2.2.2008 | 14:18
Þorramatur á að fara...




Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.1.2008 | 10:24
Helga!
Þetta er racklette. Svona rafmagnspanna sem þú getur grillað alls konar hráefni á eins og kjöt, fisk, grænmeti og ost. Svo fylgja litlar pönnur með sem maður getur t.d. gratínerað kartöflur og grænmeti í.
Sniðugt - ekki satt?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.1.2008 | 22:04
Varð að sýna ykkur þessa
... mynd en svona var umhorfs í bústaðnum þegar við vorum búnar að moka frá pottinum um þarsíðustu helgi
Smá snjór svona. Vona að Sandra fyrirgefi mér fyrir að setja þessa mynd inn en mér finnst hún svo fín
Svo eru komnar fleiri myndir hér inn úr þessari ferð undir albúmi sem heitir vetur 2007-2008
Það er ótrúlega góð og notarleg stemning að fara í heitan pott í svona miklum snjó. Eitthvað svo ótrúlega hlýlegt, undarlegt sem það nú hljómar
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.1.2008 | 21:53
Netið loksins komið í lag
Ég á ekki til orð. Búin að vera netlaus og hálf vitlaus í kjölfarið í á þriðju viku Djöfull sem maður getur orðið háður þessu neti. Viðgerðarmaðurinn var að fara héðan og þurfti á endanum að skipta um móttakara og ég veit ekki hvað og hvað. Hinn var gjörsamlega handónýtur og vantaði lokið á hann meira að segja og maðurinn var alveg hissa á hvernig netið náði nú samt að hanga inni svo lengi með þetta svona hálfónýtt. Ég er búin að vera að fara á póstinn og svona helstu síður á símalínunni og O M G hvað það tekur langan tíma að hlaða niður sumum síðum.
En jæja þetta er allavega komið í lag thank god!
Það er nú svo sem ekki eins og ég hangi á netinu öllum stundum. En um leið og það dettur út þá verður maður alveg ómögulegur eins og maður þekki ekkert annað og geti bara ekkert annað gert við tímann sinn. Ótrúlegt alveg.
Við fórum með köttinn til Dagfinns dýralæknis um daginn og je minn eini. Þyngri kött hefur hún varla séð Ég þarf að setja köttinn á léttfæði og vigta ofan í hann matinn og vigta svo köttinn til að sjá hvort þetta beri árangur. Hann er orðinn allt of þungur greyið. Búinn að vera í góðu yfirlæti hér í sveitinni, fær bara að éta ef hann er svangur, stundum gaukað að honum túnfiskbiti eða kjúklingur og harðfiskur, nú og svo nennir hann sem minnst að fara út. Liggur eins og slytti í einum stólnum hérna (alltaf þeim sama) og malar eins og gömul dráttarvél og kemur svo snuðrandi við lappirnar á mér um leið og ég fer að dunda mér við matseldina í eldhúsinu
Æ hann er svo mikil dúlla en algjör letihaugur. Hann sver sig í ættina bara. Finnst gott að borða og kúra
hehehehe. Þekkiði einhver svoleiðis letiljón??? HAAAA????? En Kjarkur "litli" (sem er ekki enn orðinn 2 ára btw) er sem sagt búinn að fara í sitt árlega check-up
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.1.2008 | 21:55
Við eigum afmæli í dag...
... við eigum afmæli bæði, við eigum afmæli í dag Veeeeiiiiii ( og fagnaðarlætin brjótast út!!!!) Takk takk!!
Júbb við hjónin eigum 10 ára samvistarafmæli í dag og 3 ára trúlofunarafmæli (sem ég mundi ekkert sérstaklega eftir fyrr en ég heyrði í bóndanum áðan, hehemm ) skamm skamm. En já já það eru heil 10 ár síðan við fórum að skjóta okkur saman hjúin. Í þá gömlu góðu daga vorum við bæði loðnari að ofan
og örlítið vitlausari en nú hehe.
Annars heyrði ég sem sagt í karlinum áðan. Þeir félagar höfðu keyrt frá Austurríki til Munchen í dag og voru búnir að spotta nokkrar verslanir. Þar á meðal H og M búð og eina risavaxna útivistarbúð sem þeir ætluðu að skreppa í á morgun. Já þeir ætla að verja morgundeginum í að versla blessaðir og hver segir að karlmenn njóti þess ekki að fara í búðir og versla svolítið! Þeir þykjast "verslast" upp í verslunum með konunum en njóta þess svo bara inn við beinið að versla sjálfir þegar þeir eru einir. Þá eru engar kerlingar að tuða í þeim eða ýta á eftir þeim við innkaupin. Ég er að vona að hann finni góðan kuldagalla á stelpuna á sæmilegu verði. Ætli sé ekki allt á útsölu þarna?
7 stiga hiti og heiðskýrt var í Munchen í dag skilst mér. En hér... ætla nú ekkert að fara að ræða það neitt!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar