26.ágúst

Jæja þá höfum við hjónin verið gift í eitt ár í dag     Undarlega fljótt að líða allt saman og mikið búið að bralla.   T.d. byrjuðum við á að fara í brúðkaupsferð til Danmerkur í 6 daga, svo byrjaði ég í nýrri vinnu og Sigrún á nýjum leikskóla á þessu tímabili, keyptum okkur fellihýsi og búin að ferðast slatta og fleira og fleira.  Við héldum upp á daginn í gær eiginlega með því að fá okkur humarpizzu og hvítvín, nammi namm.  

Sigrún keppti á sínu fyrsta frjálsíþróttamóti í gær við Félagslund á Flóamótinu.  Hún var voða spennt og tók þátt í 60 metrunum og langstökki.  Það voru 4 stökk í langstökkinu og henni fór fram í hverju stökkinu á fætur öðru og Unnur frænka hennar var henni innan handar með tæknina hehe.  Hún á náttúrulega ekki langt að sækja hæfileikana skvísan (já NEEEI ekki líta á mig GetLost ) og hún var alveg uppfull af áhuga. 

Búið er að skrá prinsessuna á bænum í fimleika í vetur.  Þurfum að fara eldsnemma á fætur á laugardögum úff og ég sem hélt ég fengi að sofa út um helgar Sleeping  En jæja það er svo sem ágætt að koma sér bara á fætur og nýta dagana.  Stebbi fær reyndar að fara með henni í fyrsta tímann þar sem ég verð í bústað í húsmæðraorlofi með öðrum góðum skvísum, vúhúúúú    

Er enn að hugsa málið með naggrísinn.  Veit ekki alveg hvort ég sé tilbúin í þetta... þrífa þrisvar í viku, muna að gefa mat og vatn, knúsa og allan þann pakka.  Á stundum alveg nóg með mína og mitt heimili eins og það er.   Sumir hérna eru oft ansi miklir orkuþjófar Whistling  hehe.   Reyndar er nú hægt að taka dýrið með sér í ferðalög þannig að þetta ætti ekki að vera svo mikið mál.

Yfrogút


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Til hamingju með daginn og allt hitt sem hefur gerst á árinu.

Ég myndi gefa mér verulega góðan tíma til að hugsa um naggrísinn, ég myndi held ég hugsa endalaust um hann og láta það duga. kv.

Helga R. Einarsdóttir, 26.8.2007 kl. 20:29

2 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Takk Helga   Já ég er alvarlega að hugsa um lítinn nagga.  Held ég verði ekki róleg fyrr en ég tek einn að mér hehe.  Læt mér örugglega ekki nægja að "hugsa" bara um hann. 

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 26.8.2007 kl. 20:39

3 identicon

Til lukku með daginn elskurnar, já tíminn er svo sannarlega fljótt að líða, ótrúlegt alveg hreint!!  Ég verð að vera sammála Helgu hér fyrir ofan, ég myndi líka bara hugsa um naggrísinn og láta það nægja, hehe

Kær kveðja í sveitina frá okkur Bakkabúum

Sandra Dís (IP-tala skráð) 26.8.2007 kl. 22:42

4 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Til hamingju með þennan merka árangur, tíme flæs ven jú hef fön

Hafðu það gott

knús Sædís

Sædís Ósk Harðardóttir, 26.8.2007 kl. 23:26

5 identicon

Það er ekkert mál að skilja naggrísinn eftir heima í nokkra daga með nóg af vatni og mat.. þannig það er ekkert mál að ferðast.... heheheh voða heit í þessari naggrísaumræðu!!! Kv. Erla

Erla Guðfinna (IP-tala skráð) 27.8.2007 kl. 21:02

6 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Ha ha ha já Erla ég held ég skelli mér bara á einn nagga svei mér þá.  Getur þú kannski reddað mér litlum kvenunga?  En er ekki betra fyrir þá að vera 2 saman?  Og hvort er þá betra að hafa 2 karla eða 2 kerlur saman því ekki ætla ég að fara að rækta litlu kvikyndin     Erla Guðfinna þú mættir endilega senda mér tölvupóst með upplýsingum um hvernig maður annast svona naggrís og hvað þeir kosta (búrið og allt).

B. kv. R

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 28.8.2007 kl. 08:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 123806

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband