24.9.2007 | 22:45
Frestað!
Ég skellti mér í bæinn um daginn með múttu og sá þessa stóla og leist bara vel á. Ég ákvað (eftir ráðleggingar múttu gömlu ) að fá mér ljósa stóla til þess að létta nú aðeins á eldhúsinu. Vala Matt hefði nú örugglega verið sammála okkur í valinu á nýju stólunum get ég sagt ykkur Þeir eru með frekar háu baki og ljómandi gott að sitja í þeim. Svo verið nú enn velkomnari en áður í kaffi í Vorsabæinn að máta stólana. En það er ekkert víst að þið fáið mikið annað en gulrót og saltstöng með'ðí því stólarnir kostuðu sitt
Aðrar fréttir eru þær helstar að það er búið að fresta aðgerðinni hjá mér. Surprise surprise! Ég fer í hana 16. okt í stað 2.okt. En jæja hvað er hálfur mánuður til eða frá þegar á að reyna að laga mann fyrir lífstíð
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Flottir stólar hvar fékkstu þá? Annars fannst mér bara fínt að að fá rófu og með því hjá þér síðast takk takk Kv. Kolla
Kolla rauða (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 16:43
Ég var alin upp á gulrótum og - sjá - það kom bara vel út. kv.
Helga R. Einarsdóttir, 25.9.2007 kl. 18:58
Hæ eskan...
Alltaf má á sig gulrótum bæta er ekki annars grænmeti alveg hrikalega dýrt á íslandi.... mér hefur allavega sýnst það Var annars að tala við svövu í gær og er jafnvel að spá í að koma austur á fimmtud. að hitta hana og vonandi þig líka... villtu vera memm
verðum í bandi...
knús í bæinn... Þóra
Þóra (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 11:38
Jú Þóra mín ég er einmitt í fríi á morgun
Hafið bara samband eða kíkið hingað í kaffi
Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 26.9.2007 kl. 19:18
Líst agalega vel á stólana þína og fer bara alveg að koma í í kaffi gæti bara vel verið í dag hehe...knús í kotið Svava
svava (IP-tala skráð) 27.9.2007 kl. 10:54
Þetta eru ekkert smá flottir stólar hjá þér. Vonandi gengur nú aðgerðin að óskum. Bestu kveðjur í fína eldhúsið þitt, þín nafna.
Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 27.9.2007 kl. 11:51
Takk takk nafna
Takk fyrir komuna í dag Svava mín. Alltaf gaman að fá ykkur mæðgur í heimsókn. Gott að vera í fríi svona einn dag í viku þegar einhver er heima líka
Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 27.9.2007 kl. 15:42
Heil og sæl frænka !
Til hamingju með stóana. Ég er búin að eiga svona stóla í yfir 20 ár.
Gangi þér vel með allt sem er fram undan hjá þér.
Bið að heilsa í bæinn, Heiða
Heiða (IP-tala skráð) 3.10.2007 kl. 13:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.