Allt að verða klárt

Jæja þá er ég búin að margþræða helstu búðir á Selfossi sem gætu selt útileguvörur og það er ekki auðvelt að finna það sem mig vantar.  Í einni ónefndri byggingavöruverslun sem ætti nú reyndar að vera búið að loka fyrir löngu fyrir lélega þjónustu (en það er önnur saga) þar var bara ekkert til nema samansafn af afgöngum síðan í fyrra og starfsmaðurinn sem ég talaði við sagðist bara EKKERT vita hvort það kæmi eitthvað nýtt inn Gasp  Í einni lágvöruverslun var heldur ekkert til nema pikknikk körfur og plastskálar.  Þannig að út fór ég enn eina ferðina þaðan án þess að finna neitt.  Svo fór ég á aðalstaðinn Wink  og viti menn.  Fann þessar líka fínu vörur til að setja í nýja fellihýsið mitt.  Pikknikk-pakka með könnu, glösum, dúk, diskum, hnífapörum, bakka undir herlegheitin og meira að segja rör með Smile  Nú svo fann ég líka plastskálar í mismunandi stærðum (fyrir afgangana auðvitað og salötin) og kassa fyrir brauðmeti, hrökkbrauð og solleiss.  Já það má bara ekkert vanta og ég nenni ekki að hafa þetta allt í plastpokum út um allt hús skiljiði Grin  Þannig að ég er hreinlega að verða klár í útilegurnar.  Hhmm ég ætla nú ekki að uppljóstra því hvert við erum að spá í að fara um næstu helgi Whistling  ég held að enginn venjulegur Íslendingur fari þangað í tjaldútilegu Woundering 

Knús á línuna eins og Ásta Lovísa hefði sagt.  Blessuð sé minning hennar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Veistu ég var allt með í plasti og voða ánægð með mig en svo fór mig að leiðast uppvaskið svo ég keypti bara einnota diska en er með plast-glös og alvöru hnífa pör ( svona svo maður sé ekki með eins mikla sektarkend yfir náttúruni) þá mínkaði uppvaskið til muna og í staðin gat ég farið í göngutúr með fjölskylduni eða bara fengið mér bjór í róliheitunum með kallinum en ég er forvitin hvert eru þið að fara?

kveðja Kolla

Kolla rauða (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 13:14

2 identicon

Bara allt að verða klárt í útilegurnar, til lukku með það....

 Er það svo bara ekki humarhátíðin í lok mánaðrins?  Tilvalið fyrir regnfólk amk.

 kveðja

Sigga og Co.

Sigga Kristjansd (IP-tala skráð) 6.6.2007 kl. 14:05

3 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Já Kolla við erum sko líka með einnota dótarí með en ekki eingöngu.  Reyndar vantar mig núna bara diska í plasti en það sleppur nú alveg þó maður sé bara með einnota diska.  Ég nenni hins vegar ekki alltaf að drekka kaffið mitt úr linum plastglösum og borða með hnífapörum sem brotna við fyrsta bita  

Og Sigga ég hefði svoooo verið til í Humarhátíð en er því miður með annað á prjónunum akkúrat þá helgi   en kannski finnum við aðra helgi sem er laus fyrir okkur Regnfólkið.  Alveg kominn tími á útilegu hjá þeim ágæta hópi

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 6.6.2007 kl. 15:10

4 identicon

Góða skemmtun í útilegunum og bestu kveðjur þín nafna.

Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 15:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 123805

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband