17.2.2008 | 18:03
Afmælisveisla í dag
Hún Bogga amma mín á afmæli á morgun og verður 86 ára sú gamla. Lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en sjötug og er bara eldhress. Af þessu tilefni hittumst við nokkur ættmenni hennar í afmælisveislu áðan og fengum snilldar kræsingar eins og alltaf hjá henni. Pönnukökurnar hennar klikka náttúrlega ekki og börnin fá aldrei nóg af þeim og svo voru heitir brauðréttir, skúffukaka, skálatertur, ostar og vínber, smákökur og að ógleymdu heitu súkkulaði með rjóma, sluuuurp Alveg óendanlega gott og gaman að hitta þarna ættingja sem maður hittir annars mjög sjaldan þótt þau séu náskyld manni
Frekar fyndið að sjá börnin að leik úti á peysunum innan um allan snjóinn en það var svo hlýtt úti að það þurfti ekki utanyfirflík... ja alveg þangað til það fór að rigna. Ein frænka okkar fór meira að segja út á háhælum skóm og hvítu pilsi að búa til snjóhús með börnunum Ótrúleg seigla í henni Tinnu sko.
Jæja best að halda áfram að pakka niður, tralllallalalalalaaaa..... ADIOS AMIGOS Heyrumst eftir hálfan mánuð eða svo... (eða kannski finn ég eins og eina tölvu þarna úti og læt ykkur heyra aðeins af okkur).
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góða ferð og skemmtun í sólinni Rannveig mín og til hamingju með ömmu þína.
Emma Eiríksdóttir (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 18:27
Góða ferð elskurnar...
Þegar þú kemur heim fer ég til Tælands í 2 vikur... þannig að við verðum bara heyrast eftir mánuð
njótið nú alveg í botn... dekrið við ykkur
knús þóra
Þóra Hvanndal, 17.2.2008 kl. 21:19
Sæl sæta
Sko ef ég þekki hana Bogg'ömmu rétt þá hefur hún nú ekki verið í vandræðum með að redda fatnaði á liðið sem blotnaði úti í rigningunni, manstu forðum daga gæskan????
Vona svo að þið eigið góða ferð til Kanarí elsku dúllan.
lovja S.
Sandra Dís (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 22:52
Til hamingju með ömmu þína og góða ferð til útlanda.....njótið þess í botn biðjum að heilsa þeim sem eru þarna úti og bíða eftir ykkur!
Þórlaug, Kiddi og Tómas (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 20:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.