Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Helga!

Þetta Racklettestemning  er racklette.  Svona rafmagnspanna sem þú getur grillað alls konar hráefni á eins og kjöt, fisk, grænmeti og ost.  Svo fylgja litlar pönnur með sem maður getur t.d. gratínerað kartöflur og grænmeti í.   

Sniðugt - ekki satt?


Varð að sýna ykkur þessa

Vetur í búst ... mynd en svona var umhorfs í bústaðnum þegar við vorum búnar að moka frá pottinum um þarsíðustu helgi Grin  Smá snjór svona.  Vona að Sandra fyrirgefi mér fyrir að setja þessa mynd inn en mér finnst hún svo fín Wink  Svo eru komnar fleiri myndir hér inn úr þessari ferð undir albúmi sem heitir vetur 2007-2008 Gasp

Það er ótrúlega góð og notarleg stemning að fara í heitan pott í svona miklum snjó.  Eitthvað svo ótrúlega hlýlegt, undarlegt sem það nú hljómar Tounge


Netið loksins komið í lag

Ég á ekki til orð.  Búin að vera netlaus og hálf vitlaus í kjölfarið í á þriðju viku Angry  Djöfull sem maður getur orðið háður þessu neti.  Viðgerðarmaðurinn var að fara héðan og þurfti á endanum að skipta um móttakara og ég veit ekki hvað og hvað.  Hinn var gjörsamlega handónýtur og vantaði lokið á hann meira að segja og maðurinn var alveg hissa á hvernig netið náði nú samt að hanga inni svo lengi með þetta svona hálfónýtt.   Ég er búin að vera að fara á póstinn og svona helstu síður á símalínunni og O M G hvað það tekur langan tíma að hlaða niður sumum síðum.  FootinMouth  En jæja þetta er allavega komið í lag thank god!  Joyful 

Það er nú svo sem ekki eins og ég hangi á netinu öllum stundum.  En um leið og það dettur út þá verður maður alveg ómögulegur eins og maður þekki ekkert annað og geti bara ekkert annað gert við tímann sinn.  Ótrúlegt alveg.

Við fórum með köttinn til Dagfinns dýralæknis um daginn og je minn eini.  Þyngri kött hefur hún varla séð Woundering  Ég þarf að setja köttinn á léttfæði og vigta ofan í hann matinn og vigta svo köttinn til að sjá hvort þetta beri árangur.  Hann er orðinn allt of þungur greyið.  Búinn að vera í góðu yfirlæti hér í sveitinni, fær bara að éta ef hann er svangur, stundum gaukað að honum túnfiskbiti eða kjúklingur og harðfiskur, nú og svo nennir hann sem minnst að fara út.  Liggur eins og slytti í einum stólnum hérna (alltaf þeim sama) og malar eins og gömul dráttarvél og kemur svo snuðrandi við lappirnar á mér um leið og ég fer að dunda mér við matseldina í eldhúsinu LoL  Æ hann er svo mikil dúlla en algjör letihaugur.  Hann sver sig í ættina bara.  Finnst gott að borða og kúra Grin  hehehehe.  Þekkiði einhver svoleiðis letiljón??? HAAAA?????  En Kjarkur "litli" (sem er ekki enn orðinn 2 ára btw) er sem sagt búinn að fara í sitt árlega check-up Wink


Við eigum afmæli í dag...

... við eigum afmæli bæði, við eigum afmæli í dag LoL  Veeeeiiiiii ( og fagnaðarlætin brjótast út!!!!) Takk takk!!

Júbb við hjónin eigum 10 ára samvistarafmæli í dag og 3 ára trúlofunarafmæli (sem ég mundi ekkert sérstaklega eftir fyrr en ég heyrði í bóndanum áðan, hehemm Blush) skamm skamm.  En já já það eru heil 10 ár síðan við fórum að skjóta okkur saman hjúin.  Í þá gömlu góðu daga vorum við bæði loðnari að ofan Grin  og örlítið vitlausari en nú hehe. 

Annars heyrði ég sem sagt í karlinum áðan.  Þeir félagar höfðu keyrt frá Austurríki til Munchen í dag og voru búnir að spotta nokkrar verslanir.  Þar á meðal H og M búð og eina risavaxna útivistarbúð sem þeir ætluðu að skreppa í á morgun.  Já þeir ætla að verja morgundeginum í að versla blessaðir Gasp  og hver segir að karlmenn njóti þess ekki að fara í búðir og versla svolítið!  Þeir þykjast "verslast" upp í verslunum með konunum en njóta þess svo bara inn við beinið að versla sjálfir þegar þeir eru einir.  Þá eru engar kerlingar að tuða í þeim eða ýta á eftir þeim við innkaupin.  Ég er að vona að hann finni góðan kuldagalla á stelpuna á sæmilegu verði.  Ætli sé ekki allt á útsölu þarna? 

7 stiga hiti og heiðskýrt var í Munchen í dag skilst mér.  En hér... ætla nú ekkert að fara að ræða það neitt!


Heil og sæl

Jæja nú er ég farin að taka fjölvítamín með steinefnum daglega ásamt hvítlaukshylkjum og sólhatti þannig að nú skal kvefið fara að yfirgefa líkama minn.  Er orðin frekar þreytt á þessu eilífa sníti og neseríli í nös Pinch  því ekki vil ég vera stífluð í nefinu og tala eins og nasirnar á mér séu límdar saman Tounge  Og þá hlýt ég að fara að hressast heldur betur og hoppa og skoppa um hæðir og grundir... AS IF!!!

En við kjellur skemmtum okkur konunglega í búst um síðustu helgi LoL  Við byrjuðum á því að taka vaktaskipti á skóflunni til þess hreinlega að komast að húsinu með allan farangurinn O M G GetLost  Við hefðum getað verið þarna í 2 vikur slíkur var maturinn og drykkurinn með í för.   En við þurftum að moka pottinn upp gjörsamlega og vorum ekki lengi að því.  Svava pottastjóri hentist í að græja pottinn og vorum við komnar í hann um kaffileytið á laugardaginn.  Vorum svo með Racklette partý í kvöldmatinn og allskonar tegundir af kjöti, fiski, grænmeti og osti.  Ótrúlega gott og mikil stemning að borða svona Happy

Svo var auðvitað frönsk súkkulaðikaka a la Sandra í eftirmat og við fórum að sjálfsögðu aftur í pottinn á eftir og vorum lengi í þetta sinn W00t  Ótrúlega magnað að liggja svona í heitum potti í myljandi frosti og stjörnubjörtum himni með tunglið hangandi yfir sér.  Geggjað alveg og auðvitað fórum við allar í pottinn með húfur og svona.  Það er ekki spurning!!!  Eftir skipun yfirbúst-stjórans LoL  LoL

Nú svo hristi Sigga fram úr annarri erminni dýrindis klatta um morguninn og voru þeir borðaðir með sýrópi og smjöri, sluuuurp!  Og reyktur lax frá Írisi ásamt fuuuuullt af öðru meðlæti sem rann ljúflega í okkur.  Svo tókum við auðvitað sæmilegan göngutúr í brakandi blíðu eftir morgunmatinn eins og sönnum húsmæðrum sæmir í svona líka snilldar húsmæðraorlofsferð.

Takk fyrir mig Wink


Þreyta

Er óvenju þreytt þessa dagana.  Mætti halda að ég hefði orðið undir valtara.  Ég vakna dauðþreytt alla daga og er ekki nærri nógu úthvíld eftir nóttina.  Ætti kannski að fara fyrr að sofa á kvöldin, hmmmm.  Reyni þó yfirleitt að vera sofnuð fyrir miðnætti.  Væri dauð held ég ef ég ætti ekki frí á fimmtudögum.  Undecided

Er byrjuð að lesa Rimlar hugans núna og get bara varla lagt hana frá mér.  Mig langar einhvern veginn að lesa lengra og vita meira hver örlög þessa fólks eru eða verða.  Það er magnað að lesa þetta ég segi nú ekki annað.  Lýsingarnar á því þegar hann var unglingur, úff.  Ég sé það að maður hefur bara verið heljarinnar engill miðað við allt Halo  say no more!!!  Ég kláraði nú ekki heilu kassana af bjór frá pabba á sínum tíma eins og þessi gerði.  Allt í einu var allur bjórinn búinn sem hann ætlaði að fara að gefa gestunum FootinMouth 

Er að fara í skvísuferð í búst á laugardaginn.  Vonast til þess að fá andlega og líkamlega orku úr þeirri ferð.  Það hlýtur eiginlega að gerast þar sem við æskuvinkonurnar erum að hittast og það er sko mikil skipulagning í kringum það get ég sagt ykkur.  Hver á að koma með hvað, hvenær á að leggja af stað, hver fer með hverjum, hvað á að drekka og eta... LoL  Æ hvað það verður gaman.  Ætlum að hafa Racklette-party Joyful  Já ég veit að ég kem endurnærð úr þeirri ferð.

Svo er bóndinn að fara til Ítalíu, Austurríkis og Þýskalands á mánudaginn í heila 6 daga.  Maður verður nú hálf einmana á meðan Frown  En hann er að fara að kíkja á og velja nýjan snjóbíl fyrir BFÁ. 

Heyrðu já og Econlininn náði því á endanum að draga hinn upp LoL


Bein lýsing...

... á veðrinu þessa stundina.  Það snjóar stanslaust og hefur gert frá því ég vaknaði í morgun.  Ég sit hér á 4.hæð á Fossveginum á Selfossi og horfi í norður og sé ekki Ingólfsfjallið.  Ég segi bara eins og unglingurinn sagði:  "Sjáiði fjallið, það sést ekki!"  En ég komst sem sagt í vinnuna kl. hálf tíu í morgun og fór auðvitað á jeppanum.  Stebbi átti bara eftir að setja eina litla ró í ferlíkið til þess að hann væri götufær og jú hann gerði það í morgun þannig að kerlingin kæmist í vinnuna Smile

En ég fór næstum útaf 2x í morgun því ég sá bara ekki veginn.  Snjóblinda og stórhríð gerði það að verkum en ég hægði bara á ferðinni og reyndi að fylgja þeim stikum sem eftir eru á Vorsabæjarveginum Undecided  Skyggnið varð betra þegar ég komst á malbikið og komst ég þá loks í vinnuna.  Heldur var dagurinn rólegur þar því margir sem ekki þurftu að fara út úr húsi nutu þess að horfa á veðrið út um gluggann Happy  Við fórum þó út með nokkur börn e.h. og þau óðu skaflana og snjóinn á allri leikskólalóðinni upp að klofi og við kennararnir hentumst á milli til að losa þau Tounge  en þeim fannst þetta bara mjög gaman og spennandi að fara út í svona veður. 

Í þessum töluðu orðum er Econline að draga jeppa hér fyrir utan eða reyna það en hann er fastur og kemst hvorki afturábak né áfram Errm  Æ Æ hann getur ekki meir á stóra jeppanum sínum Woundering  Nú fer hann og hleypir úr.  Skyldi það takast betur.  Framhald í næstu færslu LoL


ooo þessi börn!

Dóttir mín kom til mín áðan, niðurlút, hengdi haus og með sorgarsvip í augunum:  "mammaaaaaa, mig langar að fá svona" og benti á snakk í skál.  Mamman sagði henni að hún væri nú búin að tannbursta og hefði borðað rétt áðan og ætti að vera uppi í rúmi.  "En mig langar í svonaaaaaa" sagði hún aftur og mamman sagði að hún gæti fengið holur í tennurnar ef hún borðaði eftir að búið væri að tannbursta.  Þá reisti hún líkamann upp, skellihló og sagði bara: "hahahaha ég hef aldrei prufað það, hahahahaha" LoL  Og hún fékk auðvitað snakkið.  Svo kom hún aftur niður og mamman sagði henni að hún ætti að fara að sofa.  "En mamma ég er komin til að fá að borða.  Ég hlustaði á magann minn" Grin 

Ótrúleg alveg.  Hvernig er hægt að neita svona? 

En ég var að horfa á Pressu áðan á Stöð 2 og svei mér þá þeir lofa bara góðu þessir þættir.  Alveg ágætlega vel leikið og svona raunverulegir hlutir að gerast.  Spennandi og hlakka til að sjá fleiri þætti. 

Pabbi á afmæli á morgun og ætlum við mæðgur að kíkja á hann með pakka undir hönd.  Til hamingju með daginn pabbi minn.    


Harðskafi

Ef þú hefur ekki lesið Harðskafi e. Arnald Indriðason og ætlar að lesa hana þá skaltu hætta að lesa HÉR!  Ég er búin með hana en ég fékk hana í jólagjöf frá Stebba og Sigrúnu.

Ég verð nú að segja það að hver bókin á eftir annarri (e. AI) er þannig að maður lætur hana ekki svo auðveldlega frá sér.  Maður vill vita hvað gerist næst... hverju kemst Erlendur að.  Og eins vill maður vita hvort hugmyndir manns sjálfs séu þær sem gerast í raun og veru.

Þannig var það með Harðskafi.  Mér datt það nú fljótlega í hug þegar ég las bókina að sjálfsmorð Maríu var ekki allt þar sem það var séð.  Auðvitað ekki því þá væri engin spennusaga í uppsiglingu W00t  Það komu þarna lögreglumenn á Selfossi að rannsókninni í upphafi og ég sá auðvitað alltaf fyrir mér ákveðinn ungan lögreglumann í lögreglunni á Selfossi Undecided en mér fannst bókin þó fara rólega af stað.  Svo komu þarna kaflaskil þar sem ég reyndi að lesa mig inn í nóttina en gat það ekki sökum syfju... og einu sinni þurfti ég meira að segja að lesa aftur nokkrar blaðsíður þar sem ég hef verið nánast sofnuð þegar ég las þær Sleeping

En ég sá það fljótlega að Baldvin og Karólína hlytu að hafa eitthvað á samviskunni.  Hún sem miðillinn Magdalena og hann læknirinn sjálfur gat gert ótrúlegustu hluti.  En að helvítis fíflin skulu hafa komist upp með það sem þau gerðu... Angry  AARRRRGGGHHH.  Mér fannst ótrúlegt að María hefði hengt sig sjálf þegar Erlendur var að tala við Baldvin í sumarbústaðnum en svo kom það líka á daginn.  Helv.... stuðtækið var ónýtt og auðvitað setti hann hana í snöruna helvískur.  

En jæja þetta var heljarinnar spennusaga sem maður gleymir sér algjörlega við að lesa Smile


Á árinu 2007...

... var margt brallað hjá okkur litlu fjölskyldunni.  Við keyptum okkur fellihýsi og lögðum af stað í leiðangur síðasta sumar.  Fórum m.a. á Akureyri á 17.júní, á Snæfellsnesið, við Langavatn á ættarmót, í Húnavatnssýsluna, Þjórsárdalinn um Verslunarmannahelgina... já og í laugardalinn ekki má gleyma því.  Fyrsta útilegan okkar í nýja fellihýsinu var í Laugardalnum LoL  Vorum þar innan um fullt af útlendingum og tókum rölt í gamla hverfinu okkar því ég bjó nú einu sinni á Laugarnesveginum.

Á árinu fór ég líka í 2 augnaðgerðir.  Sú fyrri sem gerð var rétt fyrir páska heppnaðist ekki nógu vel þannig að önnur var gerð í október og heppnaðist ljómandi vel.  Rörið sem sett var í vinstra augað helst á sínum stað og virkar eins og það á að gera.  Vonast ég til að hægra augað verði tekið í kringum páskana nú í mars Undecided  þá losna ég væntanlega alveg við bréfþurrkurnar Pinch

Við fórum ekkert til útlanda á síðasta ári en munum væntanlega öll bæta úr því þegar við förum til Kanarí í febrúar Cool  Einnig fer ég í kynnisferð á vegum leikskólans í apríl til Danmerkur og svo er jafnvel enn ein ferðin á planinu með haustinu... nánar um það síðar.

Ég hélt áfram að fara 1x í mánuði á Landsann í lyf, eitt í æð og eitt sprautað undir húðina.  Núna fer ég á þriggja mán. fresti og vonast ég til að ég fái að halda því.  Ég fer í beinþéttnimælingu nú í janúar og þá kemur í ljós hvort ég þurfi að halda áfram á beinstyrkingarlyfinu. 

Svo tókum við að okkur eitt stykki kött.  Hann er yndislegur og algjör kelirófa og það gengur mjög vel með hann.  Stækkar og stækkar... á alla kanta.

Árið 2007 var okkur á heimilinu nokkuð gott myndi ég segja.  Vorum öll hraust og hress og það er nú fyrir mestu ekki satt?! 


Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband