Hér blikka ljós og sjónvarpið dottið út

Já það er snarvitlaust veður hér í sveitinni í þessum "töluðu" orðum.  Sjónvarpið datt út áðan í miðjum CSI Miami þætti.  Arrrrggghh.  Ég get ekki sofið í þessu brjálaða roki.  Húsið hristist svo að það liggur við að það fjúki um koll.  Skyldi úlfurinn vera mættur? Gasp 

Bóndinn á bænum farinn í útkall á Stokkseyri.  Þakplötur að fjúka en ekki hvað?!

Prinsessan á bænum steinsefur.  Það tók nú dálítinn tíma að sofna í kvöld fyrir spenningi rauðklæddra sveina sem sveima um þessa dagana.  Hún bara gat ekki beðið með að vakna og kíkja í skóinn í fyrramálið sagði hún þegar hún kom niður í annað sinn í kvöld GetLost  Nú skilur hún eftir smákökur í skónum handa öllum jólasveinunum sem eiga að koma hér við á hverju kvöldi til jóla.  Stekkjastaur þakkaði fyrir sig með bréfi síðustu nótt og fannst kakan afar ljúffeng Smile  Hún segist ætla að skilja eftir bjúga handa Bjúgnakræki þegar hann kemur Undecided  Veit ekki hvernig lyktin af því verður þegar hann mætir á svæðið. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl frænka , já þetta er nú meira óveðrið hvað eftir annað á ekki að vera snjór og frost á þessum árstíma ég hélt það, vona nú að þessu fari að linna. Merkilegt hvað jólasveinarnir eru duglegir að böðlast áfram í þessu veðri til að gefa í alla þessa skó, en þeir eru nú ýmsu vanir blessaðir. Vona að þú sofir nú í nótt þrátt fyrir slæma veðurspá. Sjáumst vonandi fljótt , kanski á laugardaginn í afmæli!!!!!!!hver veit. Kveðja Ko-Kolla.

Anna Kolla (IP-tala skráð) 13.12.2007 kl. 22:04

2 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Já Ko-Kolla ég ÆTLA mér sko að sofa betur og lengur í nótt   Verð alveg ómöguleg ef ég missi úr svefn 2 nætur í röð.  Og já við sjáumst á laugardaginn.  Ætlaðrðu kannski að kíkja á fimleikasýningu litlu frænku kl. 10.30 sama dag???

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 13.12.2007 kl. 22:33

3 identicon

Já tek undir með ykkur þetta er ekki nokkur hemja hvernig þetta veður er ætli þetta séu gróðurhúsaáhrif? Maður spyr sig. Gæti trúað að það hvíni í, vona bara að leifarnar af hjólhýsinu í Ásgarði lendi ekki á glugganum hjá þér.....Bestu kveðjur í sveitina, þar er nú alltaf jólalegast. Þín nafna.

Rannveig Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 14.12.2007 kl. 14:51

4 identicon

Sigrún mín hugulsöm!   þeir eru örugglega þreyttir og svangir greyin þessir jólasveinar.  Já það fer nú að fjúka í mann bara í essu rokrassgat......hehe...er ekki best að hafa það bara notalegt inni og hjúfra sig að imbanum eða nei rafmagnið fór náttlega jæja en eigið góða helgi eskurnar og bestu kveðjur til Sigrúnar fimleikaskvísu góða skemmtun á morgun á sýningunni.  Knús Svava  

svava (IP-tala skráð) 14.12.2007 kl. 22:16

5 identicon

Já SÆLL  þetta rok er að gera mann klikk, húsfreyjan og húsbóndinn á mínum bæ er endalaust upp í stiga að laga jólaséríuna á kofanum, skipta um perur og festa, já kæri jóli er ekki nóg komið af þessu roki?????  En sæl væna gott að fylgjast með ykkur og nú styttist í heimsókn í sveitina, allt á leiðinni.  Hafið það sem allra best kæru vinir

Kveðja af Hafnarbergi 12A, Anna og börn

Anna Kristín (IP-tala skráð) 15.12.2007 kl. 19:31

6 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

já þetta var ekkert smá flott sýning, ég á eiginlega ekki til orð yfir skipulagi og hvað þær eru færar stelpurnar.

Sædís Ósk Harðardóttir, 18.12.2007 kl. 09:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 123811

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband