Færsluflokkur: Bloggar

Vinna vinna vinna...

Jæja þá er ég byrjuð að vinna aftur og er það þvílík gleði Hlæjandi og það var vel tekið á móti mér í morgun.  Já já Svava tók á móti mér með rós og allir buðu mig velkomna aftur.  Gott að finna að mín hefur verið saknað Brosandi því ég hef saknað þess líka að hafa verið í vinnunni.  Sérstaklega núna eftir áramótin þegar heilsunni hefur farið svona mikið fram og orkan kemur á ný.  Frábært alveg.

Við Sigrún fórum í hjólabæ áðan og völdum handa henni hjól.  Fjólublátt með stjörnum á og svo fékk hún bleikar grifflur og barbie bjöllu og allt.  Hún á Baby born körfu sem við skellum svo bara á hjólið.  En hún hefur svo annað hjól til að hjóla á inni í fjósi.  Þannig að hún verður væntanlega orðinn mikill hjólagarpur eftir sumarið Brosandi

En Sigrún er alltaf að horfa á Ávaxtakörfuna og Bangsímon þessa dagana (það sem hún fékk í afmælisgjöf) og nú vella brandararnir út úr henni.  Einn er svona úr Ávaxtakörfunni:  Sagðirðu ber... ertu kannski allsber? ha ha ha.  Annar svona:  Bananasplitt.  Ef þú rennur á bananahýði ferðu í svona splitt... ba na na splitt.  Hlæjandi Hlæjandi Hlæjandi  Svo hlær hún mannamest.  Ótrúlega fyndið alveg.

Best að fara að huga að súpunni.  Er að elda þessa dýrindis grænmetissúpu,  ummm. 


Skrítið afmæli

Jæja þá er afmælisveislan hennar Sigrúnar búin og hún verður nú lengi í minnum höfð Óákveðinn Stebbi fór um morguninn í leit upp á Langjökul eftir símtal frá vini okkar um að sá væri búinn að týna félaga sínum.  Vinurinn fannst svo um 6 leytið í gærkvöldi heill á húfi en blautur og kaldur.  Hann brást hárrétt við þegar hann varð viðskila við félaga sinn og beið við sleðann sinn. Brosandi  En allt er gott sem endar vel og var það mikill léttir þegar Stebbi hringdi í okkur og sagði okkur að hann væri fundinn. 

En afmælið gekk vel í alla staði.  Gómsætið rann út eins og heitar lummur og Sigrún fékk fullt af fínum gjöfum.  Föt, prinsessudót, 2 Dvd diska, liti og litabók, spil, pennaveski, myndaramma, litla skvísutösku, nokkrar bækur, kústasett í Sjónarhól og ekki má gleyma hjólbörunum en um leið og hún sá þær sagði hún að Reynir ætti þessar, he he.  Þannig að nú er hann búinn að eignast hjólbörur í sveitinni. Brosandi Við eigum enn eftir að gefa henni gjöfina en að öllum líkindum verður það hjól.

Stebbi kom svo heim um þrjúleytið í nótt.  Þeir höfðu staldrað við með þann týnda í skála þarna innfrá og grillað sér þar og slakað aðeins á. 

Nú situr Sigrún á skrifstofunni sinni og horfir á Ávaxtakörfuna.  Hún er búin að taka ástfóstri við hana sem er gott mál.  Þá hvílast aðrir diskar á meðan og hausinn á mömmunni Ullandi  Alltaf gaman að læra eitthvað nýtt utan af því maður kann þetta orðið allt vægast sagt.

Svo förum við í afmæli á morgun til Reykjavíkur þannig að það er nóg að gera þessa helgina.  Bið annars að heilsa ykkur í bili. 

Það eru komnar afmælismyndir í albúmið á heimasíðu Sigrúnar.


4 ára í dag

Hæ hæ.

Sigrún mín er 4 ára í dag.  Hún fór með pabba sínum til Heiðu í afmælisklippinguna í gær og var alsæl.  Hlæjandi  Hún var líka voða spennt að fara í leikskólann í morgun því hún ætlaði sko að baka súkkulaðiköku fyrir afmælisveisluna þar.  Svo kemur fjölskyldan á morgun í kaffi Glottandi  og hér sit ég og hvíli mig á milli terta.  Búin að gera stóra brauðtertu og skreyta hana voða flott og nú er bara að fara að þReyta rjómann og skella á marensinn og voila.  Allt að verða klárt Brosandi Brosandi Brosandi 

Kíkti í Árbæ í morgun og hitti gellurnar þar.  Ég er orðin voða spennt að byrja aftur að vinna og þær líka heyrist mér.  Æ það verður voða gott að fara aftur í rútínuna sína.  Jah enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.  Það eru eiginlega orð að sönnu.  Óákveðinn

Hafið það gott um helgina kæru vinir og njótið þessarar löööööngu helgi út í ystu æsar.


Tannsi og afmæli

Jæja gott fólk.  Þá fórum við mæðgur til tannlæknis í dag.  Gekk það bara glimrandi vel og ég má vera stolt af skottunni.  Brosandi Hún fékk að sjá öll tólin sem tannsi notar og líka hvernig stóllinn virkar og svona áður en hann skoðaði tennurnar.  Hún fékk sólgleraugu til að verjast sterku ljósinu sem hann notar.  Bara snilld.  Hún var voða dugleg og gerði allt sem hann bað um og fékk flúor í lokin.  Þetta gamla gula you know.  Svo fékk hún verðlaun á eftir.  Þegar hún var að velja sér eitt dót spyr hún tannsann hvort hún megi nokkuð fá tvö dót.  Því hún eigi nefnilega vin Glottandi  he hehe allt í lagi að reyna.

En nú ætla ég að baka marens á morgun fyrir afmælið hjá Sigrúnu.  Hún verður sem sagt 4 ára á föstudaginn en að eigin sögn er hún lööööööngu orðin 4 ára.  Hún skilur bara ekkert í hvað allir segja að hún sé bara 3 ára.  Bara allir að ruglast Óákveðinn  Hún er sko búin að biðja um hjólbörur í afmælisgjöf.  Hún á reyndar einar hjólbörur sem hún fékk þegar hún var 2 ára en það er sko ekki nóg.   "Mamma, ég verð að eiga einar handa Reyni þegar hann kemur í heimsókn."  Já það er sko alltaf verið að hugsa um vinina Glottandi  Ekki amalegt að eiga svona vinkonu.

Ég fer svo í lyfjagjöf á fimmtudaginn en annað er nú ekki að frétta hér á bæ svo sem.  Stebbi byrjaður að slá upp sökklum í Brandshúsum hér í sveitinni.  Hann verður hér að smíða út júlí.  Það er ferlega notalegt að hafa hann svona nálægt kallinn Koss  Þá fer líka enginn tími í akstur og svona.  Ágætis tilbreyting.

Bið að heilsa í bili.  Yfir og út!!


Afmæliskveðja

Í dag á hún Bogga mín afmæli og óska ég henni innilega til hamingju með daginn. Koss   Ég talaði reyndar við hana áðan og við vorum báðar sammála um það að við værum löngu hættar að telja. Ullandi  he he.  Þrjátíu og hvað!!

En það er nú óhætt að segja að börnin læri það sem fyrir þeim er haft.  Það sannaði sig nú heldur betur áðan þegar ég var í símanum (tala við afmælisbarnið) þegar Sigrún kemur til mín og segir:  "mamma, mamma... sjáðu hvað ég gat."  Þá var skvísan í tölvunni á einni barnasíðunni sem við fundum um daginn og var barasta búin að prenta út nokkrar myndir af stubbunum.  Hún hefur séð okkur svo sem gera hitt og þetta í tölvunni en maður veit svo sem ekkert hverju þau taka eftir.  Og þetta hefur hún lært án þess að við værum eitthvað að kenna henni það.  Mín bara bjargar sér.  Brosandi  Ja ég er bara svo hissa!!

Róleg helgi framundan og ég segi bara góðar stundir  Glottandi

Ætti kannski að taka það fram að ég er búin að breyta kvittfyrirkomulaginu hérna á síðunni.  Þið þurfið ekki að fara í tölvupóstinn lengur til að ná í kvittið you know Glottandi  eins og þetta var.  Mun einfaldara ekki satt.  Geri þá ráð fyrir að fleiri kvitti núna, ha!!!


Gleðilegt sumar

SvalurHeido alle hjupa.Svalur

Svalur Það eru komnar inn nýjar myndir.  Bara svona til að gefa ykkur smá hugmynd um hvernig páskarnir voru hjá okkur.

Svalur Hafið það gott kæru vinir og eigið gleðilegan fyrsta dag sumars á morgun.

SvalurSvalurSvalur UllandiSvalurSvalurSvalur


Hvaða græni litur ertu?

Rakst á þessa skemmtilegu síðu um daginn:  http://blogthings.com  og athugaði hvaða græni litur ég væri.  Þetta kom út:

You Are Emerald Green

Deep and mysterious, it often seems like no one truly gets you.
Inside, you are very emotional and moody - though you don't let it show.
People usually have a strong reaction to you... profound love or deep hate.
But you can even get those who hate you to come around. There's something naturally harmonious about you.

Er eitthvað þarna sem passar???



Páskarnir búnir :o)

Jæja þá eru blessaðir páskarnir búnir og það er nú bara ágætt verð ég að segja.   Hóstinn er að aukast hjá Sigrúnu þannig að hún fer nú líklega ekki mikið í leikskólann þessa vikuna blessunin. Fýldur

En við erum boðin í afmæli hjá Hafþóri "litla" frænda á fimmtudaginn (sumardaginn fyrsta) og ætli sé ekki bara best að halda skvísunni inni þangað til.  Hún virðist nú ekki finna til í eyrunum 7-9-13... og ég vona að þetta fari nú að lagast.  Hún var reyndar hitalaus í gærkvöldi en hóstar samt sem aldrei fyrr.  Hún er bara búin að dunda sér í dótinu sínu alla páskana og horfa MIKIÐ á barnaefni.  Þökk sé stöð 2 og rúv að við erum ekki alveg búin að fara yfirum af leiða þessa páskana Brosandi

Jæja best að fara að ryksuga.  Heyrumst síðar gott fólk


Gleðilega páska

KossGóðan daginn allan daginn og gleðilega páska alle hjupa!!! Koss

Við erum búin að hafa það ógeðslega gott um páskana og éta á okkur gat og svona.  Ja Stebbi er að sauma fyrir núna Brosandi muuuhhhaaaaaa.  Sigrún fékk 3 páskaegg þessa páskana og við leyfðum henni nú að opna það fyrsta á skírdag... það næsta á föstudaginn langa og það síðasta í dag.  Hún fékk nú ágætis hjálp við þau blessunin en hefur minnsta lyst á páskaeggi í dag enda er hún lasin.  Ég hélt þarna um daginn að hún væri bara öll að hressast en því var fjarri.  Hún er búin að vera með hita síðan á fimmtudag og er að kvefast líka.  Þannig að við tökum því rólega þessa dagana og pössum okkur á því að fara ekki of snemma út.

Málshátturinn minn var:  Fátt er svo ágætt að eigi finnist annað slíkt.

Hjá Stebba var þessi:  Góðleiki er mál sem mállausir geta mælt.

Sigrún fékk þessa:  Vinum er vandi sannsöglum að vera (frá ömmu Þuru og afa Ragga).  Morgunstund gefur gull í mund (frá ömmu Lóu) og Betra er að játa sannri sök en neita (frá okkur).   Þar hafiði það.  Spurning hvað passar við hvern... hmmmm... Ullandi

Við vorum í matarboði hjá mömmu og pabba í gær.  Fengum læri, nautakjöt, ýmist meðlæti og sælgætisköku á eftir.  Voða ljúft og gott.   Sibba og co mættu líka og Guðrún og Þuríður en Maggi Palli var lasinn.  Vonum við nú að hann fari að hressast ásamt prinsessunni hér á bæ. Brosandi

Jæja best að fara að kúltrast upp í sófa með páskaeggið mitt Ullandi 


Föstudagurinn langi


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 123802

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband