10.5.2008 | 12:54
Hvort er betra...?
Stjörnuspáin mín fyrir daginn í dag:
Ljón: Brjálæðiskast sýnir að þú hefur misst tökin á skapinu - sem er slæmt. En það sýnir að þér er ekki sama, sem er frábært. Hvernig viltu haga málum?
Hvort ætli sé betra... að vera ekki sama um hlutina og sýna það eða segja ekki neitt og sýna engin viðbrögð???
Bara svona pæling
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2008 | 16:06
20 ára fermingarafmæli
Haldiði að sú gamla eigi ekki 20 ára fermingarafmæli í dag Ótrúlegt alveg... ég sem er svooooo ung! Já það var einmitt þannig ... ég fermdist svo ung
Barnið mitt er að byrja í skóla í haust. Vorskólinn byrjar á morgun og verður svo alla næstu viku. Sigrún er orðin voða spennt. Hún er búin að fara 2x í mánuði í skólaheimsóknir frá áramótum og fara þau þá með skólabíl frá leikskólanum. Á morgun fer hún með bílnum frá leikskólanum í skólann en kemur svo með skólabílnum heim þar sem ég verð heima að taka á móti henni. Við erum nú heppin hér að skólabíllinn rennir hér beint í gegnum hlaðið þannig að í mesta kuldanum getur hún beðið inni þar til hann kemur (næsta vetur sem sagt). Tímarnir sem hún fer í á morgun eru textílmennt, tónmennt og útileikir. Vá en gaman og svo auðvitað frímínútur inn á milli. Ekkert smá spennandi en skildi þetta allt standast væntingar 6 ára barns?
Það verður gaman að sjá.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.5.2008 | 16:54
O - jæja
Fyrsta tilraun á hægra auga búin... og tókst ekki alveg nógu vel Það blæddi alveg jafn mikið og síðast sagði Haraldur eftir aðgerðina en honum tókst þó að bora gatið og gera "stóru" vinnuna þannig að næsta aðgerð verður væntanlega minna mál og tekur styttri tíma. Honum tókst sem sagt ekki að setja rörið inn. Aðgerðin tók um klukkustund og þá gafst hann upp á að reyna að sjá eitthvað fyrir blóði og lokaði bara fyrir
Ég á að hitta hann aftur í næstu viku því þá verða saumarnir teknir og framhaldið ákveðið. Ég ætla að leggjast á hnén ef með þarf og biðja um að rörið verði sett í áður en hann fer í sumarfrí ÞAÐ SKAL TAKAST! Ég bara nenni ekki að vera svona lengur skiljiði
Hitt rörið er svoleiðis að þrælvirka svo ég bind miklar vonir við að næsta rör geri það líka. Þá verð ég svona rörist i av og til i fem minuter hehehehe. Fattaðirðu þennan?
En eitt var ansi skondið í gær þegar ég var að vakna upp á vöknun. Ég fann eitthvað svo mikið til í skurðarsvæðinu þannig að ég bað um aðeins meiri verkjalyf. Og fékk þau án vandkvæða. Ekki dugði það þó lengi svo ég bað um meira því ég nenni ekki að finna svona til eftir aðgerð. Jú jú viti menn ég fékk meira. Svo um 12 leytið var ég keyrð inn á augndeild þar sem ég fékk að borða og svona og mér leið bara helvíti vel. Hringdi í pabba til að segja honum að hann þyrfti ekki að bíða eftir mér því ég átti að vera þarna inni yfir nóttina. Sofnaði þó fljótlega aftur og rumskaði nokkrum sinnum en var þó nokkuð vel vöknuð um kaffileytið. Sendi þá Stebba mínum sms og spurði hann hvort hann hefði verið búinn að heyra af aðgerðinni. Þetta var svarið sem ég fékk til baka: Já þú hringdir í mig Haaaaaa? Hvenær? Jú mig rámaði nú eitthvað í það en var þó ekki viss. Um kvöldið var mér farið að líða ansi undarlega, komin með ógleði og hausverk en engan verk í auganu sem slíku og hafði enga matarlyst. Það var óvenjulegt. Guðrún systir kom með kók og nammi til mín en mér var farið að líða svo illa að ég hafði enga lyst á því og hún þurfti að fara bara fljótlega. Það var ekkert gaman að mér
Sorry Guðrún mín, það verður meira gaman næst. En mér hafði verið gefið morfín á vöknun og nú var það líklega að fara úr líkamanum. Mér skilst að fólki geti liðið svona einkennilega á eftir
Ég svaf í allt gærkvöld og gjörsamlega í alla nótt og vaknaði eldhress kl. 7 í morgun
orðin sársvöng auðvitað.
Svona er ég nú flott í dag
Ja hérna hér. En ég er komin heim og matarlystin er komin aftur svo mér líður miklu betur
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.5.2008 | 15:15
Augnaðgerð - hægra auga!
Afmælið á laugardaginn gekk bara glimrandi vel og var ég með passlegar veitingar handa fólkinu. Veitingarnar runnu ljúflega ofan í alla og veðrið var bara yndislegt. Sigrún var hæstánægð með daginn og auðvitað allar gjafirnar, fjúff. Vá maður. Kærar þakkir gott fólk fyrir yndislegan dag
Á sunnudaginn fórum við svo til Reykjavíkur í annað afmæli og hittum hluta af sama fólkinu Bara gaman að því og þar voru sko ekki síðri veitingar. Unaðslegt alveg! Nú við brunuðum svo í Smáralind til að skipta afmælisgjöf sem Sigrún fékk, hún fékk nefninlega Polly Pocket bíl alveg eins og við gáfum henni í jólagjöf þannig að við kíktum á úrvalið í Hagkaup og hvað haldiði.... FLUGVÉLIN góða var til þar og Sigrún fékk akkúrat peninginn í afmælisgjöf sem upp á vantaði þannig að hún fékk að kaupa flugvélina í staðinn fyrir bílinn
Svo skelltum við prinsessunni í Veröldina okkar (sem var stútfull gjörsamlega) og við hjónin fórum í búðarráp. Ég fann á mig jakka og sitthvað fleira og svo fundum við fínan jakka á bóndann líka. Hann átti sko innleggsnótu frá því um jól því jakkinn sem ég gaf honum þá var ekki alveg að virka. En þessi er fínn þannig að ferðin var bara assgoti góð.
En jæja það á að reyna við hægra augað á morgun og fór ég í innskrift í morgun, s.s. undirbúning fyrir aðgerðina eins og venjan er fyrir svona aðgerðir. Fór fyrst á augndeildina og hitti þar deldarlækni þar sem spjallaði aðeins við mig. Fór svo og hitti svæfingarlækni og hjúkrunarfræðing og í blóðprufu á milli. Skutlaðist svo aftur út á augndeild og hitti Harald (þann sem gerir aðgerðina) og þá var ég orðin svöng og dreif mig í Kringluna á Cafe Bleu og fékk mér borgara Skrapp svo í nokkrar búðir og gerði bara ágætiskaup
Ég á að mæta kl. 7 í fyrramálið upp á augndeild þannig að ég þarf að leggja af stað kl. 6 takk fyrir
Ekki alveg minn tími... heyrumst eftir aðgerð
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.5.2008 | 23:51
Afmælisstúss
Jæja þá er það fjölskylduafmælið á morgun. Ég byrjaði á því að fara í Bónus eftir vinnu og O M G Heldur fólk að það opni aldrei búð aftur eða??? Ég hélt bara að það væru að koma jól þvílík var traffíkin. Ég er að tala um biðröð í kassana heim að mjólkurkæli. Og enga einustu körfu að fá úti og við Sigrún enduðum á því að elta hjón út í bíl til að panta körfuna hjá þeim
ég hefði nú bara snúið við ef ég væri ekki með afmæli á morgun.
En við brunuðum heim eftir nokkrar útréttingar og ég skellti mér í að undirbúa afmælið og ég hef verið á fullu gjörsamlega með stuttum stoppum og er hreinlega bara orðin dauðþreytt. Skellti mér upp í sófa áðan en hentist fljótlega úr honum aftur og ryksugaði allt húsið Æ ég nenni ekki að eiga þetta eftir á morgun. Ég held ég hafi samt nóg að gera á morgun sko, hmmm. Ég hef bara aldrei verið eins sein að byrja að undirbúa afmæli eins og núna. Ég er ólík þeirri elstu sem undirbýr afmæli bara nóttina áður og fær kannski 3 tíma svefn
Ég var náttúrulega að koma úr flugi seint á sunnudagskvöld (eða nótt) og svo bara beint í vinnu á mánudagsmorgunn. Svo var stelpuafmælið í gær og svo fjölskylda og vinir á morgun, úfff. EEEnnn þetta er bara gaman
og Sigrún voða spennt og hún skemmti sér konunglega í gær með öllum vinkonunum. En þetta er ekki alveg að passa við mig að byrja svona seint, ég þarf alltaf að skipuleggja allt með góðum fyrirvara og vera búin að plana þetta vel og dreifa álaginu, hehe. Ótrúlegt alveg. Ætli þetta eldist ekkert af manni?
En jæja bóndinn elskulegi er búinn að færa mér rauðvínsglas svo ég ætla að skella mér við hlið hans í Lazy Boyinn okkar
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar