Bloggfærslur mánaðarins, október 2006
30.10.2006 | 23:19
Leirum og leirum
Prinsessan var að leira um daginn og setti ég inn nokkrar myndir af því tilefni. Alltaf gaman að leira og margt skrítið hægt er að búa til úr leirnum. Litríkur og flottur leirinn. Einbeitingin skín úr andlitinu... Hæ Hér er komið þetta fína listaverk.
En annars komu Regnfólkskonur til mín í gærkvöldi. Við fjölskyldan vorum nýkomin úr indælli sumarbústaðarferð í Brekkuskógi þegar dömurnar byrjuðu að streyma að. Ég skutlaði saman kjúklingasalati handa þeim og bauð upp á kaffi og súkkulaði á eftir. Voða nice. Ein komst ekki sökum veikinda allra fjölskyldumeðlima Vona svo sannarlega að þau séu hressari í dag. En það var mjög gaman að fá æskuvinkonurnar í heimsókn og við höfðum ekki hist allar síðan í brúðkaupinu í sumar og var því orðið löngu tímabært að hittast. Takk fyrir komuna stelpur. Látum líða styttra á milli næsta "saumós" og þá verður nú ýmislegt á prjónunum
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
26.10.2006 | 16:30
Viðtalinu frestað
Það var víst búið að setja inn viðtalið við mig í Dagskrána rétt fyrir prentun en var tekið út á síðustu stundu vegna auglýsinga um prófkjör flokkanna. Já hún er skrítin TÍK þessi pólitík. Það verð ég að segja. Blöðunum er hreinlega ekki flettandi þessa dagana. Þvílíkur áróður. Og helmingurinn ... nei segi ekki meir. Fæst orð bera minnsta ábyrgð. Mér skilst að þetta komi í næstu viku. Það hefði nú eiginlega verið upplagt að hafa þetta viðtal í sama mánuði og árvekni um brjóstakrabbamein er eeeeen... svona er þetta bara. Það verður margt að víkja fyrir tíkinni. Sko pólitíkinni.
Leikskólinn okkar fór á mjög skemmtilegan tónlistarviðburð í dag í Þjórsárveri. Tveir mjög svo skemmtilegir menn með fullt af hljóðfærum í hinu ýmsu ásigkomulagi *hóst* spiluðu og sungu fyrir okkur. Þeir notuðu nú ýmsan annan varning og má þar nefna gúmmívettling, hárblásara og sápukúluvél börnunum til mikillar gleði. Þetta var rosa gaman. Þeir sögðust sko vera svona endurvinnsluhljómsveit
Ég var að borga Heidelbergferðina mína í vikunni. Er að fara í aðventuferð þangað með fullt af konum í sveitinni og það verður eflaust mikið stuð. Verðum í 3 nætur. Hef heyrt að Heidelberg sé voða skemmtilegur staður og frábært að koma þangað á þessum tíma. Hlakka mikið til að sjá jólaljósin og jólastemninguna í heild þar því jólabarnið í mér er alltaf að verða stærra og stærra með hverju árinu. Skrítið. Það var nú bara hálf jólalegt að líta út í morgun þegar maður sá veðráttuna og snjóinn liggja yfir öllu. En jæja INGIBJÖRG ... þetta er orðið gott!
GOTTH!!!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.10.2006 | 08:28
Við hesta heilsu
Jæja gott fólk. Ballið var algjör snilld Ég hitti fullt af fólki sem ég hef jafnvel ekki séð í mörg ár og það var auðvitað mjög gaman. Svo var dansað og sungið og allur pakkinn bara. Mjög skemmtilegt ball og pottþétt að ég mæti að ári og það var sko enginn slappleiki daginn eftir get ég sagt ykkur. Maður þolir nú ýmislegt, hehe
Ég mæli með því að þið náið ykkur í Dagskránna á morgun. Það er fréttablað sem er dreift frítt í hús á Suðurlandi. Einnig er hægt að lesa það á netinu. http://www.sudurland.net held ég að slóðin sé. Þið verðið svo bara að leita í blaðinu eftir einhverju áhugaverðu til að lesa
Fékk skemmtilega gesti í gær og það var sko mikið spjallað. Takk fyrir komuna Bogga, Ágúst og Agnes. Endilega komið sem fyrst aftur. Nú eða við Sigrún brunum í bæinn eftir leikskóla einn daginn. Aldrei að vita.
Jæja kominn vinnutími. Adios
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.10.2006 | 21:48
Sveitaball...
Dóttir mín vaknaði í nótt og kom skríðandi upp í rúm með öll "börnin" sín þannig að rúmið var orðið fullt af fígúrum kl. 02 í nótt svo bað hún mig að syngja fyrir sig... ég hélt nú ekki. Búin að sofa í um 2 tíma sjálf og ekki alveg tilbúin í söng svona nývöknuð. Ég sagði henni að hún ætti nú bara að fara að sofa aftur því það væri ennþá nótt. Og hún sofnaði um þrjúleytið aftur svo að ég færði hana yfir í rúmið sitt. Ég sofnaði svo sjálf aftur um 04 Vaknaði prinsessan svo um 8.30 í morgun... fór fljótlega á wc og kallaði á mömmu sína. Mamman var eitthvað syfjuleg (I wonder why) svo að Sigrún segir: "Oh, mamma. Af hverju ertu svona löt?" "Hva finnst þér ég löt við þetta, eins og ég nenni þessu ekki?" segi ég. "Jahahahá" segir sú stutta og fær bara hláturkast. Skilur ekkert í þessu með þessa LÖTU mömmu, hmmm!
En já það er sem sagt sveitaball í sveitinni í kvöld. Kallinn í nefndinni svo maður sleppur ekki við að fara
Sveitaball, já ekkert jafnast á við sveitaball,
þar sem að ægir saman alls kyns lýð
í erg og gríð að kela kátt hver á sinn hátt.
Þar eru ungmeyjar
og allt upp í uppskoprnaðar gamlar kerlingar.
Já, þar er úrval mest og menn sér skemmta best,
ef það er ekta sveitaball.
Hafið það gott!
Dægurmál | Breytt 21.10.2006 kl. 09:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.10.2006 | 21:25
Kem alveg af fjöllum
Jæja þá erum við komin heim úr fjallaferðinni sem tókst svona líka glimrandi vel Ja fyrir utan þá leiðinda staðreynd að prinsessan á heimilinu er bullandi bílveik á þessum vegleysum sem við fórum. En að öðru leyti tókst allt vel. Við höfðum skemmtileg verkefni að leysa á leiðinni sem ein í hópnum var búin að búa til handa okkur og við HELDRI borgararnir í hópnum stóðum okkur með slíkri snilld að annað eins hefur ekki sést í háa herrans tíð Við þurftum að semja texta og flytja hann, ráða 2 gátur, finna slattann allan af alls kyns hlutum á leiðinni eins og hjólkopp, bjórdós, hundasúru, hvönn, ber, vatn úr jökulá og bergvatnsá og ég veit ekki hvað. Þetta gerði ferðina enn skemmtilegri og fróðlegri. Við gistum á Hveravöllum síðustu nótt og komum svo við í Kerlingarfjöllum á leiðinni heim í dag. Það var nú bara gaman þar sem ég hef ekki komið í K-fjöllin í 17 ár Það rifjuðust upp hin ýmsu atriði í dag, kvöldvökurnar, skíðaferðirnar og margt fleira skemmtilegt en ég fór þangað fyrst á skíði í skólaferðalag með Barnaskólanum á Eyrarbakka vorið 1988 og svo aftur með 2 vinkonum sumarið eftir. Rosa skemmtilegar ferðir og mikið skíðað
Læt fylgja með eina mynd af skvísunni sem er tekin í Kerlingarfjöllum í dag. Kveð í bili
Rannveig
Ein upprifjun að lokum: (Óli skans) Stafinn út, stafinn út. Stemma beygja rétta. Í einum kút, einum kút. Er ég hreint að detta. Valdi-Valdi-Valdimar! Voðalega gengur það með vinstri beygjurnar
Komnar myndir úr ferðinni á heimasíðu Sigrúnar
Dægurmál | Breytt 16.10.2006 kl. 16:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.10.2006 | 22:24
Endalausir læknatímar
Búin í enn einum tímanum hjá augnlækninum... á orðið minn fasta augnlækni sem ég kann orðið bara nokkuð vel við. Hann gefur sér tíma með manni og útskýrir hvað það er sem er að augunum og af hverju Ég fór í þennan tíma í dag út af þessu flökti sem ég hef stundum verið að finna fyrir. Þá hellist yfir mig allt í einu svona sjóntruflanir, eins og ég sé stödd á brjáluðu diskóteki með þvílíku diskóljósin blikkandi að ég sé ekkert annað en blikkljós. Þetta getur varað í allt að hálftíma í senn. En augnlæknirinn sagðist strax vita hvað þetta væri ... AUGNMÍGRENI og er það nú til?!! En já það er víst og það er ekkert hægt að gera við þessu, það er voða misjafnt hve oft fólk fær þessi köst en þetta gerist af því að það kemur krampi í æðina í auganu og hún þrengist verulega. Svo víkkar hún aftur og þá fer blóðflæðið á svo miklum krafti af stað aftur að það verður nánast blóð-flóð og þá koma þessi einkenni fram. Skrítið, hmmm. En sem betur fer kemur þetta mjög sjaldan hjá mér en hann sagði að þetta tengdist höfuðverkja-mígreninu sem ég er líka með (fæ reyndar mjööög sjaldan orðið mígrenikast) 7-9-13. Maður ætti kannski ekki að segja svona á F Ö S T U D E G I N U M 13. En svona er þetta nú. Hann lét mig svo líka fá augndropa - aftur - til þess að reyna að draga úr bjúgnum og roðanum í augunum. Nú nú nema hvað. Hann vill líka að ég fari aftur til hans Haraldar vinar míns og láti stinga á táragöngin -aftur- því ég er með krónískar bólgur þar sem verður að losa um með svona líka skemmtilegum ástungum. Það er eitthvað örlítið viðameiri aðgerð en var gerð síðast (í júní). Æ vonandi tekst þetta þá almennilega og ég LOSNA VIÐ ÞURRKURNAR sem ég er orðin ansi þreytt á og tek stundum pirringsköst út af. Sem betur fer oftast í einrúmi
En alla vega. Við litla fjölskyldan erum að fara í fjallatúr á morgun (laugardag) og ætla ég að halda áfram að pakka niður. Búin að smyrja fullt af samlokum og kaupa smá gotterí og Sigrún er þvílíkt spennt að vera sko að fara í FJALLAFERÐ Gaman gaman.
Yfir og út!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.10.2006 | 15:30
Komiði sæl
Jæja ég er enn á lífi... hef bara haft minni tíma til að blogga undanfarið og hef heldur ekki verið neitt svakalega upplögð til þess að láta eitthvað frá mér hérna. Það er einhver ritstífla í minni. Vonandi ekki neitt sem er komið til að vera.
En ég hafði það rosalega gott í bústað foreldra minna um helgina með Sexu-skvísunum og henni litlu Dröfn sem er 5 mánaða dúlla. Hún var algjör engill í þessari ferð og bara drakk og svaf og svaf... já það er sko gott að sofa í sveitakyrrðinni Olla eldaði sjúklegan kjúkling sem var með furuhnetufyllingu sem var troðið inn í æðri endann á kjúllanum og bragðaðist svona líka ljómandi vel. Svo bauð ég upp á Frozen Strawberry á eftir, ummm alveg svakalega góðan drykk sem mældist vel fyrir... bæði hjá þeim óléttu og ó-óléttu, hé hé hé Auðvitað var svo súkkulaðikaka dauðans á eftir með góðu kaffi og já Baileys líka bara. The nicest trip ever!!
Læt ykkur svo vita fljótlega hvað er á döfinni hjá mér á næstu dögum og vikum. Já það er víst enn ein fréttin sem ég segi ykkur frá þegar að því kemur en hér er ný könnun til vinstri á síðunni. Endilega svara henni bara og hafið það svo bara alltaf sem best.
Veriði sæl
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.10.2006 | 17:10
Farin í búst
Jæja GULLIN mín!
Ég er farin með sexunum mínum í bústað alla helgina svo ég segi bara hafið það gott um helgina. Það ætla ég sko að gera.
Adios
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.10.2006 | 11:04
Sagan af bleiku slaufunni
Myndarlegur maður á miðjum aldri gekk hljóðum skrefum inn í kaffihúsið. Hann fékk sér sæti við eitt borðið og gerði sig líklegan til að panta. Áður en hann komst svo langt varð honum litið á hóp ungra manna við næsta borð. Það fór ekki á milli mála að þeir voru að gera grín að einhverju í fari hans. Um leið og hann mundi eftir litlu bleiku slaufunni, sem hann var með í jakkahorninu, þóttist hann vita hvað hefði vakið kátínu ungu mannanna. Maðurinn reyndi að láta sem ekkert væri, enda vissi hann sem var að viðbrögðin voru sprottin af fáfræði. En það var erfitt að leiða glottið á andlitunum hjá sér. Hann leit beint í augu eins af ungu mönnunum, benti á slaufuna og setti upp spurnarsvip. "Þetta?"
Það var eins og við manninn mælt - vinirnir ráku allir upp skellihlátur. Þeim sem var ávarpaður tókst að stynja upp nokkrum orðum. "Fyrirgefðu, en við vorum bara að tala um hvað litla bleika slaufan væri æðislega sæt við bláa jakkann þinn!"
Maðurinn með slaufuna benti spaugaranum að koma og setjast við borðið hjá sér. Ungi maðurinn gerði eins og hann bað, þótt hann langaði hreint ekki til þess. Maðurinn með slaufuna sagði lágum rómi: "Ég geng með þessa slaufu til að vekja fólk til vitundar um brjóstakrabbamein. Ég geri það til heiðurs móður minni."
"Æ, það var leitt. Dó hún úr brjóstakrabbameini?"
"Nei, nei. Hún er lifandi og við góða heilsu. En það voru brjóstin hennar sem nærðu mig í frumbernsku og þau voru sá hlýi barmur sem ég hjúfraði mig upp að þegar ég var hræddur eða einmana. Ég er þakklátur fyrir brjóst móður minnar og þakklátur fyrir að hún er heil heilsu."
"Jamm," umlaði hinn. "Ég skil."
"Ég geng líka með þessa slaufu til heiðurs eiginkonu minni," hélt maðurinn áfram.
"Og er hún í fínu formi líka?" spurði ungi maðurinn.
"Já, hún er við hestaheilsu. Brjóstin hennar hafa veitt okkur hjónunum mikinn unað í ástarlífinu og þau nærðu okkar yndislegu dóttur. Ég er þakklátur fyrir brjóstin á konunni minni og fyrir að hún er heilbrigð."
"Og þú gengur þá líklega með slaufuna til heiðurs dóttur þinni líka?"
"Nei, það er um seinan að heiðra dóttur mína með slaufu. Dóttir mín lést úr brjóstakrabbameini fyrir einum mánuði. Hún hélt að hún væri of ung til að fá brjóstakrabbamein; þess vegna gerði hún ekkert í því þegar hún fann lítinn hnút í brjóstinu fyrir tilviljun. Hún fann ekkert til og þar af leiðandi hélt hún að það væri ekkert að óttast."
Unga manninum var greinilega brugðið og skammaðist sín, og nú var hann hættur að glotta. "Fyrirgefðu, mikið er leiðinlegt að heyra þetta."
"En í minningu dóttur minnar geng ég stoltur með litla bleika slaufu sem gefur mér tækifæri til að uppfræða aðra. Farðu nú heim og talaðu við konuna þína og móður þína, dæturnar og vinkonurnar. Og eigðu þetta
"
Maðurinn með slaufuna seildist ofan í vasa sinn og tók upp litla bleika slaufu sem hann rétti hinum. Ungi maðurinn mændi á hana, leit síðan upp eftir langa mæðu og spurði hvort hann vildi hjálpa sér að setja slaufuna á sig.
Í októbermánuði er sérstök athygli vakin á brjóstakrabbameini. Skoðaðu brjóstin reglulega og farðu í brjóstamyndatöku á tveggja ára fresti ef þú ert fertug eða eldri. Hvettu allar konur sem þér þykir vænt um til að gera slíkt hið sama.
Með kveðju
Rannveig
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar