2 skipti eftir

Þá er ég komin úr borginni blíðu í blíðu Glottandi  Svei mér þá - alla mína daga.  Það var ekki hægt að vera inni í bíl í dag slíkur var hitinn.  Jeminn eini.  Ég kíkti náttúrlega í nokkrar búiðir áður en ég fór í lyfin.  Hitti lækninn ekki í þetta sinn þannig að ég fékk ekkert að vita úr sneiðmyndatökunni sem ég fór í fyrir 2 vikum (já veit... fljótt að líða) en engar fréttir eru góðar fréttir er þakki?  Hissa  Ég sveitamanneskjan arkaði náttla af stað í bæinn í morgun í STÍGVÉLUNUM Skömmustulegur  í hitanum (sem ég vissi btw ekki að ætti eftir að verða svona mikill í dag) jaaaa þetta voru að vísu ekki fjósastígvélin en ansi voru þau heit þannig að ég rauk í búð og keypti mér sandalalalala.  Rauða og fína.  Veit það ekki á góða orku?!  Það held ég Ullandi  Það getur alla vega ekki verið að rauði liturinn þýði að mig vanti orku því orkumeiri hef ég ekki verið í laaaaangaaaan tíma.  Og hana nú!!   En mikið leið mér betur í fótunum.

Það er víst ekkert lát á blíðunni næstu daga svo ég hvet ykkur endurskinsmerkin þarna úti að kaupa ykkur sterka sólarvörn svo maður gangi ekki fram á brunarústir einar eftir helgina.  Ja það var nú bara 18 stiga hiti á Hellisheiði í dag.  Það er nú bara ekkert öðruvísi.

En já alveg rétt.  Í dag eru ákkúrat 365 dagar síðan ég fór í skurðaðgerðina (brottnámið).  Já vá fljótt að líða myndi ég segja.  Og sársaukinn við þetta allt saman er nú eiginlega bara gleymdur.  Svona að mestu. 

Hafið það gott í blíðunni næstu daga.  Það ætla ég að gera og bjóða kallinum upp á humarpizzu og vel kælt hvítvín með, mmmmm


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá, það er með ólíkindum að það sé heilt ár liðið, mér finnst eins og það hafi verið í gær sem ég var að skreppa til þín uppá spítala. Og þó........þegar ég horfi á þig í dag finnst mér eins og þetta hafi gerst fyrir 10 árum því þú ert svo kát og hress dúllan mín :-)
Knús og kossar
Sandra Dís

sandra dís (IP-tala skráð) 21.7.2006 kl. 11:16

2 identicon

Já, það er nú frábært að lyfjagjöfinni er að ljúka og þú svona dásamlega hress, njóttu blíðunnar mín kæra og góðar kveðjur í sveitina, þín nafna.

Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 21.7.2006 kl. 11:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 123790

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband