11.2.2008 | 16:25
Öskubuskan og sjóræninginn
Ég var ekki búin að sýna ykkur hvernig við mæðgur vorum á Öskudaginn. Ég klæddi mig upp sem sjóræningi og Sigrún fór auðvitað í Öskubuskukjólinn og svo málaði ég hana í leikskólanum. Ég á því miður ekki mynd af henni málaðri í kjólnum og því verður þetta að duga En svona vorum við sem sagt.
Ég gleymdi að segja ykkur frá aðalatriðinu. Ég fór í lyfjaferð til Reykjavíkur í dag og var mun fyrr búin en ég bjóst við. Ég þurfti ekki að fá beinvarnarlyfið og það sem meira er... ég þarf ekki að fá það nema 2x á ári hér með Óskar var á ráðstefnu í Desember þar sem m.a. þetta kom fram og ég er ekkert smá glöð með það. Þetta þýðir að æðarnar mínar fá að jafna sig vel inn á milli og ég þarf ekki að kvíða hverri lyfjaferð
Svo sagði Óskar líka að ástæða væri fyrir mig að fagna pínulítið í vor þar sem 3 ár verða liðin frá því ég greindist og að nú væri 3 ára tímabilið það sem mest væri litið til með tilliti til þess að greinast aftur. Þ.e.a.s. langalgengast er að fólk greinist í annað sinn innan þriggja ára og ég fer að skríða í þá tölu
Nú er bara að krossleggja fingur og vona hið allra allra besta með tilliti til framtíðarinnar
Knús í kotin ykkar kæru vinir.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
10.2.2008 | 22:00
Kalli Tomm byrjaður
8.2.2008 | 17:39
Notalegt að vera komin heim
AAHHHH hvað er gott að vera komin heim heil á húfi og þurfa ekkert að fara út fyrr en í fyrsta lagi á sunnudaginn en þá eigum við miða í leikhús á Skilaboðaskjóðuna. Það væri nú gaman að komast það án nokkurs vesens
Sit annars hér við tölvuna með harðfisk í annarri og söl í hinni og hlusta á vindinn hvína. Það er voðalega gott að eiga þak yfir höfuðið núna og eins og veðrið er búið að vera síðustu daga og vikur
Það eru bara ekki allir svo heppnir
![]() |
Búið að opna Hellisheiði en veður fer versnandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.2.2008 | 12:43
Enn meiri ófærð!
Ja þessu ætlar bara ekki að linna svei mér þá - alla mína daga!
Við hjónin ætluðum í bæinn í morgun og kíktum á textavarpið og sáum að Þrengslin voru lokuð en Hellisheiði fær fjórhjóladrifnum bifreiðum. Þannig að við drifum okkur af stað á okkar fjallajeppa þar sem ég átti tíma hjá Óskari krabbalækni kl. 11. En þegar við komum að Hveragerði þá var búið að loka Hellisheiði líka, aaaarrrggghhh!!! Þannig að ég varð að fresta tímanum þar til á næsta mánudag og nú vona ég bara að það verði skaplegra veður þá
Var að fá SMS frá mömmu og pabba... 22 stiga hiti og blíða á Kanarí og þau búin að fara í morgungönguna sína og allt í hinu besta lagi gott að heyra það. Get ekki beðið eftir að komast úr þessum kulda og snjó í blíðuna... nú eru bara 12 dagar, jibbííííí!!!
Adios mi amigos
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.2.2008 | 11:35
Prinsessan veik á Bolludaginn sjálfan :(
Já við mæðgur erum heima í dag því prinsessan á bænum vaknaði í nótt kl. 1.30 og búin að gubba yfir sig alla Ég hentist í það að þrífa barnið og bóndinn brunaði niður til að ná í dall og þvottapoka og vatn. Svo kom hún upp í til mín og pabbinn fékk rúmið hennar. Ég sofnaði náttúrlega ekki aftur fyrr en eftir að hún var búin að gubba í annað sinn
En svo náði hún nú að sofna og ég svona 2 tímum síðar
Nú í heildina er hún búin að gubba svona 4-5 sinnum en alltaf náð að skutla því í skálina sem betur fer.
Þannig að við erum í rólegheitum hér heima í dag. Prinsessan fær sér því væntanlega engar bollur í dag... annað með mömmuna sko. Hún er heil heilsu í dag (fékk vott af flensu í gær I wonder why!!) og hér eru nokkrar bollur í ísskápnum sem pabbi vildi endilega að ég tæki með mér heim í gær. Ætli ég sporðrenni þeim ekki í kaffinu í dag með góðu púðakaffi, nammi namm.
Etið nú ekki yfir ykkur í dag af bollum. Það er Sprengidagur á morgun og svo Öskudagur. Við mæðgur erum búnar að ákveða hvað við ætlum að vera á Öskudaginn... set kannski myndir af okkur á miðvikudaginn í herlegheitunum
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar