8.4.2008 | 21:24
Gleðifréttir
Loksins - já LOKSINS fékk ég hringingu frá augndeildinni á LSH og guess what! Búið að kalla mig inn í aðgerð á hægra auganu JIBBÍ og nú er bara að vona að hún takist jafn vel og hin aðgerðin því rörið þar er svoleiðis að svínvirka að ég veit ekki hvað annað eins er Mér stóð til boða að fara í aðgerðina núna næsta mánudag en ég varð eiginlega að afþakka þann dag og bað um 5.maí í staðinn því ég treysti því ekki að ég yrði búin að jafn mig alveg þegar kemur að Danmerkurferðinni. Hún er fyrirhuguð aðeins 9 dögum síðar og ég vil ekki taka sénsinn á ef eitthvað kæmi uppá. Enda get ég alveg beðið í 3 vikur í viðbót við biðina sem komin er nú þegar Ritarinn sem ég talaði við taldi næstum öruggt að ég gæti frestað henni þar til 5.maí og nú er bara að krossa fingur.
Geggjað ekki satt? Nú sé ég fyrir mér að ég losni svo að segja alveg við bréfið og geti farið að lifa "eðlilegu" lífi... hvað sem það nú er!
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta eru sannkallaðar gleðifréttir. Ég vona að þú komist að 5. maí svo þú verðir örugglega í þínu besta formi í Danaveldi!!!
Kveðja Kristín
Kristín (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 22:36
Sæl
Ég er búin að þesa bloggið þitt reglulega síðan um það leyti sem þú varst í sjónvarpsviðtali haustið 2006. Þá var ég einmitt að hefja mína brjóstakrabbameinsmeðferð. Mikið var gott að lesa bloggið þitt, það var mér góð hjálp og mikill stuðningur.
Frábært að þú skulir vera að komast í aðgerðina og getir fari að "klára" þetta augnamál. Ég slapp blessunarlega við þennan hluta.
Gangi þér vel
Kveðja
Þórhildur Kristjánsdóttir
Þórhildur Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 20:46
Gangi þér allt sem best gæzkan
Helga R. Einarsdóttir, 9.4.2008 kl. 22:16
Takk fyrir
Frábært Þórhildur að ég hef getað hjálpað þér á þessum erfiðu tímum. Mér hefur dottið í hug að hætta að blogga en er þá líka hrædd um að síðan týnist og það vil ég ekki því ég sjálf notaði svona blogg (hjá Pálínu, Maríu Erlu og Döbbu) til þess að hjálpa mér í gegnum erfiðasta hjallinn. Að hafa hjálpað einni manneskju eða tveimur er mér mjög dýrmætt. Gangi þér allt í haginn og endilega hafðu samband ef eitthvað er.
Bestu kveðjur
Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 9.4.2008 kl. 22:59
Frábært systir og vonandi kemst þú að þann 5. maí. Kv. Guðrún syss og co.
Guðrún Bjarnfinnsdóttir (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 23:22
Frábært vonandi gengur allt upp hjá þér hafðu ljúfa helgi Elskuleg
Brynja skordal, 11.4.2008 kl. 11:40
Gott mál og góða skemmtun í dk.
Eyrún Gísladóttir, 11.4.2008 kl. 23:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.