Gulrætur og radísur

Jæja þá er bóndinn minn bestaskinn búinn að græja fyrir mig matjurtargarð Grin  Grin  Grin  Hann er nú reyndar frekar lítill en ég er eitt sólksinsbros því ég ætla sko að koma upp gólrótum í sumar.  Keypti gulrótarfræ í Húrígúrí þar sem þau fengust ekki í Blómavali á Selfossi (frekar en neitt annað þar Errm) og ég prufaði að kaupa svona borða þar sem fræin eru í.  Keypti líka hin típísku fræ og ætla að prufa bæði.  Svo keypti ég líka hvítar radísur sem ég hef aldrei prufað og þær eru svona ílangar eins og gulrætur.  Virkilega spennandi og svo er spurning um að fá sér kóríander, basil og steinselju í potta út á pallinn sem er ekki til Undecided

Já ég finn að hinir grænu fingur eru hreinlega að spretta fram þessa dagana. 

Og hvað var með þessar radísur þarna...???  UUUU nei gulrófur!!!  Já gulrófur eða radísur skiptir það nokkru máli.  Enda hefur mér alltaf fundist gulrófur vondar svo vertu sæl!!!  Tounge  Föttuðu þið þennan???  Þeir sem fatta fá gulrót að launum LoL


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hehehehe.........ég fattaði þennan  En af hverju stelurðu ekki bara gulrótum frá Friolf eða Dísu í Hátúni, það gafst nú nokkuð vel hérna einu sinni........!!!!!!  Var annars sjálf að setja niður gulrótafræ, Svava heldur því reyndar fram að það komi ekkert upp hjá mér en við spyrjum að leikslokum

lifðu í lukku en ekki í krukku.  Já og hamingjuóskir til meistara Stebba.

Sandra Dís (IP-tala skráð) 26.5.2008 kl. 09:08

2 identicon

Eitthvað rámar mig nú í þennan brandara,,,,,, "og þurfti að keyra alla leið í Hafnarfjörð,,,, ha Hafnarfjörð? var ekki nóg að fara í Kópavog???"  HAHAHAHAHAHA

Bestu kveðjur í sveitina,  og til hamingju með Stebba kallinn!!!!

Kv.Bogga 

Bogga (IP-tala skráð) 26.5.2008 kl. 09:22

3 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Ha ha ha ha ég vissi svo sem alveg hverjir myndu fatta þetta.  Alltaf sami húmorinn

Sandra settirðu fræin í bleyti fyrst???  Það skiptir víst gríðarlegu máli að láta þau spíra fyrst og þurrka þau aftur og setja svo niður.  Ég prufa það

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 26.5.2008 kl. 16:56

4 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Ef þú ert ekki búin að sá gulrótunum skal ég gefa þér ráð.

Settu fræið í skál og vatn á svo fljóti yfir. Bara kalt vatn. Geymdu það á góðum stað innanhúss, ekkert í sérstökum hita bara svona í eldhúsinu. 

Bráðum fara að sjást hvítar spírur og þá dreifir þú fræjunum á dagblað. Ekki endilega Dagblaðið, bara Mogga eða eitthvað álíka.

Þarna eiga þau að þorna svo að ekki loði lengur saman og dreifist fallega í raðirnar þínar. Passa þó að ekki skrælni.

Þetta flýtir fyrir svo miklu munar.

Þú veist hvað "skrælni" þýðir, er það ekki? - þó þú hafir alist upp á Bakkanum. Kv.

Helga R. Einarsdóttir, 26.5.2008 kl. 19:36

5 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

   Jú Helga mín ég veit hvað skrælni þýðir    ÞÓ ég hafi alist upp á Bakkanum, uss uss usss.

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 26.5.2008 kl. 20:43

6 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Gleymdi að segja takk fyrir ráðið Helga.  Ég prufa þetta

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 26.5.2008 kl. 20:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 123792

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband