Uppskriftin

Vegna fjölda áskorana kemur hér uppskriftin að humarpizzunni góðu:  Ullandi

  • 1 pizzabotn (ég gerði hann úr 250 g. spelti, 3 tsk. vínsteinslyftidufti, 1 tsk salti, 2 msk. ólívuolíu og 125 ml. volgu vatni.  Hnoðaði þessu létt saman og forbakaði í ca 3 mín.  Breiddi svo blautu vizkustykki yfir á meðan ég útbjó restina).
  • 1 hvítlaukur (ekki 1 lauf heldur HEILL hvítlaukur)
  • 20 humarhalar teknir úr skelinni
  • ólívuolía
  • 1 poki rifinn pizzaostur
  • 1 bakarofn og ofnplata

Steikið hvítlaukinn í sneiðum í ólívuolíunni og skellið humrinum útí í smá stund.  Ekki of lengi.  Kryddið með salti og pipar.   Ekki of mikið Brosandi  Smyrjið pizzubotninn með olíu og skutlið hvítlauknum og humrinum jafnt yfir pizzuna og að lokum rifna ostinum yfir allt saman og bakð í 10 mín. í 200 gráðu heitum ofni (ekki blæstri).    Etið hægt og njótið.  Hvítvínið sem við drukkum með þessu var Vina Sol frá Torres.   Voðalega ljúft og gott.

Sit hér og sötra Panodil Hot því fjölskyldan virðist vera að fyllast af kvefi svona um hásumar.  Haldiðasé!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hrikalega girnileg pizza, ég vistaði uppskriftina hjá mér, takktakk, :) Kv. Erla

Erla Guðfinna (IP-tala skráð) 25.7.2006 kl. 10:27

2 identicon

Mmmm, ekkert smá girnilegt, prófa þetta við fyrsta tækifæri...bestu kveðjur nafna.

Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 25.7.2006 kl. 11:53

3 identicon

Ógilla spennandi pizza ég á eftir að prófa þessa og vel kælt hvítvín með, hlakka til.
kv. Gúa syss og co.

Guðrún systir. (IP-tala skráð) 25.7.2006 kl. 20:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband