Ferðasaga síðustu helgar

Fórum af stað frá Vorsabæ seinni part á föstudegi og héldum í austurátt (frá Selfossi séð).  Ætlunin var að fara að Hamragörðum og planta fellihýsinu þar.  Komum við á Hlíðarenda og fengum okkur borgara og amma Lóa splæsti ís á prinsessuna sem fékk líka að kíkja á bakvið með ömmu Grin  Héldum svo áfram en þegar við komum að Hamragörðum þá var frekar mikill vindur þar og nánast krökkt af fólki þannig að við ákváðum að halda heim að Skógum.  Og sáum ekki eftir því því þar var blánkalogn og yndislegt að vera.  Við vöknuðum á laugardaginn í sól og sumaryl og skelltum okkur í stuttarana og héldum upp á Fimmvörðuháls.  Eða upphafið að honum a.m.k.  Þar voru nú hvorki fleiri né færri en 400 þrep (ÖNNUR LEIÐ) og ég hélt ég dræpi mig því þolið er ekki upp á marga fiska W00t  Sigrún stökk þetta bara í einni bunu og sagði mömmu sinni að drattast úr sporunum.  Stebbi hljóp þetta nánast líka en svo hafðist þetta nú á endanum hjá kellu og þvílíkt útsýni.  Váááá!  Við Skógafoss  IMG_7251  IMG_7264  Fjallalamb  Já við tókum sem sagt klukkutíma göngutúr þarna uppi í yndislegu veðri og tókum auðvitað nesti með okkur í nýja boxinu frá Þuríði Smile

Svo tókum við rúnt inn í Þórsmörk eftir hádegið og þar var blíðan ekki síðri.  Fallegur staður og við hittum nú bara þó nokkra sem við þekkjum þar innfrá.  Fórum fyrst inn í Bása og svo aðeins inn í Langadal.  í Básum  Í Langadal  Þegar við komum aftur "heim" voru mamma og pabbi mætt á svæðið og við borðuðum saman í blíðunni og Sigrún tók þessa mynd af okkur við þá athöfn.  Þarna sjáiði nú hvernig fjölsyldan hagar sér í fríinu Glöð á góðri stund  Ef þið smellið á myndirnar má sjá þær stærri. 

En jæja.  Á sunnudaginn komum við við í Paradísarhelli og Sigrún og Stebbi skoðuðu hann.  Ég komst ekki upp.  Já það er bara staðreynd.  Ég er bara ekki sterkari en þetta.  Hvernig fer maður að því að toga sig upp á keðju - berhentur- nærri hálft tonn að þyngd?  Ég bara spyr!  Ég gat nú aldrei farið upp helv.... kaðlana í leikfimi hér um árið!!!  Í Paradísarhelli  En svo enduðum við ferðina á að kíkja á Seljalandsfoss og hann er nú alltaf jafn fallegur blessaður.  Við fórum nú ekki á bak við hann að þessu sinni en gerum það örugglega næst Seljalandsfoss  Fosssssss

Við kíktum svo á tjaldsvæðið á Hellu (Árhús) sem okkur leist mjög vel á.  Það leynir á sér og er skipt í svona skemmtilega reiti.  Þetta er bara hinumegin við Gaddstaðaflatir og erum við jafnvel að spá í að fara með fellihýsið þangað (ef veður leyfir) þegar landbúnaðarsýningin verður haldin þar 22.-24.ágúst.  Er einhver með?  Ég lofa að eiga eitthvað gott útí kakóið Wink  Já já mín bara farin að taka þátt í landbúnaðarsýningum og hvaðeina.  Svo er ég alveg að fara að ganga í kvenfélagið í sveitinni.  Geri aðrir betur Whistling

Farvel kæru lesendur og aðrar endur!  Með rendur!  Ykkar fjendur!  Nei nú held ég að ég komi mér í bælið.  Enda búin að sauma nýju gardínurnar fyrir eldhúsgluggann en það var takmarkið að klára þær fyrir nóttina LoL  Þvílík orka!  Ætli sé hægt að virkja mig?  Best að hringja í Frikka.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skemmtileg ferðasaga og flottar myndir. Kraftur í þér að fara öll 400 þrepin!!!! Þið hafið gert víðreisn um tjaldstæðin eins og við um helgina. Við enduðum á tjaldstæði nr. 4 Ég heyrði einmitt af tjaldstæðinu á Hellu í gær. Það væri frábært að kanna það við tækifæri.  Kv. Kristín

Kristín (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 16:26

2 identicon

Hæ esskan,

Ég skil þig mjög vel með þrepin hjá Skógarfossi, við löbbuðum Fimmvörðuhálslinn allan síðasta sumar og ég hélt ég dræpist þarna í byrjun. En rosalega skemmitileg ganga og fegurðin inn í Þórsmörk er bara engu lík.

Flottar myndir af ykkur!!!!

Kv.Bogga

Bogga (IP-tala skráð) 23.7.2008 kl. 18:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 123813

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband