30.4.2008 | 09:08
Frábær Danmerkurferð
Við lögðum af stað á Keflavíkurflugvöll um 4 leytið aðfararnótt miðvikudagsins 23.apríl. Fórum allar saman með skólabíl og hittum Árbæjarskvísur við innritun því þær voru líka að fara til Danmerkur. Áttum flug um hálf átta en okkur var boðið að fara með annarri vél 3 korterum síðar gegn því að fá allar frímiða sem gildir fyrir einn fram og tilbaka hvert sem er í Evrópu og við tókum því að sjálfsögðu
En jæja við vorum komnar til Danmerkur um kl. 14 á dönskum tíma og fórum í það að finna bílana okkar en við tókum 3 bíla til þess að fara á til Jótlands. Fengum eitt gps tæki með en ein í hópnum hafði keypt sér slíkt tæki og notuðum við það sem vorum í fremsta bílnum og ókum sem leið lá til Jótlands. Vorum frekar lengi á leiðinni þar sem við tókum smá aukarúnt í Vejle til að kíkja í BILKA Það var fínt og keypti ég nokkra boli og peysur á Sigrúnu þar.
Við vorum nokkuð fljótar að finna húsið okkar, eða höllina öllu heldur því þetta var ekkert smá flott og stórt hús. Ég fékk herbergi út af fyrir mig eða íbúð öllu heldur með sér baðherbergi og stofu við hliðina á herberginu. Í aðalhúsinu var stórt eldhús og stór matsalur og baðherbergi og nokkrum herbergjum. Uppi var svo risastór setustofa með billjard-borði, fótboltaspili, sófum, borðum og slíku og svona koníaksstofu með flottu útsýni. Einnig var sjónvarp þarna en hinumegin við stigann voru fleiri herbergi, baðherbergi og svalir á 2 stöðum. Geggjað hús í sveitasælunni.
Við fórum á 3 leikskóla á fimmtudeginum, tókum daginn snemma og byrjuðum á einum sem heitir Knudsöhulen. Hann er við hliðina á grunnskóla og er sami skólastjóri yfir báðum skólunum og svo eru deildarstjórar yfir hvoru húsi fyrir sig. Við urðum strax allar ástfangnar af þessum leikskóla, eða umhverfinu og öllum náttúruefniviðnum á lóðinni öllu heldur því það var alveg frábært. Staurar hér og þar í jörðinni og hengirúm hengt á milli, eitt stórt bálhús með kamínu inní og ísskáp þar sem börnin geymdu nestið sitt. Bardagasvæði (sem ég útskýri nánar síðar), risarólur, risarennibraut og fleira og fleira. Frábær leikskóli þar sem börnin eru meira og minna úti allan daginn því húsið sjálft ber varla öll börnin í einu.
Leikskóli nr. 2 heitir Myretuen og er leikskóli á hjólum en hann er í sérsmíðuðum vagni og annar tengivagn sem settur er aftaní þegar hann er færður til. Þessi leikskóli er í Ry (lítill bær) og er með 2 staði sem hann færir sig á milli á 6 mánaða fresti. Þau eru í skóginum á sumrin og í hinum enda bæjarins á veturna. En þarna voru þau komin í skóginn og börnin voru líka úti meira og minna allan daginn. Á svæðinu voru þau búin að hengja áburðarpoka með plötu í botninum sem n.k. hengiróla (hugmynd fyrir Stebba minn
) og líka mjög háar rólur efst í trén, fínn sandkassi með kúluhúsi í eða helli sem þau gátu farið inn í, ein risaróla úr trefjakúlu (sem var búið að taka í tvennt), vír með belg á sem þau renndu sér á milli, drullumallakrókur og fleira og fleira. Maðurinn sem tók á móti okkur er smiður og er einn af eigendum þessa leikskóla því hann er einkarekinn. Hann stofnaði hann með systur sinni sem er leikskólakennari. Þarna gátu verið 22 börn og allt inni í vagninum (sem og vagninn sjálfur) var smíðað og hannað af þessum smiði. Ótrúlega sniðugt og hentar eflaust vel í Danmörku
Sá þriðji sem við heimsóttum þennan daginn heitir Muldvarpen og þar var fyrsta lóðin sem við sáum afgirta því hinir 2 voru ekki með girðinu í kring. Börnin eiga einfaldlega að þekkja hvar mörkin eru og þau passa upp á hvert annað. En þarna var umferðargata við leikskólann þannig að ekki var um annað að ræða en að hafa hann girtan af. Fínn leikskóli með stóru útisvæði og svona bálhúsi eins og við sáum á þeim fyrsta, nokkur dýr eru þarna eins og hænur, grísir (á sumrin) og fleira. Ágætis leikskóli en kannski minna um nýja hluti fyrir okkur að sjá svona í heildina.
Við vorum komnar í húsið okkar um kvöldmatarleytið og grilluðum þá kjúllabringur og fleira gott og fórum svo í Sing Star uppi í efra og tókum nokkra billjardleiki Mjög skemmtilegt og mikið hlegið.
Á föstudeginum fórum við á síðasta leikskólann sem við skoðuðum í ferðinni og hann heitir Höndruphus (eitthv. svoleiðis) og er alveg í skógarjaðrinum á litlum bæ á Jótlandi. Þar er heldur engin girðing, börnin vita hvar þau mega fara og hvar ekki. Skógurinn á bakvið er risastór og fórum við í heljarinnar skógargöngu með einum kennaranum og elstu börnunum. Svæðið býður upp á marga möguleika og börnin virðast þekkja og kunna vel á umhverfið. Í garðinum við leikskólann er einnig frábært svæði og þau eru líka með nokkur dýr. M.a. 3 geitur sem börnin hjálpa til við að fæða og hirða um. 3 risastórar kanínur eru líka og svo einn köttur. Hann var mjög gæfur og vildi bara liggja í fanginu á manni og láta klappa sér. Við borðuðum svo nestið okkar úti með börnunum og vorum þarna í eina 4 tíma. Rosa skemmtilegt.
Við færðum leikskólunum öllum gjafir, m.a. stór plaköt af íslenska hestinum, kindinni og kúnni ásamt því að gefa staffinu súkkulaði og bingókúlur og við gáfum þeim líka bókina "Ástarsaga úr fjöllunum" á dönsku og einnig ljósmyndir úr leik og starfi úr Krakkaborg. Það voru allir þvílíkt ánægðir með gjafirnar og börnin hrifin af þessu öllu.
Nú við kíktum svo í aðra BILKA búð seinni partinn á föstudeginum og fórum svo heim í hús og spiluðum pictionary við mikla gleði og glaum.
Verslunarferð til AArhus á laugardeginum og þar var auðvitað kíkt í H og M og feiri búðir og ég mælti mér mót við Gunni vinkonu því hún býr í úthverfi AArhus og því ekki langt fyrir hana að koma. Það var æðislegt að hitta hana og knúsa. Yndislegt að hitta þig yfir Nachos og bjór
Áttum svo flug kl. 21.50 á sunnudagskvöld og því voru þreyttir ferðalangar sem mættu í vinnu á mánudagsmorgunn
Set inn myndir úr ferðinni við tækifæri
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2008 | 08:39
Ég er ...
... komin heim frá Danmörku. Skrifa ferðasöguna seinna sem gekk rosalega vel í alla staði
Annars á hún Sigrún mín afmæli í dag og er hún orðin 6 ára skvísan. Ég held hún hafi bara stækkað á meðan ég var úti
Þið getið skrifað henni kveðju á http://barnanet.is/sigrunstef
Hej hej
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
22.4.2008 | 17:22
Ég er ...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.4.2008 | 21:42
Útivera
Það er mikið búið að vera úti um þessa helgi. Veðrið búið að vera yndislegt og hjólin voru tekin út í dag Við Sigrún hjóluðum á hjólunum okkar heim að Sviðugörðum og til baka. Hún er orðin ansi klár að hjóla og örugg á mölinni því það er nú svolítið erfitt að hjóla á grófri möl þegar maður er lítill og léttur
En við pabbi hennar ákváðum að nú væri tímabært að prufa að taka hjálpardekkin af og leyfa skvísu að prufa að hjóla þannig. Það var nú ekki að ganga neitt svakalega vel en æfingin skapar meistarann ekki satt?! Þannig að nú verður bara æft stíft næstu daga til að ná jafnvæginu og læra á þetta.
Læt fylgja hér með nýjustu teikninguna hjá Sigrúnu. Ég var að búa til boðskort í afmælið hennar og þetta teiknaði hún á meðan. Hatturinn er örugglega nornahattur því það verður búningafjör í afmælinu hennar
Nú er ég byrjuð að pakka fyrir ferðina miklu sem er eftir aðeins 2 daga Spennan magnast...
Þangað til næst
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.4.2008 | 15:43
Stórsniðugt!
Ég verð nú bara að taka að ofan fyrir bæjarráði Árborgar því þetta er algjör snilldarhugmynd. Það er nefninlega bæði dýrt og óþarft að þurfa alltaf að fara á bíl í styttri ferðir sem eru þó kannski of langar vegalengdir og tímafrekar ef á að labba þær. Ég vildi óska þess að ég kæmist á hjóli í vinnuna Þegar ég bjó í bænum hjólaði ég oft, bæði í skólann og í vinnuna sem var þónokkur spotti. Þetta fannst mér bæði þægilegt og svo auðvitað mjög heilsusamlegt.
Þannig að þeir eiga hrós skilið í ráðhúsinu finnst mér fyrir þetta framtak. Og það gat nú verið að minnihlutinn tæki ekki undir þetta framtak Svo virðist sem meirihluti og minnihluti geti aldrei verið sammála um nokkra skapaða hluti. Undarlegt alveg.
![]() |
Ráðhúshjól keypt á Selfosi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar