21.3.2008 | 14:30
Pósturinn
Þegar ég kíkti í póstkassann heima á hlaði á miðvikudaginn sá ég mér til undrunar að mér hafði borist 3 bréf
Ég opnaði hið fyrsta. Bréf frá Happdrætti Háskóla Íslands: Ég hafði unnið í happdrættinu Vei vei ... já ég vann 15.000 kall og það munar nú um það. Maður getur allavega endurnýjað miðann í nokkra mánuði fyrir þann pening þó ekki sé meira.
En já þá opnaði ég bréf nr. 2. Það var frá Lögreglustjóranum á Snæfellsnesi Hvað var um að vera??? Jú jú ég las bréfið og viti menn. SEKT fyrir of hraðan akstur Samkvæmt dagsetningunni var BÓNDINN að keyra. Já ég keyri auðvitað aldrei of hratt En sektin hljóðar upp á 10.000 kall EF og aðeins EF ég borga hana þegjandi og hljóðalaust fyrir 2.apríl. Annars gæti hún verið allt að 20.000 krónur Djöfusssss vitleysa. Bíllinn (sem skráður er á mig N.B.) var myndaður í eftirlitsmyndavél á sunnudaginn þann 16. og vorum við þá á leið heim úr fermingarveislu. Dýr fermingarveisla það... HA HA HA
En þar fór helvítis happdrættisvinningurinn... eða hvað. Bóndinn borgar þessa sekt nárrúrlega bara og ég kaupi mér eitthvað sniðugt fyrir 15 þúsund kallinn. Er það ekki sanngjarnt?
En jæja bréf nr. 3 var boð í þriðju fermingarveisluna þetta árið. Frábært og hafið það nú gott um páskana kæru vinir
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hahaha godur
Dabba (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 19:44
Ja það má engu muna því hún er á Selfossi og það sést aldrei lögga á Gaulverjabæjarveginum en svo er auðvitað spurning um að láta KONUNA keyra
En mér finnst rétt að taka það fram að Stefán fór aðeins 6 km/klst yfir leyfðan hámarkshraða og fékk 10 þúsund króna sekt fyrir. Svo það borgar sig að vera á löglegum hraða gott fólk eins og ég
Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 22.3.2008 kl. 09:53
Sæl ! Þú þekkir mig nú ekki neitt en ég rakst inn á bloggið þitt af öðru bloggi sem ég rakst á hjá öðrum og já þú skilur..... vonandi. En allavega vildi vera kurteis og kvitta fyrir innlitið. Já það getur verið fúllt að vera nappaður á oggópónu miklum hraða....hihihi... en já dýr veisla. Hann keyrði - hann borgar. Þú vannst - þú eyðir.
Kvitt úr sveitinni.
Melafrúin (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 10:21
Já þeir eru öflugir þarna fyrir vestan sko. Ég fékk einmitt líka svona bréf inn um lúguna á miðvikudaginn, kallinn sem ég sef hjá hafði brugðið sér í Stykkishólm á mánudeginum og viti menn, hann var hirtur á 101 km hraða. 10 þúsund kall takk!!!!
Ansi er annars langt síðan ég hef séð þig gæskan.........bætum vonandi úr því fljótlega knús S.
Sandra Dís (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 20:43
Þessi póstkassi kemur út á sléttu. 15 þúsund frá HHÍ - 10 þúsund í sekt - 5 þúsund í fermingargjöf. Kannski hefði bara verið best að gá ekkert í póstkassann...
GK, 24.3.2008 kl. 20:59
Ég fékk svona "gleðibréf" frá lögreglustjóra um daginn.... Það var sko endursent með kurteislegri beiðni um það að þeir rukkuðu bónda minn um þessa sekt... ætlaði sko ekki að hafa hans sektir á mínu nafni Bóndanum fannst þetta nú óþarfa smámunasemi...
Rannveig Lena Gísladóttir, 1.4.2008 kl. 22:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.