 2006. Bleik lýsing verður einnig sýnileg annars staðar á landinu í byrjun október, m.a. á Akranesi, á Grundarfirði, í Stykkishólmi, á Ísafirði og á Húsavík.
Nú í október verður lögð áhersla á að selja bleikar slaufur og verður afraksturinn notaður til að kaupa nýtt ómtæki fyrir Leitarstöð Krabbameinsfélagsins. Ómtækið verður notað til nánari greiningar eftir brjóstamyndatökur og við frumrannsókn á brjóstum hjá ungum konum með einkenni. Slaufurnar eru til sölu á mörg hundruð sölustöðum hjá samstarfsaðilum Krabbameinsfélagsins.
Ár hvert greinast um 175 íslenskar konur með brjóstakrabbamein. Samkvæmt útreikningum frá Krabbameinsskránni getur tíunda hver kona búist við að fá brjóstakrabbamein. Fjöldi nýrra tilfella hefur verið að aukast en lífshorfurnar hafa einnig batnað mikið. Um helmingur kvenna sem greindust með brjóstakrabbamein fyrir fjörutíu árum lifðu í fimm ár eða lengur en nú geta um 90% vænst þess að lifa svo lengi. Nú eru á lífi um 2000 konur sem fengið hafa brjóstakrabbamein.
Hér á landi eru konur boðaðar til brjóstamyndatöku annað hvert ár á aldrinum frá 40 til 69 ára. Konur sem eru eldri eru einnig velkomnar og geta pantað myndatöku. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að með því að taka röntgenmyndir reglulega af brjóstum kvenna má lækka dánartíðni verulega vegna krabbameins í brjóstum.
Ýmsar gagnlegar upplýsingar um brjóstakrabbamein og árveknisátakið má finna á vefnum www.bleikaslaufan.is
(tekið af vef krabbameinsfélagsins www.krabb.is)
Þið sjáið myndir af nýjasta fjölskyldumeðlimnum hér á síðunni. Hann kemur frá systur minni og er sko mesta dúllan. Nú höfum við sveitafólkið tekið hann í fóstur
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.9.2007 | 11:08
Nýr fjölskyldumeðlimur
Nýr fjölskyldumeðlimur hefur hreiðrað um sig í bænum okkar. Þeir allra forvitnustu verða hreinlega að koma í heimsókn til að berja hann augum
Ég fór alla leið yfir fjallið til að ná í hann og hann er algjört KRÚTT!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.9.2007 | 22:45
Frestað!
Ég skellti mér í bæinn um daginn með múttu og sá þessa stóla og leist bara vel á. Ég ákvað (eftir ráðleggingar múttu gömlu ) að fá mér ljósa stóla til þess að létta nú aðeins á eldhúsinu. Vala Matt hefði nú örugglega verið sammála okkur í valinu á nýju stólunum get ég sagt ykkur Þeir eru með frekar háu baki og ljómandi gott að sitja í þeim. Svo verið nú enn velkomnari en áður í kaffi í Vorsabæinn að máta stólana. En það er ekkert víst að þið fáið mikið annað en gulrót og saltstöng með'ðí því stólarnir kostuðu sitt
Aðrar fréttir eru þær helstar að það er búið að fresta aðgerðinni hjá mér. Surprise surprise! Ég fer í hana 16. okt í stað 2.okt. En jæja hvað er hálfur mánuður til eða frá þegar á að reyna að laga mann fyrir lífstíð
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
20.9.2007 | 18:47
TAKA 2
Jæja þá er búið að ákveða augnaðgerð að nýju hjá mér. Nú á að reyna að setja öðruvísi rör í augnkrókinn þann 2. október Ég verð nú bara að viðurkenna það að ég er nokkuð spennt að sjá hvort það virki eitthvað betur en síðast en eins og þið kannski flest vitið þá var reynt að setja í mig rör í maí á þessu ári en það poppaði upp úr aðeins viku síðar (minnir mig ). Lester Jones hét rörið en ætli ég verði ekki bara Bridget Jones núna í flottu ömmunærbuxunum ALL BY MYSELF hehe.
Einn góður í lokin sem Berglind sendi mér.
Hot and Cold Sex
After his exam the doctor asked the elderly man:
'You appear to be in good health. Do you have any medical concerns you would like to
ask me about?'
'In fact, I do,' said the old man. 'After I have sex I am usually cold and chilly,
and then, after I have sex with her the second time, I am usually hot and sweaty.'
Later, after examining his elderly wife, the doctor said:
'Everything appears to be fine. Do you have any medical concerns that you would like
to discuss with me?' She replied that she had no questions or concerns.
The doctor then said to her:
'Your husband had an unusual concern. He claims that he is usually cold and chilly after
having sex with you the first time, and then hot and sweaty after the second time. Do you know why?'
'Oh that crazy old fart,' she replied. 'That's because the first time is usually in January and the second time is in August.'
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.9.2007 | 15:32
Föndrað á laugardegi
Í rigningunni í gær settist prinsessan niður með skæri og liti og föndraði þessa fínu grímu og yfirvaraskegg úr Cheerios pakka.
Minni enn á WC pappírinn og eldhúsrúllurnar.
Svo hef ég stofnað nýtt blogg hér og til þess að komast inn á það þarftu lykilorð. Ef þú vilt skoða það þá er það hér til vinstri á þessari síðu undir EFNI. Þar velurðu Bloggin mín og það heitir ÁTAKIÐ. Sendu mér bara e-mail ef þú vilt vita leyniorðið Það munu verða aðeins öðruvísi færslur þar en hér.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar