15.10.2007 | 08:42
Little trip to Heaven vs. Köld slóð
Prinsessan á bænum er farin í orlof til ömmu og afa upp í sumarbústað. Hún tók fram ferðatöskuna sína í gær og fann ýmislegt nytsamlegt til að taka með sér. Fullt af dúkkufötum og bleyjum á dúkkurnar ef þær skyldu nú kúka og svo auðvitað ferðaDVD spilarann og fuuuuult af myndum og geisladiskum til að hlusta á. Hún var voða spennt og ekki síst fyrir þær sakir að nú átti hún að fá að sofa í efri koju í fyrsta sinn Og það er náttúrulega B A R A gaman.
En við hjónin skelltum okkur á myndbandaleigu í gær því það var algjör letidagur eftir að dóttirin var farin í orlofið sitt. Við tókum 2 íslenskar myndir, Köld slóð með Þresti Leó og Elvu Ósk ofl. og svo Little Trip to Heaven. Og svei mér þá ef mér fannst ekki Köld slóð bara betri. Hún var mjög spennandi og mér fannst söguþráðurinn trúverðugur og skemmtilegur. Ég sá allavega ekki fyrir hvernig hún myndi enda... En Little trip var svo sem líka góð. Bara á annan hátt. við erum örugglega síðustu Íslendingarnir í dalnum til að sjá þessar myndir. A.m.k. Little trip en EF það er einhver þarna úti sem á eftir að sjá þær þá mæli ég 200% með báðum þessum myndum. Þær eru fín afþreying
En nú er komið að augnaðgerð nr. 2 hjá mér á morgun. Ég er að fara í bæinn núna í innskrift (undirbúning fyrir aðg.) og nú er bara að krossa fingur og vona það besta. Mér skilst að Haraldur ætli að setja öðruvísi rör en síðast og það verður með aðeins boga á núna. Þið munið kannski að hitt hét Lester Jones en nú er spurning um að setja sig í Bridget Jones gírinn og skella sér í ömmunærbuxurnar
Best að hleypa kettinum út. Hann mjálmar og mjálmar hér við lappirnar á mér og nuddar sér upp við þær
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gangi þér vel - og þú ert ekki "síðasti Íslendingurinn í bænum, eða dalnum, eða sveitinni". kv.
Helga R. Einarsdóttir, 15.10.2007 kl. 19:57
Gangi þér vel í aðgerðinni dúllan mín. Við Maggi tókum Kalda slóð fyrir svo sem hálfum mánuði og fannst hún mjög góð mjög spennandi og flott mynd það er svolítið lengra síðan við sáum hina og ég man nú bara ekkert hverni hún var. Verðum í bandi. Kv. Gúa syss og co.
Guðrún Bjarnfinnsdóttir (IP-tala skráð) 15.10.2007 kl. 21:50
Gangi þér vel í aðgerðinni elsku frænka , vonandi gengur þetta betur í þetta skiptið , farðu vel með þig . Það er alveg sama hvað þú horfir á gamlar bíómyndir , ég er örugglega ekki búin að sjá þær ,þannig að þú ert örugglega ekki sú síðasta í dalnum , flóanum , eða bara í röðinni........................... Fæ að frétta af þér á morgun elskan. Kveðja Ko - kolla.
Anna Kolla (IP-tala skráð) 15.10.2007 kl. 22:51
Nú gengur þetta allt að óskum mín kæra, ég finn það á mér. Bestu kveðjur í sveitina, þín nafna.
Rannveig Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 17.10.2007 kl. 11:20
Blessuð Rannveig mín. Gott að aðgerðin tókst svona vel og svo er bara að fara eftir því sem "læknararnir" segja, þ.e. að fara rólega. En ég er nú bara nýbúin að sjá köld slóð og fannst hún bara góð. En samt gátum við Helga Þórey nú hlegið ansi mikið af " segðu mér,þekktir þú Tóta vel"? "Hvernig maður var Tóti"? Bara einhver svona húmor í gangi hjá okkur mægðum enda skrýtin húmor stundum í þessari family. Bestu kveðjur til þín og þinna frá okkur á Túngötu 35 í naflanum.
Auður Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 18.10.2007 kl. 00:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.