30.7.2007 | 10:51
Hún á afmæli í dag...
...hún á afmæli í dag. Hún á afmæli hún RANNVEIG. Hún á afmæli í dag.
Jább ég var vakin með yndislegum afmæliskossum í morgun. Fyrst af eiginmanni mínum áður en hann fór til vinnu. Sofnaði nú aðeins aftur og svo um leið og Sigrún vaknaði stökk hún upp um hálsinn á mér og kyssti mig og sagði: "Til hamingju með afmælið elsku mamma mín" Ekki amalegt að vakna við svona
Er búin að hræra í skálatertu og gera góða brauðhringinn frá henni Erlu sem ég var að vinna með. Nú svo er hann Vilberg búinn að skella í eina súkkulaðitertu fyrir mig Á nefninlega von á nokkrum í kaffi í dag.
Stjörnuspáin mín fyrir daginn: LJÓN 23. júlí - 22. ágúst
Hentu þér út í fjörið þótt það liggi kannski ekki endilega lífið á. Það góða við þig er að þú bíður ekki alltaf fram á seinustu stundu með að framkvæma hlutina.
Það er einmitt það já. Eigið góðan dag kæra fólk þarna úti
Um bloggið
Bloggsíða Rannveigar
Ný könnun!!
Ýmsar síður
-
Ýmsar síður
Gunnur beib í DK -
Ýmsar síður
María Erla Kraftakona -
Ýmsar síður
Pálína Kraftakona -
Ýmsar síður
Dabba Kraftakona -
Ýmsar síður
Þóra í Danmörku -
Ýmsar síður
Sigrún prinsessa -
Ýmsar síður
Gamla bloggið mitt -
Ýmsar síður
Barnanet.is -
Ýmsar síður
Barnaland.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með daginn elsku bestasta og sætasta Rannveig mín Vona að þú eigir ánægjulegan dag dúllan
knús frá okkur á Bakkanum
Sandra Dís
Sandra Dís (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 11:09
Elsku Rannveig.
Til hamingju með afmælið.
Eigðu góðan dag..
Bið að heilsa í bæinn.
kv Lóa
Lóa (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 12:57
Elsku Rannveig!
Innilegar afmæliskveðjur Til þín frá okkur á Sauðá.
Heiða og kó (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 13:57
Til hamingju með daginn í gær kæra vinkona :-) Bið að heilsa í kotið!
knús frá Dk
(er með tvö nautsbörn á heimilinu... svitna bara við þessar lýsingar...)
gunnur (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 14:10
Til hamingju með daginn, Rannveig mín ! Nú er sá tími kominn að þið krakkarnir eruð að verða jafngömul og við, fullorðna fólkið ! Agalega skrítið... Var að lesa færsluna þína um Nautið, og jú, er ekki frá því að maður kannist við ýmislegt, bæði frá sjálfum sér og dótturinni. Ótrúlegt að við skyldum báðar komast sæmilega frá uppeldinu, báðar jafn þrjóskar :-) Bestu kveðjur til allra í sveitinni, þín Inga V.
Ingibjörg Vigfúsdóttir (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 14:12
Innilega til hamingju með daginn:) Eigðu góðan dag með fjölskyldunni:)
kv. Lilja á Krakkaborg
Lilja (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 16:02
Til hamingju með daginn.... vonandi hefur hann verið góður..... ekki amalegt heldur að hann Vilberg skyldi hafa skellt í eina köku fyrir þig ..... ;0)
Berglind (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 19:24
Hæ elsku Rannveig mín,
Innilega, hjartanlega til hamingju með daginn:) Mér "heyrist" þú nú vera búin að eiga góðan dag!, sem er auðvitað alveg frábært!!!
Kv.Bogga
Bogga (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 21:36
Til hamingju með daginn elsku Rannveig mín
Kveðja Kristín Jóna
Kistín Jóna (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 22:35
Æ hvað þið eruð yndisleg öll Takk kærlega fyrir allar kveðjurnar. Já ég hef átt yndislegan dag. Fullt af gestum og ekki skemmir fyrir að ég fékk 2 vinnumenn til mín í dag sem urðu eftir (foreldrarnir fóru bara, hehe) og ætla að vera hjá okkur í nokkra daga
Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 30.7.2007 kl. 23:21
Innilegar hamingjuóskir með afmælið Rannveig mín. Nú verður maður bara að fara að kíkja í sveitina, tala nú ekki um ef hann Vilberg er farin að baka fyrir þig
Bestu kveðjur
Íris og co.
Íris Böðvarsdóttir (IP-tala skráð) 2.8.2007 kl. 20:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.