17.3.2007 | 10:16
Aðgerð
Ja komiði öll sæl og blessuð!
Nú er búið að ákveða nokkurn veginn aðgerðardag fyrir augun mín Ég fer á mánudaginn 26.mars í viðtal við svæfingarlækninn og skurðlækninn og svo verður aðgerðin gerð annað hvort daginn eftir eða þriðjudaginn þar á eftir (3.apríl). Vei vei. Ég er auðvitað hæstánægð með að það á að reyna að laga þennan leka hjá mér því eins og þið vitið þá eru pípurnar mínar ónýtar (táragöngin) og það á sem sagt að setja í mig gerfi-táragöng. Einnig verður settur einhvers konar gler-kubbur efst í nefið sem gerfipípurnar verða svo tengdar við. Nú krossa ég bara fingur um að augun mín hætti alveg að leka eftir þessa aðgerð
En jæja. Hér í lokin kemur smá gáta fyrir ykkur. Ef þið fattið hana skrifið þá svarið í comment ok!!
Hvert er orðið, sem vísan era ð benda á?
Líst mér best ég lúri um stund
laglegt þykir nafnið varla.
Ekki bratti ekki grund
undirballans má það kalla. Leggið nú höfuðið í bleyti kæru vinir
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vonandi heppnast nú aðgerðin svo þú getir sleppt tissjúpakkanum elskan. Þarf að leggja höfuðið meira í bleyti til að skilja þessa gátu.....þín nafna.
Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 19.3.2007 kl. 10:03
Gott að þú kemst loksins í aðgerðina og vonandi heppnast hún vel . Gangi þér vel í þessu frænka mín. Ég þarf nú aðeins að velta þessari vísu betur fyrir mér áður en ég læt vaða.............................................ég reyni að veiða þetta uppúr þér við tækifæri....ha ha ha ha. Bless í bili Ko-Kolla.
Anna Kolbrún Þ (IP-tala skráð) 19.3.2007 kl. 22:21
Halli var það !!! Eða Halla, Hallur, það er að minnsta kosti halli á rekstrinum í undirballans !Heh, er nefnilega búin að vera nánast óvinnufær síðasta korterið, hef hugsað svo mikið um hvað þetta gæti verið. Seisei... En ég gleðst með þér að þú þurfir ekki að bíða lengur eftir aðgerðinni, og vona innilega að hún takist eins og best verður á kosið. Bestu kveðjur til ykkar, og allra sem ég þekki í sveitinni, kær kveðja Inga
Inga V (IP-tala skráð) 20.3.2007 kl. 09:36
Jú jú Inga þú hafðir það HALLI var það. Ekki bratti ekki grund = halli.
Takk fyrir allar kveðjurnar.
Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 20.3.2007 kl. 10:42
Gat verið að gáfnaljósið Inga V. myndi finna útúr þessu, löngum verið góð í alls kyns gátum.....
Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 20.3.2007 kl. 13:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.