Öskubuskan og sjóræninginn

Ég var ekki búin að sýna ykkur hvernig við mæðgur vorum á Öskudaginn.  Ég klæddi mig upp sem sjóræningi og Sigrún fór auðvitað í Öskubuskukjólinn og svo málaði ég hana í leikskólanum.  Ég á því miður ekki mynd af henni málaðri í kjólnum og því verður þetta að duga Joyful  En svona vorum við sem sagt.

    Öskubuska  komin úr kjólnum  Sjóræninginn   

Ég gleymdi að segja ykkur frá aðalatriðinu.  Ég fór í lyfjaferð til Reykjavíkur í dag og var mun fyrr búin en ég bjóst við.  Ég þurfti ekki að fá beinvarnarlyfið og það sem meira er... ég þarf ekki að fá það nema 2x á ári hér með Happy  Óskar var á ráðstefnu í Desember þar sem m.a. þetta kom fram og ég er ekkert smá glöð með það.  Þetta þýðir að æðarnar mínar fá að jafna sig vel inn á milli og ég þarf ekki að kvíða hverri lyfjaferð LoL  Svo sagði Óskar líka að ástæða væri fyrir mig að fagna pínulítið í vor þar sem 3 ár verða liðin frá því ég greindist og að nú væri 3 ára tímabilið það sem mest væri litið til með tilliti til þess að greinast aftur.  Þ.e.a.s. langalgengast er að fólk greinist í annað sinn innan þriggja ára og ég fer að skríða í þá tölu Joyful    Nú er bara að krossleggja fingur og vona hið allra allra besta með tilliti til framtíðarinnar Wink

Knús í kotin ykkar kæru vinir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Mér finnst prinsessan fallegri, hef líka alltaf verið svolítið smeyk við sjóræningja. Fyrirgefðu hvað ég hvarf skyndilega í gærkvöldi, ég sá framá að nætursvefninn minn myndi raskast, þorði ekki að taka áhættuna. kv.

Helga R. Einarsdóttir, 11.2.2008 kl. 17:11

2 Smámynd: Hvíti Riddarinn

Minni á KallaTomm í kvöld.
Hvíti Riddarinn er með keflið og
blæs til leiks stundvíslega kl. 22.22.

Hvíti Riddarinn, 11.2.2008 kl. 17:38

3 identicon

Nú fékkstu mig til að tárast kæra vinkona  Þetta eru yndislegar fréttir! Við höldum vel og mikið upp á þetta í búst í vor, ekki spurning! Vildi að ég gæti faðmað þig núna  Farðu vel með þig og skilaðu kveðju í kotið

Þórlaug (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 20:31

4 identicon

Ég trúi því varla að það séu næstum þrjú ár liðin, vááá hvað tíminn flýgur.  Og auðvitað hefur þú staðist þetta með glans elsku dúllan mín, það er ekki að spyrja að því.

Alveg spurning hvort við klæðum okkur ekki upp í tækifærishæla (manst' ekki eftir þeim?? hehehe) þegar þessum áfanga verður náð, já og skellum okkur kannski á tónleika með lögreglukórnum, gæti trúað að ég gæti reddað miða sem gildir fyrir tvo  Nú skilja fáir hvað ég er að röfla en það er líka allt í lagi. 

Sjáumst elskan!!

Sandra Dís (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 20:58

5 identicon

Innilega til hamingju með áfangann og mikið ótrúlega er tíminn fljótur að líða. Finnst svo stutt síðan fréttirnar bárust og man enn og mun alltaf muna stað og stund. Sandra ég skildi húmorinn - aldrei þessu vant. Held þið ættuð að skella ykkur.

Knús í kotið

Íris

Íris Böðvarsdóttir (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 21:20

6 Smámynd: Benna

Frábært til hamingju með það:)

Heyrðu sætust ég sé að þú ert að fara til Kanarý? Hvað verður þú lengi? Var nú bara dáldið svekkt að sjá að þú ert að fara núna hehe þar sem ég fer 5 mars út til Kanarý...jebb á leiðinni með alla fjölskylduna...strákana mína og mömmu og pabba ef heilsa leyfir það er að segja.....

En alla vega kallinn skyldi ekkert í því að ég fussaði yfir því þegar ég sá hvenær þú ert að fara hehe ..alveg bara hvað samgleðstu ekki ...ég jú auðvitað er bara fúl yfir því að þú farir núna hefði verið gaman að hittast úti...hehe

Alla vega knús sæta:)

Benna, 11.2.2008 kl. 21:32

7 identicon

Sæl elsku frænka , mikið eru þetta góðar fréttir , og vonandi gengur þetta svona vel áfram og þú getur sleppt öllum lyfjum. Þrjú ár eftir 3 mánuði, þú ert hetja elskan og hefur staðið þessa baráttu af þér með miklum dugnaði, jákvæðni og kjarki .Gangi þér áfram vel. Þín Ko-Kolla. p.s er ekki komin kanarí spenningur í ykkur ????

Anna Kolla (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 21:36

8 identicon

Innilega til hamingju með þetta elsku nafna mín, nú er sem aldrei fyrr ástæða til að halda uppá þetta á Kanarý...Bestu kveðjur til Stebba og Sigrúnar, þín nafna.

Rannveig Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 14:48

9 identicon

Hæ,hæ

Þetta eru frábærar fréttir.... og mikið er tíminn fljótur að líða.  Þú hefur líka staðið þig eins og hetja. Það verður að halda upp á þetta á eftirminnilegan hátt eins og þér einni er lagið!!

 Ég setti Skilaboðaskjóðuna í póst í gær og vona að hún komist sem fyrst til skila í sveitina. Það verður svo gaman hjá Sigrúnu að rifja upp leikritið með því að sjá myndirnar.

Kv. Kristín

Kristín (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 18:11

10 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Hjartans þakkir kæru vinir :o)

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 12.2.2008 kl. 19:21

11 Smámynd: Þóra Hvanndal

Hæ eskan

Frááábææært að heyra hvað gengur vel.. til hamingju með þetta allt...

Flottar mæðgur.. 

einhvern veginn hafði algerlega farið fram hjá mér að þið væruð á leiðinni til kanarí... en frábært að  heyra og njótið vel...

knús í kotið, sendu mér kanski línu áður en þú ferð..

Þóra

Þóra Hvanndal, 12.2.2008 kl. 22:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 123790

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband