Vika í brottför

    Við hittumst í gær nokkrar Bakkaskvísur og borðuðum saman í Rauða Húsinu á Eyrarbakka.  Það er alltaf jafn gaman að hitta þær kellurnar.  Mikið rifjað upp...  mikið djöfull er þetta lítill ísskápur ....  Djöfull brá mér annars þegar Kim kom inn og sagði:  "Rannveig!  Your Mother!" LoL LoL   Ótrúlegt hvað við getum hlegið að þessu.  En ég er ekki sátt við hvað sumar í hópnum eru hryllilega minnugar Blush  ég held að helmingurinn að því sem þær þykjast muna sé bara helber rógburður, he heh he he he........................  Tounge  Já ég segi ekki meir!  FootinMouth  En Sandra mín og Sædís ykkar var sárt saknað.

En nú er bara vika í Heidelbergferðina mína góðu og ég fer nú bara að verða spennt.  Spurning hvort ég þurfi að kaupa mér stærri ferðatösku Woundering  ég talaði við konu í morgun sem bjó í Þýskalandi og hefur farið á fjöldann allan af þessum jólamörkuðum sem í boði eru í Þýskalandi og sagði að við ættum að reyna að kíkja á þá sem flesta.  Þeir væru æðislegir og ýmislegt til á þeim e.o. þýskt handverk, ýmsir fallegir listmunir og örugglega allt þar á milli.  Hljómar vel ekki satt! 

Lokakvöldið á skrautskrift í kvöld.  Ætla að fara að fá mér kvöldmat svo ég geti nú meðtekið eitthvað af því sem á að læra í kvöld.  Er voðalega þreytt eitthvað þessa dagana.   En ég tel nú líklegt að þið fáið smá nasasjón af því sem ég hef lært á þessu námskeiði í jólakortunum þetta árið   

Bless í bili


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já það var leiðinlegt að geta ekki verið með ykkur í gærkvöldi  Ég get sko ekki sagt að ég falli í þennan "minnuga" hóp, hvað var þetta aftur með ísskápinn?????  Sjáumst fljótlega

knús Sandra Dís

Sandra Dís (IP-tala skráð) 23.11.2006 kl. 17:56

2 identicon

Elsku vinkona!

Mundu eftir að hvíla þig vel.... það má ekki gleymast!

Bestu kveðjur til ykkar allra,

Þórlaug og Kiddi

Þórlaug og Kiddi (IP-tala skráð) 23.11.2006 kl. 21:35

3 identicon

Já þetta var frábært kvöld og stutt í húmorinn og nóg til af minningum og hlátri enda vorum við alveg hissa á því skvísurnar að vertinn á Rauða leyfði okkur að sitja með almenningi niðri hehe. Hlakka til að sjá afrakstur námskeiðs.  Kveðja Svava

svava (IP-tala skráð) 24.11.2006 kl. 21:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 123802

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband