18.12.2007 | 22:45
Aðfangadagur jóla árið 1998
24 ára gömul stúlka bjó í heimahúsum og var að undirbúa jólin með foreldrum sínum. Hún var ástfangin af 26 ára gömlum sveitapilti og honum skaut oft upp í kollinn á henni þennan daginn sem fyrr. Það var búið að skreyta jólatréð, verið var að útbúa árlega hamborgarhrygginn og verið að laga sósuna með... rauðkálið sett í skál, maískornin á sínum stað... þá var bankað. Ástfangna stúlkan fór til dyra og þar stóð hann prinsinn á hvíta "hestinum" (sem var jeppi í þessu tilfelli) og hann stóð þarna í kuldanum með pakka í hendi. Stóran og flottan pakka. Stúlkan bauð prinsinum inn en hann var á hraðferð heim í sveitina til þess að geta mjólkað kýrnar með föður sínum. Jæja stúlkan tók við pakkanum og prinsinn hélt sína leið. Hún hélt áfram að undirbúa jólin. Fór og fann til fötin sín... og fattaði þá allt í einu. Hún hafði gleymt að láta prinsinn hafa sinn pakka
Og klukkan var að verða 6. Hún var vön að borða kl. 6 með sínu fólki. En það ræddi ekki um annað en að skutlast með pakkann í sveitina til prinsins. Hún hentist af stað upp í bíl foreldra sinna, með pakkann í framsætinu, og af stað. Bankaði uppá í sveitinni en þar kom móðir hans til dyra. Prinsinn var í fjósinu. Móðirin tók við pakkanum. Stúlkan hélt sína leið.
Hún ók nú á löglegum hraða (eins og áður) en klukkan sló 6 á leiðinni til baka. Og það snjóaði. Ekta hvítum, stórum flygsum. Þetta var sko alvöru jólasnjór. Það var ekki um villst að það voru að koma jól. Stúlkan var ánægð með að hafa komið pakkanum til skila fyrir jól
Fjölskyldan settist að borðum í seinna lagi þessi jólin en allt fór vel. Ekki man stúlkan lengur hvað var í þessum fínu pökkum
16.12.2007 | 14:19
Fimleikasýning og afmæli
Fór á svakalega flotta og skemmtilega fimleikasýningu í gær í íþróttahúsi Vallaskóla (heitir það ekki það annars?) og þemað í ár var Konungur ljónanna. Guðfinna Gunnars las af sinni alkunnu snilld söguna og svo komu hver hópurinn á fætur öðrum með rosalega flott atriði. Sigrún var í ljónahópnum (þau voru öll í brúnu) og hennar hópur gerði m.a. dans og ýmsar æfingar á gólfi. Gekk voða vel og var auðvitað mjög flott Eldri hóparnir eru orðin svo flink að maður gapti bara af undrun. Þvílíku flikk flökkin og heljarstökkin voru ótrúleg. Og meira að segja 8 ára krakkarnir með frábæra takta. Vona að mín verði svona áhugasöm áfram eins og hún hefur verið og muni æfa fimleika um aldur og ævi
Svo var hún Linda okkar heiðruð fyrir frábæran árangur í fimleikum í gegnum árin. Hún er snillingur stelpan og hún vinnur hjá okkur í Krakkaborg og sér um alla leikfimina þar og krakkarnir ekkert smá áhugasöm og ánægð. Þau hlakka alltaf jafn mikið til að fara í salinn með Lindu hún tekur þau í allskyns leiki og æfingar og þrautabrautir og hvað þetta heitir allt. Við starfsfólkið erum náttúrlega búin að læra fullt af henni
Nú svo eftir sýninguna fórum við í afmæliskaffi til mömmu. Hún átti afmæli í gær og bauð upp á kræsingar að vanda. Takk fyrir það mamma mín. Og pabbi líka því hann hjálpaði nú til við ýmislegt
Jólakortaskrifin ganga vel og nú skal haldið áfram... á jólunum er gleði og gaman fúmm fúmm fúmm...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.12.2007 | 03:06
Hér blikka ljós og sjónvarpið dottið út
Já það er snarvitlaust veður hér í sveitinni í þessum "töluðu" orðum. Sjónvarpið datt út áðan í miðjum CSI Miami þætti. Arrrrggghh. Ég get ekki sofið í þessu brjálaða roki. Húsið hristist svo að það liggur við að það fjúki um koll. Skyldi úlfurinn vera mættur?
Bóndinn á bænum farinn í útkall á Stokkseyri. Þakplötur að fjúka en ekki hvað?!
Prinsessan á bænum steinsefur. Það tók nú dálítinn tíma að sofna í kvöld fyrir spenningi rauðklæddra sveina sem sveima um þessa dagana. Hún bara gat ekki beðið með að vakna og kíkja í skóinn í fyrramálið sagði hún þegar hún kom niður í annað sinn í kvöld Nú skilur hún eftir smákökur í skónum handa öllum jólasveinunum sem eiga að koma hér við á hverju kvöldi til jóla. Stekkjastaur þakkaði fyrir sig með bréfi síðustu nótt og fannst kakan afar ljúffeng
Hún segist ætla að skilja eftir bjúga handa Bjúgnakræki þegar hann kemur
Veit ekki hvernig lyktin af því verður þegar hann mætir á svæðið.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.12.2007 | 23:00
Var að enda við...
... að baka súkkulaðibitakökur. Nammi namm þær eru ógisslega góðar þótt ég segi sjálf frá Hver ætlar að verða fyrstur í kaffi og smákökur? Ja eða alvöru heitt súkkulaði. Pabbi var að kenna mér einfalda aðferð við að útbúa ALVÖRU súkkulaði í bolla
Jaaahá hann pabbi lumar á ýmsum góðum ráðum get ég sagt ykkur. Þegar ég eldaði hamborgarhrygg í fyrsta sinn fyrir bráðum 10 árum síðan þá var ég í beinni útsendingu við pabba þegar ég lagaði sósuna. Og hún varð bara helvíti góð og næstum alveg eins og hjá honum sko
En nú líður að því að fyrsti jólasveinninn komi til byggða. Þeir tóku nú forskot á sæluna blessaðir á laugardaginn og fórum við og hittum þá litla fjölskyldan. Við löbbuðum í kuldanum með Svövu og Reyni frá Suðurenginu og börnin voru alveg hreint vitlaus í að tala við sveinana. Sigrún leitaði að Þvörusleiki út um allt og spurði hvern sveininn á fætur öðrum hvort hann væri Þvörusleikir eða hvort hann vissi um hann Síðasti sveinninn sem hún hitti var svo loksins Þvörusleikir hehe. Eitthvað annað en mamma hennar hér um árið. Say no more!!!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.12.2007 | 11:01
Með næturgest
Vorum með næturgest í nótt Við Sigrún náðum í Reyni Örn í leikskólann í gær eftir fimleikana og það var mikil spenna í gangi. Reynir Örn ætlaði nefninlega að gista hjá okkur í nótt. Sem hann gerði og gekk það glimrandi vel. Þau fengu hér súrmjólk á 2 tíma fresti í gær og pylsu í kvöldmatinn. Svo léku þau sér eins og bestu vinum sæmir og kom bara ekkert upp á
Hann kom með Hulk og Spiderman með sér og svo var hún með Polly Pocket dúkkurnar sínar og þetta passaði allt mjög vel saman
Svo var farið í Playmo í sjóræningjaleik og litaðar jólamyndir inn á milli. Þau voru svo bæði sofnuð um 10 leytið í gærkvöld orðin úrvinda af þreytu og þá búin að horfa á Dalalíf og hlusta á Karíus og Baktus
Nú svo var rice and shine rétt fyrir 7 í morgun og það er nú nokkuð fyrr en ég er vön. Náði nú að henda mér aðeins upp í rúm aftur eftir að hafa græjað morgunmat í krakkana og kveikja á barnaefninu. Og finna til smá nammi í poka auðvitað
Svo ætlum við að kíkja á jólasveinana sem eru að koma úr Ingólfsfjalli um 4 leytið í dag. Spennandi
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar