2.12.2007 | 10:46
Glerlist, gallerí og Bláa lónið
Þá er búið að redda nokkrum jólagjöfum fyrir þetta árið bara um 15 eftir eða svo
En Menningarferð Kvenfélags Gaulverjabæjarhrepps (hins forna) tókst með eindæmum vel Alltaf gaman að fara í svona ferðir í svona líka skemmtilegum félagsskap. Kellurnar eru alveg frábærar og bara spurning um hvenær ég geng formlega í kvenfélagið
En við fórum sem sagt Krýsuvíkurleiðina suður til Keflavíkur, með stoppi í Strandakirkju sem er voða lítil og sæt sveitakirkja og það átti m.a. að vera gifting þar í gær, svo stoppuðum við við brúna á milli evrópu og ameríku (gengum á hana) og fengum ekta amerískt góðgæti á eftir, kleinuhring og litla kók Nú svo fórum við til Keflavíkur og byrjuðum á því að fara í glervinnustofu sem mæðgin eiga og eru nýflutt með til Íslands. Þau ráku þetta í 13 ár í Danmörku og búa til mjög krúttlega hluti. Sáum m.a. fugl búinn til sem var mjög gaman. Glerið er unnið við 1500° hita
Svo kíktum við í hin og þessi gallerý og kertaverksmiðju á staðnum og í nokkrar aðrar búðir líka. Mikið af flottum búðum í Keflavík og fólkið voða indælt og tók vel á móti okkur. Enda gróðvænlegt að fá 18 kerlingar inn í búðirnar í einu haha. Svo áttum við leið hjá Ránni (sem er pub og veitingastaður við Hafnargötu) og vertinn þar tók svona vel á móti okkur og leiddi okkur um staðinn og sagði okkur frá sögulegum staðreyndum ásamt ýmsu öðru skemmtilegu
Held hann hafi verið í sveit í Geirakoti á sínum yngri árum. Hann á ættir sínar að rekja þangað.
Svo var haldið í Bláa Lónið og flestar fóru ofan í það og svo borðuðum við á jólahlaðborði í nýjum sal þar. Hann er mjög flottur og var hátíðlega skreyttur og sátum við öll við hringborð sem mér finnst mun skemmtilegra heldur en að sitja við langborð. Þannig geta allir tekið þátt í samræðunum Rosalega góður matur og alveg ágætlega merkt allt saman. Svo hljómaði yndisleg dinnermúsík undir sem 2 ágætir menn stóðu fyrir með hljómborði og söng. Bara frábært í alla staði og ég hlakka strax til næstu ferðar
Takk fyrir mig!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.11.2007 | 23:03
Laugardagurinn...
... spennandi framundan. Hin árlega kvennaferð (hvar er kvennasveitin sem var auglýst hér! Þið auglýsið eitt og annað HA! haha muniði) Kvenfélags Gaulverjabæjarhrepps og nú á að fara suður með sjó. Farin verður Krísuvíkurleiðin og stoppað í Strandakirkju, farið á glerblásturslistaverkavinnustofu... eitthvað svoleiðis, og á Duus hús eða hvað það heitir og svo í Bláa Lónið og endað á að borða þar á jólahlaðborði
Það verður nú ekki leiðinlegt en þó örugglega fátt sem toppar ferðina sem farin var í fyrra til Heidelberg á alla jólamarkaðina og Glühweinið maður, úlla la. Það var náttúrlega B A R A snilldin ein.
En ég get ekki sleppt því að minnast á hana Kolbrúnu Halldórsdóttur Er hún kosin á þing fyrir að berjast fyrir þessum líka "mikilvæga" málaflokki að breyta litunum á fatnaði kornabarnanna á LSH??? Ég bara spyr. Eru ekki til mikilvægari málefni að berjast fyrir eins og t.d. tryggingamálin í þjóðfélaginu. Hvert er veröldin að fara?! Ég held hún Kolbrún ætti nú bara að snúa sér aftur að farsímunum... í augnablikinu getur verið slökkt á farsímanum, hann utan þjónustusvæðis eða allar rásir uppteknar. Gjörið svo vel og reynið síðar! Ég held nú bara að hún ætti að reyna síðar kellan eða bara sleppa því alfarið ef þetta verða aðalbaráttumálin. Já sveiattan skítalykt! Og hana nú
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.11.2007 | 10:14
JA HÉRNA HÉR!!!
Frétt tekin af mbl.is:
Í nýrri verslun Hagkaupa í Holtagörðum er sérstakt pláss ætlað körlum meðan konurnar kaupa inn fyrir heimilið. Í plássinu eru fjögur sæti og stórt sjónvarpstæki, þar sem boðið verður upp á sýningar frá ensku knattspyrnunni. Einnig stendur til að tengja Playstation-leikjatölvu viðtækið, til að stytta karlpeningnum stundirnar.
Þetta er bara alger snilld," sagði Finnur Freyr Harðarson, örþreyttur viðskiptavinur Hagkaupa, í gær aðspurður um ágæti athvarfsins. Það eina sem vantar er að hér sé bjór í boði yfir enska boltanum. Að vísu veit ég ekki hvort ég nenni að koma hingað til að versla með konunni, því ég tók þátt í að byggja þetta húsnæði."
Sóley Tómasdóttir, formaður mannréttindanefndar Reykjavíkurborgar og róttækur femínisti, segist hissa á þessari þjónustu Hagkaupa. Mér finnst þetta gamaldags viðhorf til kynjanna. Það er ótrúlegt að jafn framsækiðfyrirtæki og Hagkaup er skuli ekki átta sig á því að það eru bæði kyn sem bera ábyrgð á innkaupum fjölskyldunnar."
Nú spyr ég bara: HVAR ERU SNYRTISTOFURNAR Í BÍLA- OG VERKFÆRAVERSLUNUNUM???????
Hvað ætli gerist ef bæði hjónin/parið sem verslar inn fílar enska boltann? Rifist og slegist um það hvort þeirra á að setjast í sófann fína eða er konum kannski bannaður aðgangur í herbergið?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.11.2007 | 17:51
Mánuður til jóla
Jæja þá er ekki nema mánuður til jóla og ég ætla að taka fyrsta jólaskrautið fram á morgun Set líklega hressan jóladisk í græjurnar og þurrka af og svona og skreyti svo hús með greinum grænum - fa la la la la la la la ... svo gleði ríkja skal í bænum - fa la la la la la la la la. Já já það held ég núh!
Veit ekki alveg hvað er efst á óskalistanum hjá mér þessi jólin. Alla vega ekki diskur með sömu lögunum og ég á fyrir Var að spá í að tuða dálítið yfir því að það er alltaf sama liðið að gefa út einhverja diska ... og sömu lögin svo sem gefin út með sinn hvorum flytjandanum
ég fæ gjörsamlega ógleði af þessu. En ég nenni samt eiginlega ekki að tuða yfir því. Kallast þetta tuð kannski???
En þú lesandi góður veist örugglega um hvað ég er að tala. Ég meina hvað ætli séu margir búnir að syngja "til eru fræ" eða álíka ódauðleg lög? Ég meina fínt lag og allt en öllu er hægt að ofgera. Come on!
Jú ætla að halda tuðinu aðeins áfram hérna fyrst ég er komin í gang. Hvað er með þetta litla land okkar hérna. Aaaalltaf sama fólkið í viðtölum í fjölmiðlunum okkar. Oooohhh þetta var svo mikill örlagadagur þú veist... æi nei. Ég er hætt!
Er annars góð bara. Ætla að fara skella nautasteikinni á grillið og opna rauðvínið. Dekurkvöld í kvöld. Ostakaka með ferskum berjum í eftirrétt. Ú je! Yfir og út!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.11.2007 | 21:18
J Ó L A B A S A R ~ J Ó L A B A S A R
Við í leikskólanum Krakkaborg verðum með BASAR í Europris á Selfossi eftir hádegi á laugardag 24.nóvember. Þar verður ýmislegt handverk til sölu til styrktar kynnisferðar okkar til Jótlands næsta vor. Þessi jólakort, tehlífar, vettlingar, S Ö R U R á góðu verði og alveg unaðs góðar, ummm nammi namm og ýmislegt annað nytsamlegt og bragðgott. Nýsteiktar K L E I N U R verða til sölu ásamt fleiru frábæru bakkelsi.
Endilega kíktu við. Það kostar ekkert
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar