Danablogg

Jæja hér situr maður í Horsens með rautt í glasi... og það Krystalsglasi frá Prag, það er ekkert öðruvísi Glottandi  Við hjónin fórum út að borða í kvöld á Venecia (ítölskum stað) með hjónaleysunum hér á bæ (Áslaugu og Gunnari) og fengum alveg hreint snilldarmat þar.  Snigla í forrétt og ég kjúlla í rjómasósu í aðalrétt og maðurinn minn fékk sér nautalund.  Hún var víst bara næstum jafn góð og lundin heima... Sigga litla í lundinn græna hæfadderífaddirallalla Hlæjandi  Já það er sko dekrað við okkur á hveitibrauðsdögunum hér í Danmark.  Fengum okkur ítalskt hvítvín og rauðvín með og svo fengu sér allir desert - nema ég.  Ég var gjörsamlega sprunin eftir þennan góða mat.  Þvílíkur var skammturinn.

Það var 25 stiga hiti hér í dag og sól Svalur á köflum og við Stebbi fórum auðvitað niður í bæ og á göngugötuna.  Þar var auðvitað farið í H&M - en ekki hvað!! og við gátum verslað svolítið á skvísuna.  Já og kelluna líka Ullandi  Fékk mér svo úlpu á spott pris Glottandi  Nú nú nema hvað!!  Við erum búin að vera hér úti í garði að veiða geitunga síðan við komum.  Þvílíkt magn af þeim hef ég sjaldan séð og þeir eru svo snarbrjálaðir að maður er í stríði við þá með bjórinn.  Því ég gef ekki sopa með mér sko, huh!!

Við Stebbi förum á hótelið á morgun í Köben og ætlum að mæla strikið í hænuskrefum Hissa og kíkja á aaaðeins fleiri búðir.  Kallinn fær sér bara bjór á meðan ég kíki á þetta, hehe.

Takk fyrir allar kveðjurnar elskurnar.  Við skemmtum okkur náttúrlega manna best í brúðkaupinu.  En sem sagt.  Við erum bara að fíla okkur vel hér í hitanum.

Farvel.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Yndislegt að lesa bloggið frá þér FRÚ Rannveig. Mannni langar bara í einn kaldann. Brúðkaupið var bara meiriháttar, spurning um að fara að skella sér á skeljarnar. Hafið þar frábærlega gott úti og skemmtið ykkur vel.

Bestu kveðjur
Íris

Íris B (IP-tala skráð) 30.8.2006 kl. 21:39

2 identicon

Góðan daginn frú mín góð, má ég bjóða þér pappír og berjaljós? Bara að tékka hvort þú sért nokkuð búin að gleyma titlinum. Til hamingju með þetta allt saman og ha det meget godt i Danmark. Hilsen fra nabba pa Island.

Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 31.8.2006 kl. 11:58

3 identicon

Hæ hæ gaman að heyra frá ykkur hjónunum í Danmark skemmtið ykkur vel og njótið. Líst vel á þennan kalda í hitanum þarna úti. kær kveðja héðan Svava. Bestu kveðjur til Gógó....hehe

svava (IP-tala skráð) 31.8.2006 kl. 17:11

4 identicon

Hva.....biður enginn að heilsa Badda bróður?? Ég geri það þá bara hér með, hehe. Venlig hilsen fra Island
Sandra Dís og co

Sandra Dís (IP-tala skráð) 1.9.2006 kl. 09:40

5 identicon

Hæ eskurnar.. takk fyrir í gær;o) mikið ljómandi var kokteillinn góður.. jumjumm;o) stórhættulegur alveg, algert sælgæti og var klukkan nú ekki nema eitthvað um 4;o)
Vona að krókodíllinn og kengúran hafi bragðast vel og við sjáumst í kvöld i öðrum í kokteil;o)
Knús Þóra bauni

Þóra (IP-tala skráð) 2.9.2006 kl. 08:10

6 identicon

Hva..kokteilar,krókódílar og kengúrur hætt að lítast á þetta maður! gott að þið eruð komin eða alveg að koma heim hehehe kveðja Svava

svava (IP-tala skráð) 3.9.2006 kl. 23:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 123813

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband