12.2.2007 | 16:38
Afmæliskveðja
Jæja góðir gestir. Nú ætla ég að taka eitt lag .... NEI NEI ég ætla ekkert að taka það. Ég ætla að flytja eitt lag ... NEI NEI NEI ég ætla ekkert að flytja það, ég ætla að hafa það á staðnum. Ég ætla að syngja eitt lag. Tileinkað vinkonu minni henni Söndru Dís því hún á afmæli í dag skvísan. Nú hef ég upp raust mína:
Hún á afmæli í dag hún á afmæli í dag hún á afmæli hún Sandraaaaaa. Hún á afmæli í dag TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN KÆRA VINKONA. Þú ert ekki deginum eldri en 25.
En héðan er allt gott bara. Stebbi fór í sína fjallaferð um helgina og hafði gaman af. Við mæðgur fórum í sumarbústaðinn til mömmu og pabba og höfðum það ákaflega gott. Skvísan var þó veik og komst því ekki í pottinn. En við bættum bara um betur og skutluðumst í hann um miðnætti á laugardaginn og stútuðum einni hvítvín þar. Voðalega ljúft í blíðunni og stjörnubjörtum himni.
Blessiykkur
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já ég er greinilega eitthvað á undan, því ég hringdi í hana í gær og óskaði henni til hamingju með daginn. Sé það núna að ég var aðeins of fljót á mér, en hún minntist samt ekkert á það. Já svona getur það verið, maður er alltaf að flýta sér....
Er annars að pakka niður, fer til Berlín á morgun á ráðstefnu og fund. Hafðu það gott mín kæra. Sjáumst vonandi fljótlega
kveðja Sigga
Sigríður Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 12.2.2007 kl. 22:52
Takk elsku dúllan Manni líður amk alltaf eins og maður sé 25, hehe........ja nema kannski akkúrat þessa dagana, bumban ætlar bara ekkert að hætta að stækka. Knús í sveitina frá okkur öllum
Sandra Dís
p.s. sigga mín, hvað er einn dagur til eða frá........bara notalegt að fólk muni eftir manni
Sandra Dís (IP-tala skráð) 13.2.2007 kl. 23:19
Hæ eskan
Verð alveg græn af öfund þegar ég heiri um svona sumarbústaða og pottaferðir!!! Það vantar alveg hér;o( Annars allt gott að frétta héðan! Lífið gengur sinn vanagang Hlakka til að koma heim í sumar... verða kanski í alveg einn og hálfan mánuð;o) ef mér tekst að redda mér plássi í æfingakennslu!!
Bið að heilsa í kotið
Knús Þóra
Til hamingju með afmælið (um daginn) Sandra;o)
Þóra (IP-tala skráð) 18.2.2007 kl. 11:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.