Engin aðgerð...

Það var nú ekkert stungið á augun í dag Errm  Skurðlæknirinn sagði að táragöngin mín væru hreinlega bara ónýt og það eina sem hann gæti boðið mér upp á væri að gera viðameiri aðgerð sem krefst svæfingar og innlagnar í um 2 daga á LSH.  Þá þarf að setja í mig einhvers konar glerkubb Woundering  og tengja svo gerfitáragöng við hann þannig að tárin leki rétta leið.  Hann sagði að um 50-60% þeirra sem færu í þetta yrðu yfir sig ánægðir með þetta en það væru líkur á að ég fyndi alltaf fyrir þrýstingi á milli augnanna (þar sem kubburinn mun verða settur) því þetta er jú aðskotahlutur.  Hins vegar miklar líkur á að þetta lagist að fullu.  Ég spurði hann bara hvenær ég ætti að mæta FootinMouth  En þetta er víst ekki alveg svona einfalt.  Það er víst BRJÁLAРað gera hjá honum svo að ég kemst ekki að fyrr en í fyrsta lagi í febrúar eða mars.  En það verður sjálfsagt þess virði að bíða....

Svo fór ég í beinaskanna í gær út af bakverkjunum sem ég hef fundið fyrir.  Ég fékk niðurstöðuna í dag og það bendir ekkert til þess að um meinvörp séu að ræða   þannig að það er mikill léttir.  Hins vegar eru slit í beinunum sem sást í skannanum en til að kanna beinin betur þarf ég að fara í beinþéttnimælingu.  Ef það kemur í ljós að um beinþynningu sé að ræða hjá mér þarf ég að fá lyf við því sem er gefið í æð á göngudeildinni.  Einhvers konar uppbyggingarlyf fyrir beinin.  Töflurnar sem ég er á (Aromasin) geta sem sagt valdið beinþynningu. 

Já það er margt í þessu.  Engin lyf eru aukaverkanalaus þannig að það er alltaf eitthvað sem tekur við af öðru.  Og af því að ein lyfin geta valdið beinþynningu þarf annað að koma á móti til að reyna að hindra hana...  Æ það verður bara gott þegar þessi 5 ár verða liðin og ég laus við öll lyf... (Krossa fingur).  Eða það er allavega takmarkið.

Kveð að sinni   

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alltaf gaman að heyra frá þér, dúllan mín! Þú stendur þig alltaf eins og hetja, þrátt fyrir það sem gengur á hjá þér!  Alveg ótrúlega flott, laang flottust!

Biðjum að heilsa í sveitina:)  Kær kveðja, frá Þórlaugu og Kidda

Þórlaug Þorfinns (IP-tala skráð) 6.12.2006 kl. 22:07

2 identicon

Já, vonandi færðu bara sem fyrst á nýju ári að komast í þessa aðgerð, það er örugglega tilvinnandi. Sem betur fer eru til lyf við beinþynningu, en þetta er oft ansi flókið, eitt tekur við af öðru. En þú ert nú samt hetja í þessu öllu saman, bestu kveðjur frá nöfnu þinni í Árbæ.

Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 7.12.2006 kl. 15:18

3 identicon

Það er alveg ótrúlegt hve mikið er lagt á suma en þú ferð í gegnum þetta allt með nokkuð gott bros á vör sem er aðdáunarvert

Anna Kristín (IP-tala skráð) 7.12.2006 kl. 19:58

4 identicon

Hæ eskan,

Bara smá kvedja frá Køben, alltaf gott ad lesa færslurnar thínar, ótrúlegt hvad thú ert mikil hetja í thessu øllu saman! Vonandi tharftu ekki ad bída í of marga mánudi eftir ad komast í thessa adgerd 

Er ekki jólaskapid á hápunkti thessa dagana? Hér er ég ad berjast vid ad komast í jólaskap, en madur er ekki alveg ad fatta ad thad sé svona stutt í jólin thegar thad er 10 stiga hiti og ýmist sól eda rigning vangefid vedurfar!!!

Jæja elskan mín ég bid kærlega ad heilsa øllum og vona ad thid hafid thad gott

Knús og kossar

Thora

Thora (IP-tala skráð) 11.12.2006 kl. 08:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband