Prjónagleði

Jæja þá er enn ein helgin liðin Gasp  og ýmislegt var nú brallað um þessa helgina.  Eitt af því var að kjellan eignaðist nýtt áhugamál Joyful  en það er PRJÓNASKAPUR.  Já mín skrapp í borgina á laugardaginn með álafosslopa og prjóna með sér til að læra almennilega að prjóna hjá Guðrúnu syss.  Og viti menn.  Þetta er bara að hafast svei mér þá.  Ég er sem sagt að reyna að prjóna mér hatt sem ég ætla að þæfa og svo er bara að sjá hvort hann passar Undecided  Ja hann hlýtur þá að passa á Sigrúnu ef hann verður of lítill á mig.  Við mæðgur fórum sem sagt og gistum hjá Guðrúnu systur og höfðum það agalega kósí á laugardagskvöldið og prjónuðum í kór Smile systurnar. 

Stebbi er búinn að vera í fjallaferð síðan á föstudaginn og er enn Pouty  hann fór á Grímsfjall og mér skilst að færið hafi ekki verið með besta móti fyrir jeppana en minn maður var auðvitað á snjóbíl.  Enn ein æfingaferðin.  Svo er ég búin að reyna að ná í hann síðan um fimmleytið í dag og ekkert samband að hafa, slökkt á öllum símum.  En svo núna klukkan 10 í kvöld fékk ég hringingu frá einum í Björgunarsveitinni um að mennirnir væru veðurtepptir í skála þarna innfrá og ætluðu að reyna að leggja af stað þegar veðrið hefur skánað aðeins.  Crying  O jæja mér létti nú við það að vita af þeim heilum á húfi í skála. 

jæja yfir og út og góða nótt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ja ekki spyr maður nú að sparivettlingunum. Myndarskapurinn í frúnni í algeru hámarki. Gangi þér allt í haginn mín kæra og vonandi fer Stebbi að koma til byggða! Bestu kveðjur, þín nafna.

Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 12.3.2007 kl. 10:00

2 identicon

Elsku vinkona!

Það er meira hvað þú ert alltaf dugleg...  skil ekki afhverju ég hef þetta ekki í mér líka!!  Vona að þú og þið öll hafið það gott.  Já, þessir blessuðu karlar... það er samt gott að þeir hafi áhugamál, vona samt að Stebbi skili sér heim sem fyrst.  Biðjum að heilsa í sveitina!

Þórlaug, Kiddi og fallegasti prinsinn!

Þórlaug og Kiddi (IP-tala skráð) 12.3.2007 kl. 13:47

3 identicon

Já rannveig mín hvað verður það næst ég vildi að ég hefði sömu eljuna og orkuna og þú

Anna Kristín (IP-tala skráð) 13.3.2007 kl. 23:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 123810

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband