Alvöru kvennaferð

Jæja er nú komin heim úr þessari líka bráðskemmtilegu kvennaferð til Heidelberg í Þýskalandi.  Við þrömmuðum göngugötuna nokkrum sinnum... sem er 1,6 km. að lengd takk fyrir.  Vinsælasti drykkur ferðarinnar var án efa hið þýska Glühwein IMG_2373  sem er heitt jólaglögg og var hægt að bæta það með rommi eða einhverju álíka spennandi.  Ofsa gott á röltinu á milli jólabásanna.  Maður kaupir sér glögg í könnu og getur svo skilað könnunni og fengið þá hluta af peningnum til baka.  Okkur fannst nú ekki taka því.  Við vildum auðvitað eiga allar könnurnar og takmarkið hjá okkur var að safna í 12 manna könnusett Tounge  Það má engu muna en að það hafi tekist.  LoL  Jóladótið var svo ekkert smá flott.  Ég hef nú aldrei á ævi minni séð jafn mikið úrval af fallegu jólaskrauti.  VÁ.   IMG_2370

Snjóboltarnir klikkuðu heldur ekki.  IMG_2419  Þeir eru MUN stærri en mig hafði órað fyrir.  Ekki séns fyrir eina manneskju að torga einum bolta í einu og sömu máltíðinni... ja maður þarf þá að vera mikið svangur.  Tounge  Bratwurst var líka etið af mikilli lyst og list ... eða þannig.  Sumar pylsurnar voru nú lengri en augað eygði svei mér þá.   Fórum líka að skoða kastalarústir IMG_2394  efst uppi í borginni.  Þaðan var náttúrulega ótrúlega flott útsýni yfir borgina.   IMG_2400  Inni í kastalanum var svo þetta líka ferlíki sem var einu sinni bjórtunna.  Tekur litla 222.000 lítra.  IMG_2410  Við náðum nú ekki að klára úr henni GetLost

Svo fórum við í Rothenburg ob der Tauber sem er 12.000 manna bær og er frá miðöldum.  Þar voru svakalega flottar jólabúðir og stór jólamarkaður í litlum básum út um allt.  Í Rothenburg minntu húsin nú bara á gömlu Playmo húsin hans Bjögga bróður hennar Svövu sem við lékum okkur svo mikið með í denn Grin Playmo-hús   Ein af jólabúðunum í Rothenburg  En þetta var sem sagt frábærlega vel heppnuð ferð og bráðskemmtilegir ferðafélagar Smile

Ég er að fara á morgun að láta stinga á augun aftur.  Það á að reyna að opna táragöngin aftur... spurning hvort ég lagist eitthvað af þessu táraflóði sem ég er orðin aaaaansi leið á Angry  So wish me luck beibs.  Förum svo á jólahlaðborð á Geysi á laugardaginn með vinnunni. 

Þangað til næst.  Yfir og út!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ eskan

Trúi alveg að þetta hafi verið skemmtileg ferð, fór í eina svipaða fyrir jólin í fyrra, fór með saumaklúbbnum til Lubeck þar er líka frægur jólamarkaður! það var reyndar bara dagsferð, enda soldið styttra fyrir okkur að fara En hefði nú sossum alveg verið til í að vera soldið lengur En gott að þú skemmtir þér vel...

Vona að það gangi vel að stinga á táragöngin svo þú getir varið að hætta þessu tárastandi Já og góða skemmtun á laugard. ég er einmitt að fara á julefrokost á föstudagskvöldið og svo á jólaball með stelpurnar á laugadagsmorgun 

Knús frá Köben Þóra

Þóra (IP-tala skráð) 6.12.2006 kl. 07:06

2 identicon

Velkomin heim!

 Greinilega vel heppnuð ferð, hef komið nokkrum sinnum til Heidelberg og það er alveg einstaklega falleg borg. Ég get vel ímyndað mér að það sé stemming þar svona fyrir jólin.

Bestu kveðjur úr höfuðborginni

Sigga

Sigríður Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 6.12.2006 kl. 15:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband