11.8.2007 | 11:39
ooo litla rófan
Mæli með nýjum íslenskum rófum þessa dagana. Ekkert smá safaríkar og góðar. Og svo líka bráðhollar
Gulrófan (Brassica napus rapifera) er upprunnin í N-Evrópu og er hennar fyrst getið með vissu í ræktun á Íslandi í upphafi 19. aldar. Hún var meðal þeirra matjurta sem fyrstar náðu útbreiðslu meðal landsmanna.
Gulrófan er C-vítamínauðug og hefur verið kölluð appelsína norðursins..
Áætluð meðalneysla á íbúa er 2,4 kg á ári. Til megin framleiðslunnar er sáð að vori (apríl / maí) en einnig eru þær forræktaðar í gróðurhúsum og plantað út í byrjun sumars. Þær gulrófur koma á markaðinn þegar geymslu gulrófurnar eru að klárast. Til að flýta uppskeru þeirra eru notaðir dúkar sem settir eru yfir eftir sáningu eða útplöntun.
Til eru íslenskir stofnar af gulrófum og eru þekktastir Kálfafellsrófa og Ragnarsrófa. Einnig hefur verið ræktaður stofn sem nefnist Sandvíkurrófa. Algengasta afbrigði í ræktun er Vige sem er norskt afbrigði og Sandvíkurrófa sem er stofn af Kálfafellsrófu
(tekið af vef Sölufélags garðyrkjumanna)
Í kjölfar þessarar fræðslu deili ég því með ykkur að ég fór í 40 mínútna stafgöngu heima í sveitinni í gær
Skyldi átakið vera hafið?
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.
Ný könnun!!
Hvað ertu?
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.