Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

Duglegt vinnufólk

Jæja þá er 4 daga vinnuviku Hafsteins vinnumanns lokið hér í Vorsabæ og má segja að Sigrún var yfir sig spennt þegar hún vissi að von væri á honum frænda hennar.  Þau eru búin að dunda sér við margt hér í sveitinni síðustu daga og m.a. hjálpa mér aðeins í garðinum því ef ég tek göngutúr um garðinn get ég vart látið hann vera.  Alltaf einhver verk að vinna og fínt að geta náð sér í orku við hin ýmstu garðverk.

Myndirnar tala nú eiginlega sínu máli hér en eins og þið sjáið þá eru þau dugleg að hjálpa til í fjósinu.  Sigrún fékk að þvo kúnum, setja á þær júgurfeiti og toga í spenana á þeim og það kom meira að segja mjólk úr þeim W00t

Mjaltatími  IMG_7383  Vinnukonan  Kýrnar sóttar  Þuríður þú varst með okkur í anda Wink

Annars var ég með smá kaffisamsæti hér í dag sem tókst svona glimrandi vel.  Takk fyrir mig Grin


Ferðasaga síðustu helgar

Fórum af stað frá Vorsabæ seinni part á föstudegi og héldum í austurátt (frá Selfossi séð).  Ætlunin var að fara að Hamragörðum og planta fellihýsinu þar.  Komum við á Hlíðarenda og fengum okkur borgara og amma Lóa splæsti ís á prinsessuna sem fékk líka að kíkja á bakvið með ömmu Grin  Héldum svo áfram en þegar við komum að Hamragörðum þá var frekar mikill vindur þar og nánast krökkt af fólki þannig að við ákváðum að halda heim að Skógum.  Og sáum ekki eftir því því þar var blánkalogn og yndislegt að vera.  Við vöknuðum á laugardaginn í sól og sumaryl og skelltum okkur í stuttarana og héldum upp á Fimmvörðuháls.  Eða upphafið að honum a.m.k.  Þar voru nú hvorki fleiri né færri en 400 þrep (ÖNNUR LEIÐ) og ég hélt ég dræpi mig því þolið er ekki upp á marga fiska W00t  Sigrún stökk þetta bara í einni bunu og sagði mömmu sinni að drattast úr sporunum.  Stebbi hljóp þetta nánast líka en svo hafðist þetta nú á endanum hjá kellu og þvílíkt útsýni.  Váááá!  Við Skógafoss  IMG_7251  IMG_7264  Fjallalamb  Já við tókum sem sagt klukkutíma göngutúr þarna uppi í yndislegu veðri og tókum auðvitað nesti með okkur í nýja boxinu frá Þuríði Smile

Svo tókum við rúnt inn í Þórsmörk eftir hádegið og þar var blíðan ekki síðri.  Fallegur staður og við hittum nú bara þó nokkra sem við þekkjum þar innfrá.  Fórum fyrst inn í Bása og svo aðeins inn í Langadal.  í Básum  Í Langadal  Þegar við komum aftur "heim" voru mamma og pabbi mætt á svæðið og við borðuðum saman í blíðunni og Sigrún tók þessa mynd af okkur við þá athöfn.  Þarna sjáiði nú hvernig fjölsyldan hagar sér í fríinu Glöð á góðri stund  Ef þið smellið á myndirnar má sjá þær stærri. 

En jæja.  Á sunnudaginn komum við við í Paradísarhelli og Sigrún og Stebbi skoðuðu hann.  Ég komst ekki upp.  Já það er bara staðreynd.  Ég er bara ekki sterkari en þetta.  Hvernig fer maður að því að toga sig upp á keðju - berhentur- nærri hálft tonn að þyngd?  Ég bara spyr!  Ég gat nú aldrei farið upp helv.... kaðlana í leikfimi hér um árið!!!  Í Paradísarhelli  En svo enduðum við ferðina á að kíkja á Seljalandsfoss og hann er nú alltaf jafn fallegur blessaður.  Við fórum nú ekki á bak við hann að þessu sinni en gerum það örugglega næst Seljalandsfoss  Fosssssss

Við kíktum svo á tjaldsvæðið á Hellu (Árhús) sem okkur leist mjög vel á.  Það leynir á sér og er skipt í svona skemmtilega reiti.  Þetta er bara hinumegin við Gaddstaðaflatir og erum við jafnvel að spá í að fara með fellihýsið þangað (ef veður leyfir) þegar landbúnaðarsýningin verður haldin þar 22.-24.ágúst.  Er einhver með?  Ég lofa að eiga eitthvað gott útí kakóið Wink  Já já mín bara farin að taka þátt í landbúnaðarsýningum og hvaðeina.  Svo er ég alveg að fara að ganga í kvenfélagið í sveitinni.  Geri aðrir betur Whistling

Farvel kæru lesendur og aðrar endur!  Með rendur!  Ykkar fjendur!  Nei nú held ég að ég komi mér í bælið.  Enda búin að sauma nýju gardínurnar fyrir eldhúsgluggann en það var takmarkið að klára þær fyrir nóttina LoL  Þvílík orka!  Ætli sé hægt að virkja mig?  Best að hringja í Frikka.....


Fjögurra daga sæla í bústað :)

Jæja þá erum við mæðgur komnar heim eftir 4 frábæra daga í sumarbústað mö og pa LoL  Við fórum sem sagt á fimmtudaginn í blíðunni og skelltum okkur í pottinn og í sólbað úti á pall.  Við tókum hjólið hennar Sigrúnar með og hún tók smá hjólatúr.  Reyndar frekar erfitt að hjóla þarna þar sem mölin er frekar gróf og stórir hnullungar í veginum.  Hún kíkti bara í kaffi í næsta bústað Wink 

Á föstudeginum skelltum við okkur í sund í Reykholt.  Það var mjög gaman og lítil rennibraut sem Sigrún gat farið ein í og hlussaðist svo út í laug og hafði gaman að.  Reyndar fór mamman aðeins líka en rann nú frekar hægt niður W00t  Spurning hvor hafi hlussast meira útí, haaaaaa!  Við kíktum svo á kaffihúsið Klett þarna í Reykholti og fengum þar eina bestu villisveppasúpu sem ég hef smakkað.  Og nýbakaðar brauðbollur með.  Sigrún fékk sér borgara með grænmeti og kláraði hann fljótt og vel.  Drifum okkur svo í búst aftur í sólbað Cool

Á laugardaginn vöknuðum við svo við rigninguna sem buldi á þakinu og nutum við þess að vera inni og lesa blöðin í kyrrðinni.  Svo skellti ég mér í pottinn um kvöldið með Sigrúnu.

Á sunnudag var svo rok og rigning en við Sigrún fórum nú í góðan göngutúr í Brekkuskóginum og urðum haugblautar og fínar.  Veguðum salt og róluðum smá og skoðuðum býflugurnar og blómin Grin Fórum svo inn og horfðum á Ronju Ræningjadóttur undir sæng.

Svona á fríið að vera     Það eru komnar nýjar myndir inn á Sigrúnarsíðu


Hún á afmæli í dag...

... hún á afmæli í dag!  Whistling Hún á afmæli hún Svavaaaaaaa.  Whistling  Hún á afmæli í dag Whistling

Gaman saman

Svava mín til hamingju með daginn.  Sjáumst seinna í dag Wink 

 


Við Apavatn

Í vatnsslag    Sykurpúðahópgrillun    Gítarspil og söngur    Nafnarnir og Sigrún    Matur   

Vorum að koma úr útilegu við Apavatn.  Vorum í algjörri rjómablíðu alla helgina og börnin skemmtu sér konunglega ekki síður en við fullorðnu.  Það var farið í ratleik, í veiði, golf, minigolf, vatnsbyssuslag, grillaðir sykurpúðar, borðað, sungið, drukkið og spilað.  Myndirnar tala sínu máli og þið getið séð þær stærri ef þið smellið á þær Cool


Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband