Miðvikudagur til Mikillar gleði...

Jæja þá er skvísan byrjuð í Krakkaborg og líst ljómandi vel á leikskólann.  Við mættum í gær kl. 09.00 að staðartíma Ullandi og nú er það bara byrjað, púff.  Að þurfa að fara að vakna um hálf átta alla morgna héðan í frá.  Það er rosalegt!   En það eru ekki alltaf jólin svo að við mættum þarna eins og fyrr segir kl. 9 og hún fékk að skoða leikskólann aðeins og svo var farið út að leika og við fórum heim um hálf tólf.  Hún hélt nú ekki Hissa  Hún ætlaði sko að vera í matnum... það var þessi ilmandi góða matarlykt sem angaði um húsið en það var ákveðið að hún yrði í hádeginu á fimmtudaginn.  Og við mættum saman aftur í dag og ég var að vinna á deildinni hennar (sökum manneklu) frá 13-16 í dag.  Svo að á morgun fær hún að vera í hádeginu.  Hún er spenntust yfir því held ég því í dag í hádeginu hér heima neitaði hún alfarið að borða matinn og sagði bara:  "mamma, þú eldar ekki góðan mat" Gráta  Ég á ekki til orð.  Ég sem hélt að maturinn minn væri hinn BESTI Í HEIMI.  Það segir Stebbi allavega Glottandi  Sigrún borðaði reyndar grjónagrautinn sem ég eldaði í hádeginu í gær af bestu lyst... kannski vegna þess að það var pakkagrautur frá TORO Ullandi  Já já ég veit það... er ekki duglegasta húsmóðirin í heimi að elda grjónagraut úr PAKKA en come on!  Þetta er svo þægilegt.   En hún bíður sem sagt eftir því daman að fá að borða almennilegan mat í leikskólanum, hrmpf!!

En ég fór til krabbameinslæknisins á mánudaginn og það leit allt eðlilega út í hjartaómuninni og brjóstamyndatökunni.  Hjúkket!!  Ég er byrjuð á töflum núna sem ég þarf að taka næstu 5 árin ef allt gengur eins og það á að ganga.  Fer aftur til hans eftir mánuð til að hann fái nú að sjá hvernig töflurnar eru að fara í mig og þá verð ég á þriggja mánaðar fresti eftir það í einhvern tíma... veit ekki alveg hve lengi.  Fæ Zolotexið áfram og svo verða væntanlega teknar úr mér blóðprufur í hvert skipti sem ég fer til hans.  Og nú á að fara að fjarlægja lyfjabrunninn.  Veit ekki alveg hvernig mér líður með það... því þetta er svo assgoti þægilegt því það er bara ein lítil stunga og blóðið "rennur" út Óákveðinn en þegar enginn brunnur er þá þarf að fara að leita aftur að æðum í handleggnum og það finnst mér ekkert rosalega spennandi.  Reyndar gekk það ágætlega um daginn þegar ég fékk skuggaefnið þar inn þannig að nú bind ég bara vonir við að allar æðarnar séu búnar að jafna sig á öllu álaginu síðan í fyrra og skreppi ekki undan eins og þær voru farnar að gera.  Já bara neituðu að taka þátt í þessu partýi og létu sig hverfa Ullandi  hmmm... ekki alveg minn stíll.  Ég vil nú yfirleitt taka þátt í öllum partýum sem bjóðast.  Hlæjandi

Það eru komnar fleiri myndir inn á heimasíðuna hennar Sigrúnar úr brúðkaupinu.  Endilega kíkið á þær.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Velkomin heim elskurnar!! Ég sé að þið hafið skemmt ykkur konunglega í Danaveldi:)
Vonandi gengur allt í haginn hjá þér elsku Rannveig mín! Já, og hafið þið hjónakornin það ávallt sem allra best. Ætla svo að reyna að fara að draga Kidda í sveitina til ykkar:)
Kveðja, Þórlaug

Þórlaug (IP-tala skráð) 6.9.2006 kl. 19:15

2 identicon

Velkomin heim fra Danmark , góð ferð hjá ykkur hjónunum .Gott að þú fékkst fína skoðun hjá lækninum vonandi heldur það áfram þannig. Gangi ykkur mæðgum vel í Krakkaborg.
Kveðja Ko-Kolla.

Anna Kolla (IP-tala skráð) 6.9.2006 kl. 21:06

3 identicon

Blessuð vinkona

Velkomin heim úr þessari skemmtilegu brúðkaupsferð, hefur greinilega verið mikið stuð enda er Danmörk ágæt og Kaupmannahöfn bara frábær... Var reyndar ekkert rosalega ánægð með Danina í gær, en það er önnur saga og náttúrulega bara fótbolti...
kveðja
Sigga

Sigga (IP-tala skráð) 7.9.2006 kl. 10:46

4 identicon

Hæ hæ
Jæja þið hafið komist heil heim :-)
Það var rosalega gaman að fá ykkur í heimsókn, verst hvað þetta var stuttur tími en Stebbi náði þó að fara í þyrluflug... er hann ekki búin að sækja um í skólanum... hehehe

Bestu kveðjur frá Horsens :-)

Gunnar Svanur (IP-tala skráð) 7.9.2006 kl. 17:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 123790

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband