5.1.2008 | 10:56
Harðskafi
Ef þú hefur ekki lesið Harðskafi e. Arnald Indriðason og ætlar að lesa hana þá skaltu hætta að lesa HÉR! Ég er búin með hana en ég fékk hana í jólagjöf frá Stebba og Sigrúnu.
Ég verð nú að segja það að hver bókin á eftir annarri (e. AI) er þannig að maður lætur hana ekki svo auðveldlega frá sér. Maður vill vita hvað gerist næst... hverju kemst Erlendur að. Og eins vill maður vita hvort hugmyndir manns sjálfs séu þær sem gerast í raun og veru.
Þannig var það með Harðskafi. Mér datt það nú fljótlega í hug þegar ég las bókina að sjálfsmorð Maríu var ekki allt þar sem það var séð. Auðvitað ekki því þá væri engin spennusaga í uppsiglingu Það komu þarna lögreglumenn á Selfossi að rannsókninni í upphafi og ég sá auðvitað alltaf fyrir mér ákveðinn ungan lögreglumann í lögreglunni á Selfossi en mér fannst bókin þó fara rólega af stað. Svo komu þarna kaflaskil þar sem ég reyndi að lesa mig inn í nóttina en gat það ekki sökum syfju... og einu sinni þurfti ég meira að segja að lesa aftur nokkrar blaðsíður þar sem ég hef verið nánast sofnuð þegar ég las þær
En ég sá það fljótlega að Baldvin og Karólína hlytu að hafa eitthvað á samviskunni. Hún sem miðillinn Magdalena og hann læknirinn sjálfur gat gert ótrúlegustu hluti. En að helvítis fíflin skulu hafa komist upp með það sem þau gerðu... AARRRRGGGHHH. Mér fannst ótrúlegt að María hefði hengt sig sjálf þegar Erlendur var að tala við Baldvin í sumarbústaðnum en svo kom það líka á daginn. Helv.... stuðtækið var ónýtt og auðvitað setti hann hana í snöruna helvískur.
En jæja þetta var heljarinnar spennusaga sem maður gleymir sér algjörlega við að lesa
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
best að fara að lesa þessa bók! kv SVava
svava (IP-tala skráð) 5.1.2008 kl. 12:17
Sæl vinkona og gleðilegt ár! Þessa bók fékk ég einmitt líka í jólagjöf, frá Laugaborg;) Já hún er ÆÐI! Ég gat ekki hætt að lesa hana, las út í eitt þangað til að hún var búin. Arnaldur er algjör snillingur, heldur manni alveg við efnið frá fyrstu blaðsíðu. Vona að þú og þínir hafið haft það gott um jólin. Hlakka til að sjá ykkur, sem verður vonandi sem allra fyrst! Kveðja frá okkur öllum í "gettóinu".
Þórlaug (IP-tala skráð) 6.1.2008 kl. 12:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.