24.5.2008 | 23:00
Gamanið búið
Jæja þá er það ljóst - við urðum í 14. sæti sem mér finnst nú bara nokkuð gott og megum við vera stolt af okkar fólki. Þau voru rosalega flott á sviðinu og útgeislunin var þvílík og þau gerðu þetta sko að sínu
Nei í alvöru þau voru bara flottust verð ég að segja og þetta blessaða Rússa lag bara prump. Held svei mér þá að skautadansarinn hafi verið að hala inn stigunum þarna. Heitir hann ekki örugglega BilUN en ekki BilAN?
Hefði nú frekar viljað sjá Grikkland vinna... ja eða bara Noreg. Þær voru þrælflottar skvísurnar enda urðu þær í hva....5. sæti er þakki?
Við urðum alla vega fyrir ofan Svíana og er þá ekki bara allt í orden eins og sagt er ?!
En kjötbolluveislan í Vorsabæ tókst vel með Vorsabæjar-rabarbarasultu og bræddu smjörlíki út á. Ekki alveg það hollasta svona en come on!!! Hver borðar hollt á Eurovision-kvöldi?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.5.2008 | 18:06
Það er bara veisla
Jæja þá er bóndinn loksins orðinn húsasmíðameistari Til lukku með það Stebbi minn
Útskriftin var í dag og minn maður mætti auðvitað til að taka við skírteininu. Við Sigrún skruppum í nokkrar búðir á Selfossi eftir vinnu og færðum bóndanum svo gjöf að sjálfsögðu og nú er mín með steik í ofninum, rautt í glasi og blóm í vasa
Veislukvöld framundan
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.5.2008 | 09:06
Ísland verður með
Jæja nú getur landinn heldur betur sest fyrir framan imbann á morgun og fylgst spenntur með því Ísland komst áfram, jibbbbbí. Ég var úti að borða í gær með nokkrum skvísum af Bakkanum og við fögnuðum heldur betur þegar við fengum þær fréttir að við yrðum með á laugardag.
Svo nú er bara að hendast í Bónus til að kaupa partýmatinn og í Mjólkurbúðina til að kaupa drykkina og hvetja okkar fólk heima í stofu á morgun
En djö... voru þau flott í gær. Geisluðu þvílíkt á sviðinu og orkan streymdi frá þeim. Enda langþráður draumur LOXINS orðinn að veruleika
Með Euro kveðjum Rannveig
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.5.2008 | 12:48
E U R O V I S I O N - Seinni forkeppnin
| |||
1 | Ísland | ||
2 | Svíþjóð | ||
3 | Tyrkland | ||
4 | Úkraína | ||
5 | Litháen | ||
6 | Albanía | ||
7 | Sviss | ||
8 | Tékkland | ||
9 | Hvíta-Rússland | ||
10 | Lettland | ||
11 | Króatía | ||
12 | Búlgaría | ||
13 | Danmörk | ||
14 | Georgía | ||
15 | Ungverjaland | ||
16 | Malta | ||
17 | Kýpur | ||
18 | Makedónía | ||
19 | Portúgal |
|

Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2008 | 21:39
Heja Norge!
Já þetta var bara nokkuð gott í kvöld verð ég að segja. Finnsku rokkararnir voru náttúrulega bara eins og Iron Maiden þarna á sviðinu með tilheyrandi öskrum og takti. Ég er ánægð með að Noregur og Finnland komast í aðalkeppnina á laugardaginn og held satt að segja að Noregur verði bara nokkuð ofarlega þetta árið. Fínt lag hjá skvísunum sem voru hinar glæsilegustu á sviðinu.
Veit ekki hvort ég get sagt það sama um kynbomburnar frá Armeníu og Grikklandi. Gríska atriðið og lagið sjálft bara copy/paste af framlagi þeirra ... hvenær var það... þegar Helena söng fyrir Grikkland "you are the one, you're my number one!" Algjörlega copy paste af því dæmi. Veit ekki alveg hvort þetta sé málið í ár. Kynbombur fara þó aldrei úr tísku eða hvað?!?!?
Ísland hlýtur að komast í aðalkeppnina ef lögin verða eins og þau voru í kvöld því langflest laganna var hreinlega ekkert varið í.
![]() |
Noregur og Finnland áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar