2.1.2008 | 17:01
Á árinu 2007...
... var margt brallað hjá okkur litlu fjölskyldunni. Við keyptum okkur fellihýsi og lögðum af stað í leiðangur síðasta sumar. Fórum m.a. á Akureyri á 17.júní, á Snæfellsnesið, við Langavatn á ættarmót, í Húnavatnssýsluna, Þjórsárdalinn um Verslunarmannahelgina... já og í laugardalinn ekki má gleyma því. Fyrsta útilegan okkar í nýja fellihýsinu var í Laugardalnum Vorum þar innan um fullt af útlendingum og tókum rölt í gamla hverfinu okkar því ég bjó nú einu sinni á Laugarnesveginum.
Á árinu fór ég líka í 2 augnaðgerðir. Sú fyrri sem gerð var rétt fyrir páska heppnaðist ekki nógu vel þannig að önnur var gerð í október og heppnaðist ljómandi vel. Rörið sem sett var í vinstra augað helst á sínum stað og virkar eins og það á að gera. Vonast ég til að hægra augað verði tekið í kringum páskana nú í mars þá losna ég væntanlega alveg við bréfþurrkurnar
Við fórum ekkert til útlanda á síðasta ári en munum væntanlega öll bæta úr því þegar við förum til Kanarí í febrúar Einnig fer ég í kynnisferð á vegum leikskólans í apríl til Danmerkur og svo er jafnvel enn ein ferðin á planinu með haustinu... nánar um það síðar.
Ég hélt áfram að fara 1x í mánuði á Landsann í lyf, eitt í æð og eitt sprautað undir húðina. Núna fer ég á þriggja mán. fresti og vonast ég til að ég fái að halda því. Ég fer í beinþéttnimælingu nú í janúar og þá kemur í ljós hvort ég þurfi að halda áfram á beinstyrkingarlyfinu.
Svo tókum við að okkur eitt stykki kött. Hann er yndislegur og algjör kelirófa og það gengur mjög vel með hann. Stækkar og stækkar... á alla kanta.
Árið 2007 var okkur á heimilinu nokkuð gott myndi ég segja. Vorum öll hraust og hress og það er nú fyrir mestu ekki satt?!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.12.2007 | 21:01
G L E Ð I L E G T * N Ý T T * Á R
Gleðilegt ár kæru vinir.
Farið gætilega með flugeldana um áramótin.
Og gangið hægt um gleðinnar dyr.
SKÁL!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
28.12.2007 | 17:10
Komnar inn jólamyndir
Við hér í sveitinni erum búin að hafa það rosalega gott um jólahátíðina. Við Sigrún vorum nú í náttfötunum langt framyfir hádegi og lágum uppi í rúmi og hofðum á Mr. Bean´s Holiday. Ótrúlega fyndin mynd og mikið hlegið
Svo er ég búin að liggja í kaffinu því við fengum Senseo kaffivél í jólagjöf Það er sterkt morgunkaffi hér alla morgna núna og svo fleiri og fleiri bollar yfir daginn. Ég er komin með útstæð augu og stjörf af kaffidrykkju
hehehe. Nei nei ekki alveg svo slæmt en GOTT er kaffið, mmmmm. Maður kann sér nú hóf í kaffinu sem á öðrum sviðum
Sigrún fékk náttúrlega alveg fuuuullt af pökkum, nokkrar litlar dúkkur og fylgihluti og bíl fyrir herlegheitin (Polly Pocket), ferðatösku og Bratz dúkku með, allskonar liti, vettlinga, Stellu í framboði, Ég get lesið (bók með stafaböngsum), teppi, náttföt, peysu og ýmislegt fleira. Hún er búin að vera í miklu stuði um jólin og leikur sér mikið með dúkkurnar. Hún sofnaði nú ekkert mjög seint á aðfangadag en hún sofnaði yfir Stellumyndinni sem hún fékk
Það eru komnar inn jólamyndir á síðuna hennar Sigrúnar og þar getið þið séð herlegheitin öll.
Munið svo að styrkja Björgunarsveitirnar í flugeldunum Margt smátt gerir eitt stórt. Ég sé náttúrulega karlinn minn ekkert þessa dagana þar sem hann er á fullu í undirbúningi fyrir söluna. Hann kom t.d. heim kl. 03 í nótt og var farinn kl. 09 í morgun
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.12.2007 | 12:44
Gleðileg jól allir saman
Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla kæru ættingjar og vinir og vona að þið munið eiga heillaríkt komandi ár. Kærar þakkir fyrir góðan vinskap og bloggskap á árinu sem nú er senn á enda.
Hafið það ævinlega gott!!
Bestu kveðjur Rannveig
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
21.12.2007 | 22:25
Verslum í heimabyggð... NOT!
Já mín er pirruð núna
því ég er að leita að ákveðinni jólagjöf hér á svæðinu (þ.e. Selfossi) og ég finn hana ekki. Það vantar alveg svona sérverslanir eins og með gott kaffi, súkkulaðihúðaðar kaffibaunir, kandís-stangir og fleira + ýmisleg krydd og olíur. Það er bara ekkert um þetta á Selfossi. Og DVD úrvalið. OMG. Þvílíkt ruslúrval að annað eins hefur ekki sést í háa herrans tíð. Og svo segja þeir manni að versla í heimabyggð!!! Hvernig á það að vera hægt ef maður fær ekki það sem manni langar að gefa??? Eiga kannski allir að gefa ostakörfur og rauðvín þessi jólin? Eða konfektkassa ég bara spyr. Ekki misskilja mig. Það er alveg fínt að fá konfekt og rauðvín í jólagjöf en maður vill nú ekki endilega gefa það ár eftir ár. Þetta er nú meira pleisið. Það er ekki nóg með að öll pöbbamenning sé dauð heldur er ekki einu sinni hægt að velja almennilegar gjafir til jóla
*Hneyksl*
Og ekki er úrvalið meira af leikföngum. Ég átti leið í leikfangaverslunina einu á Selfossi í dag og ætlaði að kaupa afmælisgjöf handa einni sem er að verða eins árs Nei nei. Ekkert sem vit og varið er í var hægt að finna þar. Þannig að ég fór í Nóatún. Og ekki tók nú betra við þar. Ég hreinlega nenni ekki til Reykjavíkur eftir einni jólagjöf og einni afmælisgjöf þannig að maður verður bara að sætta sig við það næstbesta eða þaðan af verra. Nei ok ég fann eitt alveg ágætt en mig langaði að gefa annað sem ég var búin að sjá í blaði úr annarri leikfangaverslun og hélt kannski að væri til hér
eða eitthvað sambærilegt.
Ég er leið og pirruð yfir því að geta ekki gefið það sem mig langar til án þess að þurfa að keyra eftir því yfir fjallið í þessu annars skemmtilega veðri sem er búið að vera þessa dagana og vikurnar!
Já ég er hneyksluð á þessu. Þvílík annars uppbygging á svæðinu og hvað! Á ekki að vera nein þjónusta fyrir fólkið sem hér býr. Mér er ofboðið. Og hana nú. Þið megið alveg skjóta mig niður. Ég verð búin að jafna mig fyrir jól (VONANDI)
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar