30.3.2008 | 21:17
Fermingarveisla 2 - frh.
Jæja, það á ekki af okkur að ganga í sambandi við þessar fermingarveislur Við fórum sem sagt í fermingarveislu nr. 2 í dag. Ferðinni var heitið til Akraness og fórum af stað upp úr hádegi því við ætluðum að koma við hjá Sibbu systir og co. Það tókst nú bara vel. En ég hefði reyndar viljað stoppa aðeins lengur hjá þeim því við komum aðeins seinna en við áætluðum, tekur tíma að koma við í blómabúðinni og svona. En jæja þannig að við stoppuðum í rúman hálftíma til þess að verða nú ekki of sein á Akranes. Vorum komin þangað rúmlega 3 og fundum nú veislustaðinn fljótlega en hringdum þó í Kristínu mágkonu því það voru svo fáir bílar eitthvað Og hva... þau bara heima ennþá og veislan byrjuð... eða það héldum við alla vega en nei nei... veislan átti að byrja kl. 4 Ertu ekki að grínast ... við hefðum þá getað stoppað aðeins lengur hjá Sibbu. En jæja við fórum bara á rúntinn á Akranesi og keyrðum gjörsamlega allar götur... aftur og aftur því maður er nú ekkert svakalega lengi að rúnta um þennan ágæta bæ
Anyway. Veislan hófst og það með þvílíkum kræsingum að maður fór saddur og sæll út þaðan og svo nú um kvöldmatarleytið lögðum við af stað austur aftur. Sem gekk nú nokkuð vel framan af og vorum í samfloti með Helga tengdó. Kannski rétt að ég taki það fram að við fórum á jeppanum í þessa ferð því hann er skráður á bóndann HE HE og ef hann yrði myndaður aftur þá fengi hann sko rukkunina. En jæja á Hellisheiði BILAÐI helvítis jeppinn - EINU SINNI ENN. Djöfullinn sjálfur þarna. Farin lega enn eina ferðina og réttast væri að henda skrjóðnum á haugana
Þannig að tengdó varð að snúa við og kippa okkur með heim og nú er bóndinn að sækja skrjóðinn á vörubíl.
ÉG ÆTLA AÐ LABBA Í NÆSTU FERMINGARVEISLU, HNUSS!!!
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég hugga mig við að þú ert ekki sú eina þinna ættingja sem nota kjarnyrði þegar mikið liggur við.
En ég myndi snupra börnin mín fyrir svona orðbragð - útaf einni jeppadruslu.
Vonandi fer að vora og næsta veisla kannski ekki í öðrum sýslum?
Þú gætir þá farið á hjóli
Helga R. Einarsdóttir, 30.3.2008 kl. 21:49
Það verður ekki málið fyrir þig að labba í Tryggvaskála. Kv. Guðrún syss
Guðrún Bjarnfinnsdóttir (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 22:29
Úff!! það hlýtur að hafa verið eitthvað í loftinu sem orsakaði svona daga hjá okkur!
Huld S. Ringsted, 30.3.2008 kl. 22:37
Djöfull ertu orðljót esskan
Sandra Dís (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 22:44
Jahérna hér..... Kvitt úr sveitinni.
Melafrúin (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 00:08
Orðljót eða ekki orðljót. Það er nú bara þannig að það sem einum þykir orðljótt þykir öðrum bara hressileg orðanotkun. Við erum soldið svoleiðis í fjölskyldunni þ,e notum ýmis orð sem kanski er ekki beint ættað úr sunnudagaskólanum, ætli þetta sé ekki bara komið úr Flóanum og Grímsnesinu,,,,,,Rannveig ,,,,,,er það ekki annars. Mér finnst allavega full ástæða til að bölva og ragna hressilega þegar þessar annars ágætu bifreiðar hætta að hlýða manni og bila í tíma og ótíma. Annars mæli ég með því að labba í fermingarveislur , öruggara en þessir andsk.bílar. Þú ert snillingur . Sjáumst Ko-Kolla.
Anna Kolla (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 09:33
Ahh ég hefði græjað ykkur í einn öllara hefði ég verið á skaganum! Þær eru annars fallegar göturnar á Akranesi og allur gróðurinn....
gunnur (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 10:00
Hahahahahahaha Þetta finnst mér algjör snilld! Hló ekkert lítið þegar ég las þessa færslu! En hefði örugglega ekki gert það ef ég hefði lent í öðru eins....jesús minn eini! Skil þig vel að hafa orðið reið og sár yfir þessu.... lái þér það sko ekki, kæra vinkona!
Þórlaug (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 19:58
hehehehe....þetta er ótrúlegt skil þig vel! helv...bíllinn
Kv Svava
svava (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 22:02
ÆÆÆÆþetta hefur kitlað pirringstaugarnar
Eyrún Gísladóttir, 1.4.2008 kl. 10:00
Hehehh.......
Orðbragðið er nú sennilega bara eitthvert Flóafyrirbæri - mér þótti það meira að segja ekkert í óhófi :-)
En - allt er nú gott sem endar vel- og grefilis jeppagarmurinn bilaði þó ekki fyrr en á heimleiðinni - að lokinni fermingarveislu !
Bestu kveðjur til þín og þinna, knús og kram, Inga V
Inga Vigfúsd. (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 14:31
Jahérna það á ekki af ykkur að ganga í bílamálum, þessir helv.andsk.djöö bílar þetta er allta f til vandræða þegar síst skyldi. Gott að næsta veisla er í Skálanum, þú gistir bara hjá mömmu þinni, þá geturðu labbað.....Bestu kveðjur nafna (sem á það líka til að bölva soldið)
Rannveig Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 2.4.2008 kl. 10:43
Já nafna ég er nokkuð viss um að þetta fylgi ekki endilega nafninu þetta bölvaða bölv Þetta er meira svona Flóa-fyrirbrigði er þakki?! Ég byrjaði örugglega ekki að bölva fyrr en ég flutti í sveitina var það nokkuð???
Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 2.4.2008 kl. 17:39
við getum kannski pikkað ykkur upp allaveganna hlakka til að hitta ykkur ...
anita (IP-tala skráð) 2.4.2008 kl. 22:17
Þetta fylgir örugglega Flóanum...alla vega sumum....
Rannveig Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 3.4.2008 kl. 11:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.