Dagur í lífi mínu!

Það er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega útaf járninu og einn banana  til að fá kalíum.   Líka eina appelsínu, útaf c-vítamíninu og einn bolla af grænu te án sykurs, til að forðast  sykursýki.  Svo má ekki gleyma lýsinu sem er náttúrulega allra meina bót.
Drekka tvo lítra af vatni alla daga (Já, og síðan að pissa því, sem tekur tvöfaldan tímann sem það tók að drekka það).
Á hverjum degi borða jógúrt og eitt skot af   LGG út af gerlunum sem enginn skilur hvað gera, en ef þú færð ekki eina og hálfa milljón á dag mun það hafa skelfilegar heilsufarslegar afleiðingar.
Daglega  taka inn eina aspirín til að koma í veg fyrir hjartaáfall, og drekka eitt rauðvínsglas í sama tilgangi.  Og annað hvítt fyrir taugakerfið.  Og einn bjór,  sem ég man ekki hvaða gagn á að gera .  Ef þú færð þér þetta allt í einu, skaltu gæta þess að eiga einn Red Bull ísskápnum til að drekka  daginn eftir,  nema náttúrulega ef þú ert  þá búinn að fá heilablóðfall.   Ef það gerist, muntu ekki taka eftir því.
Daglega borða trefjar. Mikið, mjög mikið af trefjum. Þar til þú kúkar  heilli peysu.  Það á að borða fjórar til sex máltíðir  á dag, hollar,  fitulitlar máltíðir og ekki gleyma að tyggja hvern  munnbita hundraðsinnum.
Með smá útreikningi er  ljóst að það tekur þig um fimm  klukkustundir á dag að borða.
Ó, og  síðan  má ekki gleyma að bursta tennurnar eftir hverja máltíð.
Á eftir jógúrtinu og  trefjunum, tannbursta; á eftir eplinu, tannbursta; á eftir banananum, tannbursta...
Og á meðan þú ert á annað borð með tennur máttu ekki gleyma tannþræðinum
og munnskolinu með tilheyrandi gurgli.
Best að stækka baðherbergið og setja þar inn hljómflutningstækin þín,  því þar áttu eftir að dvelja drjúgan tíma: vatnsþambið, trefjarnar, tennurnar...
Síðan á að sofa í átta stundir og vinna aðrar átta plús þessar fimm sem fara í að borða. Þetta gerir  tuttugu og eina klukkustund.  Þá áttu þrjár stundir eftir, það er að segja ef ekkert sérstakt kemur uppá þann daginn.
Samkvæmt  könnunum  eyðum við  þremur stundum daglega í sjónvarp...og ekki gleyma  tölvunum!!!  En þú hefur engan tíma í svoeiðis, því daglega áttu að
fá þér a.m.k. hálftíma göngutúr  (Ég tala af reynslu: Snúðu við eftir 15 mínútur, því annars verður hálftíminn að klukkustund).

Síðan verður að huga að vinunum því þeir eru eins og blóm: það þarf að vökva þau daglega. Líka þegar þú ferð í frí. Það er að segja ef þú ferð í frí.

Síðan þarf að vera vel upplýstur. Lesa að minnsta kosti tvö dagblöð og eina grein í tímariti til að bera upplýsingarnar saman.
Ah! Síðan er það kynlífið. Kynlíf daglega og þar að auki á það að vera frumlegt og skapandi .  Þetta tekur sinn tíma!!!  Að maður tali nú ekki um
tantra kynlíf!!!
Að öllu framansögðu  vil ég minna þig á: Það á að tannbursta sig eftir hverja máltíð. Það þarf líka að skúra, þurrka af, þvo þvott, fara í sturtu og vaska upp og áttu kannski hund að auki eða hamstur? Börn?!

Nú reiknast mér til að þetta kalli á um 30 stundir á dag. Eina lausnin á þessum vanda,  er að framkvæma eitthvað af þessum atriðum í einu. Til dæmis: Þú ferð í kalda sturtu með opinn munninn og drekkur þannig lítrana tvo af vatni.  Þegar þú gengur út úr baðherberginu með tannburstann í munninum nýturðu um leið ásta (tantrískt)  standandi með makanum þínum, sem um leið horfir á sjónvarpið og segir þér frá á meðan þú burstar tennurnar.
Var ein hendi laus?  Hringdu í vinina!!! Og foreldrana!!!
 Fáðu þér rauðvín (eftir spjallið við foreldrana muntu þurfa á því að halda)
 Eplið getur makinn þinn matað þig á á meðan þú borðar bananann með jógúrtinu. Úffffff! En ef þú átt tvær mínútur eftir , sendu þetta þá á vinina (sem þú þarft að vökva eins og blóm)  um leið og þú tekur inn eitt hvítlaukshylki  sem er svo gott fyrir...
En nú verð ég að hætta því eftir jógúrtið, appelsínuna, bananann, bjórinn, fyrri  vatnslítrann, þriðju máltíðina með trefjum, hef ég ekki hugmynd um það hvað ég er að gera og þarf nauðsynlega að komast á klósettið.

 Aha, ég ætla að nýta tímann og kippa tannburstanum með mér.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 123791

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband