24.1.2008 | 21:55
Við eigum afmæli í dag...
... við eigum afmæli bæði, við eigum afmæli í dag Veeeeiiiiii ( og fagnaðarlætin brjótast út!!!!) Takk takk!!
Júbb við hjónin eigum 10 ára samvistarafmæli í dag og 3 ára trúlofunarafmæli (sem ég mundi ekkert sérstaklega eftir fyrr en ég heyrði í bóndanum áðan, hehemm ) skamm skamm. En já já það eru heil 10 ár síðan við fórum að skjóta okkur saman hjúin. Í þá gömlu góðu daga vorum við bæði loðnari að ofan og örlítið vitlausari en nú hehe.
Annars heyrði ég sem sagt í karlinum áðan. Þeir félagar höfðu keyrt frá Austurríki til Munchen í dag og voru búnir að spotta nokkrar verslanir. Þar á meðal H og M búð og eina risavaxna útivistarbúð sem þeir ætluðu að skreppa í á morgun. Já þeir ætla að verja morgundeginum í að versla blessaðir og hver segir að karlmenn njóti þess ekki að fara í búðir og versla svolítið! Þeir þykjast "verslast" upp í verslunum með konunum en njóta þess svo bara inn við beinið að versla sjálfir þegar þeir eru einir. Þá eru engar kerlingar að tuða í þeim eða ýta á eftir þeim við innkaupin. Ég er að vona að hann finni góðan kuldagalla á stelpuna á sæmilegu verði. Ætli sé ekki allt á útsölu þarna?
7 stiga hiti og heiðskýrt var í Munchen í dag skilst mér. En hér... ætla nú ekkert að fara að ræða það neitt!
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með afmælið sæta...heyrðu ætli við hittumst ekki á Laugardaginn....ætlar þú ekki að koma til Kollu líka?
Vonandi hlakka þá til að sjá þig sætust:)
Benna, 24.1.2008 kl. 22:05
Til hamingju með daginn ykkar elskurnar, gangi ykkur vel næstu 100 árin. Sjáumst kær kveðja Ko-Kolla
Anna Kolla (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 22:17
til hamingju með daginn elsku dúllurnar mínar Já og takk fyrir síðast Rannveig mín, mikið assgoti var gaman hjá okkur, jeminn eini Hefði nú verið gaman að fá þig með okkur á blótið en það verður bara síðar elskan
heyrumst þín S.
Sandra Dís (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 22:23
Til hamingju með þetta allt saman, elskurnar mínar
Kveðja frá okkur öllum!
Þórlaug (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 19:28
Til hamingju með trúlofunar og samvistarafmælið. Já hvað segiru er orðið fært í Vorsabæinn þetta var nú meiri ófærðin um helgina en ekki orð um það meir...Kv Svava
svava (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 11:20
Til hamingju með þetta allt saman, tek undir með Kollu, gangi ykkur allt í haginn næstu 100 ár eða svo. Já, uss karlar hafa hundgaman af að versla svona ,,dót'' sem þeim finnst gaman að...Bkv, þín nafna.
Rannveig Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 11:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.