Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Fermingarveisla 2 - frh.

Jæja, það á ekki af okkur að ganga í sambandi við þessar fermingarveislur GetLost  Við fórum sem sagt í fermingarveislu nr. 2 í dag.  Ferðinni var heitið til Akraness og fórum af stað upp úr hádegi því við ætluðum að koma við hjá Sibbu systir og co.  Það tókst nú bara vel.  En ég hefði reyndar viljað stoppa aðeins lengur hjá þeim því við komum aðeins seinna en við áætluðum, tekur tíma að koma við í blómabúðinni og svona.  En jæja þannig að við stoppuðum í rúman hálftíma til þess að verða nú ekki of sein á Akranes.  Vorum komin þangað rúmlega 3 og fundum nú veislustaðinn fljótlega en hringdum þó í Kristínu mágkonu því það voru svo fáir bílar eitthvað Gasp  Og hva... þau bara heima ennþá og veislan byrjuð... eða það héldum við alla vega en nei nei... veislan átti að byrja kl. 4 Pinch  Ertu ekki að grínast ... við hefðum þá getað stoppað aðeins lengur hjá Sibbu.  En jæja við fórum bara á rúntinn á Akranesi og keyrðum gjörsamlega allar götur... aftur og aftur því maður er nú ekkert svakalega lengi að rúnta um þennan ágæta bæ Undecided

Anyway.  Veislan hófst og það með þvílíkum kræsingum að maður fór saddur og sæll út þaðan og svo nú um kvöldmatarleytið lögðum við af stað austur aftur.  Sem gekk nú nokkuð vel framan af og vorum í samfloti með Helga tengdó.   Kannski rétt að ég taki það fram að við fórum á jeppanum í þessa ferð því hann er skráður á bóndann HE HE og ef hann yrði myndaður aftur þá fengi hann sko rukkunina.  En jæja á Hellisheiði BILAÐI helvítis jeppinn - EINU SINNI ENN.  Djöfullinn sjálfur þarna.  Farin lega enn eina ferðina og réttast væri að henda skrjóðnum á haugana   

Þannig að tengdó varð að snúa við og kippa okkur með heim og nú er bóndinn að sækja skrjóðinn á vörubíl. 

ÉG ÆTLA AÐ LABBA Í NÆSTU FERMINGARVEISLU,  HNUSS!!!   


Frétt um mig!

Já það reyna fleiri að flýja úr leikskólanum en ég Blush 

Ég var nú ekki há í loftinu þegar ég náði að príla yfir grindverkið á Brimveri hér um árið... það eru um 30 ár síðan LoL  GETUR ÞAÐ VERIÐ!

Var þetta ekki annars einhvern veginn svona?  Er Auður að lesa?  Grin  Ég man (eða veit öllu heldur) ekki hvernig þetta endaði hjá mér.  Komst ég heim eða?  Var ég nöppuð fyrir utan leikskólann? 

Ég lenti alla vega ekki á höfðinu eins og þessi ungi drengur sem hefur bara verið að prakkarast er þakki?!

 


mbl.is Flótti úr leikskóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er grín G - vara?

Ja það má spyrja sig að því hvort grín sé yfirleitt þannig að það eldist vel.  Ekki finnst mér nú allt grín eldast vel eins og t.d. þessir blessuðu Limbó þættir sem voru hér um árið.  Þeir mættu nú alveg týnast uppi á Sjónvarpi sko.  En gömlu góðu skaupin þau virka alltaf best að mínu mati.  Þeir sem þekkja okkur vinkonurnar vita það að við höfum grínast með þessi gömlu skaup frá því við vorum krakkar sjálfar og þá er ég að tala um skaupin frá 1984 og svo þau sem komu á eftir koll af kolli.  T.d. grínið með Adda Palla og Bergþóru var algjör snilld og eins rás 84 og fullt af fleiri atriðum í þessu skaupi og svo auðvitað skaupið '85 þar sem áramótaskaupinu var stolið og það áttu ekki að verða áramót því það var búið að stela skaupinu LoL 

Svo eru þættir eins og Gættu að hvað þú gerir maður og Fastir liðir eins og venjulega og Heilsubælið gott dæmi um grín sem eldist vel.  Algjör snilld og endalaust hægt að horfa á þá þætti aftur og grínast með þá.  Einnig myndir eins og Stella í orlofi og Með allt á hreinu og Líf-myndirnar.  Endalust frábærar. 

Hins vegar gefst oft ekki vel að gera mynd nr. 2 eins og raun ber vitni með Stellu og Stuðmenn.  Þar mistókst mönnum aðeins upp þótt hægt sé að sjá góða punkta í þeim.  Spurning hvort þær verði svona vinsælar eins og hinar myndirnar eftir ca 20 ár.   Ég held hins vegar ekki Errm

En þetta með G - nafnið.  Spurning hvort G-bletturinn heiti G-bletturinn því hann eldist svona vel eða geymist svona vel ???    


Pósturinn

Þegar ég kíkti í póstkassann heima á hlaði á miðvikudaginn sá ég mér til undrunar að mér hafði borist 3 bréf Gasp 

Ég opnaði hið fyrsta.  Bréf frá Happdrætti Háskóla Íslands:  Ég hafði unnið í happdrættinu  Grin  Vei vei ... já ég vann 15.000 kall og það munar nú um það.  Maður getur allavega endurnýjað miðann í nokkra mánuði fyrir þann pening þó ekki sé meira.

En já þá opnaði ég bréf nr. 2.  Það var frá Lögreglustjóranum á Snæfellsnesi Pinch  Hvað var um að vera???  Jú jú ég las bréfið og viti menn.  SEKT fyrir of hraðan akstur Angry  Samkvæmt dagsetningunni var BÓNDINN að keyra.  Já ég keyri auðvitað aldrei of hratt Whistling  En sektin hljóðar upp á 10.000 kall EF og aðeins EF ég borga hana þegjandi og hljóðalaust fyrir 2.apríl.  Annars gæti hún verið allt að 20.000 krónur Bandit  Djöfusssss vitleysa.  Bíllinn (sem skráður er á mig N.B.) var myndaður í eftirlitsmyndavél á sunnudaginn þann 16. og vorum við þá á leið heim úr fermingarveislu.  Dýr fermingarveisla það... HA HA HA Tounge

En þar fór helvítis happdrættisvinningurinn... eða hvað.  Bóndinn borgar þessa sekt nárrúrlega bara og ég kaupi mér eitthvað sniðugt fyrir 15 þúsund kallinn.  Er það ekki sanngjarnt?

En jæja bréf nr. 3 var boð í þriðju fermingarveisluna þetta árið.  Frábært og hafið það nú gott um páskana kæru vinir   


Gleðilega páska alle hjuppa

Páskaegg

Það eru að koma páskar gott fólk   


Ken Lee

Þið bara verðið að horfa á þennan snilldarflutning í Brasilísku Idoli.  O M G LoL  Þvílíkir hæfileikar og með enska textann alveg á hreinu.

http://youtube.com/watch?v=DPkYCYgHjMU&feature=related

 

Annars er ég frekar andlaus þessa dagana... hef einhvernveginn ekkert að segja GetLost  Það kannski breytist eftir helgina.  Er að fara í fermingarveislu í Borgarnesi á morgun.  Það verður ágætt.

Bið að heilsa ykkur kæru vinir   


Komnar myndir frá Kanarí á heimasíðu Sigrúnar

Jæja þá er prinsessan á bænum farin í leikhús með ömmu sinni.  Barnabörnunum var boðið á Gosa í dag og var hún voða spennt fyrir því.  Bóndinn farinn upp á Bláfell þannig að ég er ein í kotinu í dag.  Hef svo sem í nógu að snúast.  Það sem það tekur langan tíma að ganga frá eftir svona utanlandsferðir, úff púff.  Er endalaust að setja í þvottavél, hengja upp, taka niður þvottinn, brjóta hann saman, setja í aðra vél, hengja upp... já þetta virðist vera endalaust en verður auðvitað gott þegar það tekur enda Joyful  Svo þarf auðvitað að moppa og þurrka af og svona.  Þegar sólin lætur sjá sig þá er nú vissara að þrífa aðeins í bænum, vá maður!  Tek nú betur á vorhreingerningu þegar nálgast afmæli Sigrúnar.

Annars var ég að borga flugfarið nú í vikunni fyrir næstu utanlandsferð hjá mér Grin  Grin  sem er í lok apríl.  Þá förum við í leikskólanum í kynnisferð til Jótlands í nokkra daga og ætlum að gista á rosa flottum risastórum herragarði nálægt Billund.  Algjör snilld og það er sko sundlaug í garðinum og klósett á hverju herbergi og 2 eldhús í húsinu og einhver 5 baðherbergi svo dæmi sé tekið.  Hlakka bara djö... til að fara í svona ferð og kynnast lífinu á leikskólum í nágrannalandinu Danmörku.  Ætlum að skoða nokkra náttúruleikskóla og amk. eina vöggustofu þar sem við tökum nú inn börn frá 9 mánaða.

Jæja best að halda áfram að þrífa.  Ég kláraði að taka upp úr töskunum ÁÐAN!!!  Já þetta tekur allt tíma get ég sagt ykkur.  Annars fáum við næturgest í nótt til okkar.  5 ára vinur okkar ætlar að fá að gista hjá okkur á meðan foreldrar hans þeysast upp á fjöll á færiböndunum sínum, hehehe.  Hverjir skildu það vera???  Wink  LoL


Komin heim

Það er nú alltaf jafn ljúft að koma heim úr ferðalögum og anda að sér íslensku lofti og komast í sitt eigið rúm, aaahhh. 

Við erum sem sagt komin heim litla fjölskyldan og tókst heimferðin mjög vel.  Dvölin var öll mjög vel heppnuð og hitinn hefur aldrei verið jafn mikill síðan við fórum fyrst til Kanarí.  Það var á milli 25 og 30 stiga hiti flesta dagana og manni fannst það nú of heitt stundum og leitaði í skuggann einstaka sinnum Cool

Garðurinn sem við vorum í var ágætur... ég hefði nú kosið að hafa aðeins meiri afþreyingu í honum eins og fyrir Sigrúnu, það var eitt billjard borð í honum og kjuðarnir geymdir inni í lobbýi sem var svo lokað frá 13-16 á hverjum degi Errm  og svo vantaði náttla alveg lobbýbarinn.  En við sóttum bara staðina grimmt eins og Yumboið (sem er frekar stórt moll ef svo má segja með alls kyns veitingastöðum og fullt af spilasölum) og Sigrún elskaði að fara í það og fá að fara í þythokkí og nokkrar hringekjur og svoleiðis.  Svo vorum við í Mini Golfi uppá hvern einasta dag nánast og Sigrún er orðin mikill golfsnillingur og fór meira að segja holu í höggi - eða hól í höggi eins og hún sagði sjálf LoL  Svo fórum við 2x í Tívolíið og í keilu.  Snilldarferð sem sagt Happy

Hér koma nokkrar myndir.  Þið getið smellt á þær til að stækka þær.

Sigrún og Reynir í Tívolí  Út að borða  Abba show

 


Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 123778

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband