Komnar myndir frá Kanarí á heimasíðu Sigrúnar

Jæja þá er prinsessan á bænum farin í leikhús með ömmu sinni.  Barnabörnunum var boðið á Gosa í dag og var hún voða spennt fyrir því.  Bóndinn farinn upp á Bláfell þannig að ég er ein í kotinu í dag.  Hef svo sem í nógu að snúast.  Það sem það tekur langan tíma að ganga frá eftir svona utanlandsferðir, úff púff.  Er endalaust að setja í þvottavél, hengja upp, taka niður þvottinn, brjóta hann saman, setja í aðra vél, hengja upp... já þetta virðist vera endalaust en verður auðvitað gott þegar það tekur enda Joyful  Svo þarf auðvitað að moppa og þurrka af og svona.  Þegar sólin lætur sjá sig þá er nú vissara að þrífa aðeins í bænum, vá maður!  Tek nú betur á vorhreingerningu þegar nálgast afmæli Sigrúnar.

Annars var ég að borga flugfarið nú í vikunni fyrir næstu utanlandsferð hjá mér Grin  Grin  sem er í lok apríl.  Þá förum við í leikskólanum í kynnisferð til Jótlands í nokkra daga og ætlum að gista á rosa flottum risastórum herragarði nálægt Billund.  Algjör snilld og það er sko sundlaug í garðinum og klósett á hverju herbergi og 2 eldhús í húsinu og einhver 5 baðherbergi svo dæmi sé tekið.  Hlakka bara djö... til að fara í svona ferð og kynnast lífinu á leikskólum í nágrannalandinu Danmörku.  Ætlum að skoða nokkra náttúruleikskóla og amk. eina vöggustofu þar sem við tökum nú inn börn frá 9 mánaða.

Jæja best að halda áfram að þrífa.  Ég kláraði að taka upp úr töskunum ÁÐAN!!!  Já þetta tekur allt tíma get ég sagt ykkur.  Annars fáum við næturgest í nótt til okkar.  5 ára vinur okkar ætlar að fá að gista hjá okkur á meðan foreldrar hans þeysast upp á fjöll á færiböndunum sínum, hehehe.  Hverjir skildu það vera???  Wink  LoL


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Velkomin heim!  Já, ég skal trúa að þetta taki allt sinn tíma;)  En það er svo ljúft þegar maður er búin að þessu þvottastússi og hreingerningum! Var einmitt að þessu sama áðan, skil ekki þvottinn á einu heimili.  En mér líður svooo vel núna, eftir að allt orðið hreint og fínt!  Ég bið kærlega að heilsa Reyni;)  Knúsaðu hann og Sigrúnu frá mér, elsku vinkona!

Bið að heilsa, kveðja frá okkur öllum í Fífuselinu

Þórlaug (IP-tala skráð) 8.3.2008 kl. 13:49

2 identicon

Hehe já og takk fyrir að hafa hann Reynir minn það er náttlega bara frábært að eiga ykkur að eskurnar!   Sjáumst vonandi bráðlega kveðja Svava

svava (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 22:02

3 Smámynd: Brynja skordal

Velkomin heim úr sólinni já það er sko endalaus þvottur eftir svona ferðir

Brynja skordal, 12.3.2008 kl. 02:01

4 identicon

Kannski við hittumst í Danmörku, við Árbæingar verðum þarna á sama tíma, í Köben að vísu. Bestu kveðjur í sveitina, þín nafna.

Rannveig Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 09:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggsíða Rannveigar

Þú ert kominn á bloggsíðuna mína. Allt sem hér er skrifað er skrifað af mér og endurspeglar ekki endilega mat þjóðarinnar.

Höfundur

Rannveig Bjarnfinnsdóttir
Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Sveitakjella, móðir, eiginkona, deildarstjóri, leikskólakennari, ljón, föndrari og mikil áhugamanneskja um gamla, íslenska skemmtiþætti.  Er þakki Addi Palli og Bergþóra?  Vann ég ekki þetta tæki á basarnum? 

Netfang:  rannveig@emax.is  

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Ný könnun!!

Hvað ertu?

Nýjustu myndböndin

Dansnámskeið

Bomboleo

Heljarstökk

Nýjustu myndir

  • Vinir á El Duke
  • Á skemmtun með Ómari Ragnarssyni
  • Skvísan fyrir utan húsið okkar

Ýmsar síður

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 123808

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband